Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 82
28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR34
menning@frettabladid.is
! Kl. 16.00Einleikurinn Úti bíður andlit á
glugga eftir Halldóru Malín Péturs-
dóttir er sýndur í gamla pósthúsinu
á Borgarfirði eystri. Önnur sýning
kl. 21.
> Ekki missa af...
djassbandinu Póstberunum
sem leikur á hótel Framnesi
á Grundarfjarðarhátíð í
kvöld. Félagarnir munu taka
kunnuglegar syrpur úr amer-
ísku söngbókinni og leika af
fingrum fram.
tónlistargjörningi kontra-
bassaleikarans Deans Farrel í
menningarmiðstöðinni Skaft-
felli á Seyðisfirði á morgun.
Ábyggileg uppátækjasemi og
eðaltónlist fyrir austan.
sumarpartíi tískusjoppunnar
Spúútnik á Laugavegi. Plötu-
snúðurinn DJ Ta! Ta! Ta! sér til
þess að hnéskeljarnar kikni
og hnakkarnir sveiflist í dag.
Glöggir ferðamenn
hafa án efa tekið eftir
óvenjulegu ökutæki
sem nú þeysir um
þjóðveginn. Hand-
verksbíllinn er rækilega
merktur og vekur
víða furðu en þar er á
ferðinni þjónustubifreið
fyrir staðbundið hand-
verksfólk. Bíllinn minnir
um margt á gömlu
kaupfélagsbílana sem
keyrðu um sveitir
landsins hér á árum
áður og má því segja
að Handverkshúsið
færi okkur aftur gömlu steminguna í bæinn.
Í bílnum eru vélar og verkfæri til steinavinnslu, silfur-
smíði, tréútskurðar og trérennslis; klukkur, íhlutir,
borar og margt fleira
fyrir handverksfólk.
Þorsteinn Eyfjörð,
eigandi verslunarinnar
Handverkshúsið, segir
að bíllinn sé kærkomin
þjónusta við ört vax-
andi hóp handverks-
fólks sem geti keypt
vörur beint úr bílnum
á sínu eigin hlaði ef
því er að skipta.
Handverksbíllinn
hefur rúntað um Suð-
urlandið undanfarið
en nú er stefnan tekin
austur og síðan norður
þar sem sumarferð hans endar á Handverkssýning-
unni á Hrafnagili í Eyjafirði. Frekari upplýsingar má
finna á www.handverkshusid.is.
Handverksrúnturinn
HANDVERKSBÍLINN HEIM Í HLAÐ
Selur tól og íhlutir fyrir handverksfólk
Útihátíð SÁÁ verður haldin með
pompi og prakt í Hvalfirðinum
um helgina. Hátíðin er skipulögð
fyrir félagsmenn í SÁÁ og þá sem
lokið hafa meðferð, auk aðstand-
enda þeirra, en allir sem vilja
skemmta sér án áfengis og vímu-
efna eru velkomnir. