Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 48
■■■■ { ferðahelgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■16
Prímus með máli.
Drykkjarmálið er
fest á prímusinn og
vatnið soðið. Eftir það
er málinu kippt af,
en það heldur vatn-
inu áfram heitu, og
hægt er að drekka
beint úr því. Þessi
græja fæst í Everest og
kostar 12.695 krónur.
Borðbúnaður í bak-
pokanum. Taska með
matarstelli, diskum
og hnífapörum, fyrir
fjóra. Fæst í Everest á
4.995 krónur.
Víntaska. Hentug í rómant-
ísku útileguna. Það fer vel um
vínflöskuna í sérstöku hólfi og tvö glös
fylgja, fallegar servíettur og tappatogari.
Fæst í Everest á 1.695 krónur.
Kælikubbur í kælitöskuna eða
-boxið. Fæst í þremur stærðum
og er á verðbilinu 195-295
krónur í Nýju skáta-
búðinni.
Það er mun huggulegra að ganga að nestinu sínu
vel pökkuðu og fersku en að róta í bakpokanum
alla útileguna í leit að einhverju girnilegu. Nest-
isútbúnaður þarf ekki að vera dýr eða sérstaklega
hannaður fyrir útivist heldur er nóg að hafa gott
loftþétt box og góðan brúsa til að það fari betur um
nestið. Aftur á móti er alveg hægt að missa sig í
skemmtilegum og flottum nestisútbúnaði sem gerir
undirbúninginn fyrir útileguna svolítið skemmti-
legri og býður upp á alls kyns möguleika. Það er
til dæmis hægt að labba upp á fjall með kampa-
vínsflöskuna kalda í bakpokanum, með plastvínglös
og tappatogara, og eiga rómantíska stund. Einnig er
hægt að leggja smekklega á borð án nokkurrar fyrir-
hafnar með flottu matarstelli og öllu tilheyrandi.
Smekkur manna er misjafn og sumir vilja lifa hátt í úti-
legunni á meðan aðrir vilja hafa búnaðinn sem einfaldastan
og þægilegastan. Gott úrval er fyrir hendi í búðunum og svo
er bara að leyfa hugmyndafluginu að ráða. Hér eru nokkur
dæmi um það sem er í boði fyrir nestið í útileguna.
Skemmtileg box undir barnanestið. Hentugt fyrir samlokur
og niðurskorið grænmeti. Fæst í Rúmfatalagernum. Barbie-
box kostar 349 krónur. Svampur Sveinsson box kostar 420
krónur.
Drykkjarmál sem heldur kaffinu
heitu. Á þessu drykkjarmáli er
tappi á stútnum þannig að hægt
er að loka málinu á milli sopa.
Fæst í Nýju skátabúðinni og
kostar 1.795 krónur.
Drykkjarbrúsi sem heldur
vökvanum köldum og
ferskum í útilegunni. Fæst
í alls kyns litum og munstri
í Everest og kostar 1.995
krónur.
Allt fyrir nestið
Það skiptir miklu máli að fara vel nestaður í útileguna. En það er ekki sama hvernig
nestinu er pakkað og komið fyrir í farangrinum. Gott úrval af nestisboxum og drykkj-
arbrúsum í útivistarbúðunum kemur í veg fyrir krumpaðar samlokur og sprungnar
kókómjólkurfernur.
Beljutaska. Taska sem heldur rauðvíns-
belju við stofuhita og svo stingurðu
kælikubb með og heldur þannig
hvítvínsbeljunni kaldri. Fæst í alls kyns
litum og munstrum. Taskan fæst í Nýju
skátabúðinni og kostar 3.295 kr.
Ketill með grisju. Ofan
í katlinum er grisja
þannig að það er
hægt að búa til te í
katlinum. Fæst í Nýju
skátabúðinni og kostar
2.995 krónur.
Kælitaskan er nauðsynleg í langar útilegur.
Þessari kælitösku er hægt að stinga í
samband í kveikjarann í bílnum og þá helst
allt ískalt. Svo þegar það þarf að fara með
töskuna inn í tjald þá er skipt um lok og
settir kælikubbar ofan í töskuna. Þá ertu
kominn með ósköp venjulega kælitösku.
Þessi kælitaska er á tilboðsverði í Nýju
skátabúðinni á 9.995
krónur.
Drykkjarbrúsi með alls kyns
fylgihlutum. Góður brúsi í úti-
leguna sem hægt er að hengja
á bakpokann. Með brúsanum
fylgir lítið vasaljós, regnslá, lítill
skyndihjálparpakki og vasahnífur.
Þessi sniðugi brúsi fæst í Nýju
skátabúðinni á 2.995 krónur.
„Ég fór aldrei á útihátíð þegar ég
var unglingur en fór einu sinni til
Eyja á þjóðhátíð með dóttur minni.
Það var á tíunda áratugnum,“ segir
Steinunn Jóhannesdóttir rithöf-
undur, spurð um eftirminnilega
verslunarmannahelgi. Síðan kemur
upprifjun. „Dóttir mín hafði suðað
mikið um að fá að fara á Uxa á
Kirkjubæjarklaustri en ég neit-
aði henni um það, enda átti hún
nokkra daga eftir í að verða sextán
ára. Ég bauð henni þó að fara með
henni ef það væri sáluhjálparatriði
fyrir hana að heyra og sjá Björk
sem var aðalnúmerið á hátíð-
inni. Það fannst henni ótrúlega
hallærislegt og afþakkaði pent.
En næsta ár hafði þroskinn aukist
svo að hún bað mig að koma með
sér á þjóðhátíðina í Eyjum. Fréttir
af eiturlyfjunum á Uxa árið áður
höfðu greinilega haft áhrif. Ég tók
áskoruninni. Þurfti sem betur fór
ekki að vera í tjaldi inni í Dal held-
ur hreiðraði um mig í bænum. Hitti
samt dótturina og vinkonurnar á
hverjum degi og var þeim innan
handar. Það var alveg rosaleg rign-
ing, mikil drulla og mikil drykkja.
En þarna voru flottir hlutir líka
eins og brennan á Fjósakletti og
flugeldasýningin sem er ógleym-
anleg. Svo var mikill brekkusöngur
og ég dáðist mjög að Árna John-
sen að honum skyldi takast að fá
allt þetta blauta og hrakta fólk til
að sameinast í söng.“
Allir sameinuðust í söngnum
STEINUNN JÓHANNESDÓTTIR RITHÖFUNDUR UPPLIFÐI HVORT
TVEGGJA ÁHYGGJUR OG GLEÐI Á ÞEIRRI EINU ÚTIHÁTÍÐ SEM
HÚN HEFUR FARIÐ Á UM VERSLUNARMANNAHELGI.
„Það var alveg rosaleg rigning,“ rifjar Steinunn upp. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hráefni
3 egg
Grænmeti, kjöt, krydd og ostur – allt eftir smekk kokksins (til dæmis
laukur, kartöflur, blaðlaukur, skinka, salt, pipar, dill, ostur)
Brjótið eggin og setjið í þar til gerðan plastpoka sem hægt er að loka
og þolir suðu. Bætið niðurskornu grænmeti, osti, skinku og kryddi út í.
Lokið pokanum og hristið hann varlega. Látið í pott
af sjóðandi vatni í 5 til 10 mínútur, eða þar til
eggjakakan er tilbúin.
Athugið: Til að auðvelda matargerðina
er hægt að skera niður grænmetið,
skinkuna og ostinn áður en farið er
í ferðalagið.
Einföld eggjakaka
HÆGT ER AÐ MATREIÐA EGGJAKÖKU Á EINFALDAN HÁTT Í ÚTILEG-
UNNI. ÞAÐ EINA SEM ÞÚ ÞARFT ER POTTUR MEÐ SJÓÐANDI VATNI
OG POKI SEM HÆGT ER AÐ LOKA.
Hægt er að búa til hina girnilegustu
eggjaköku á ferðalaginu án nokkurrar
fyrirhafnar.FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Eftirminnileg ferðahelgi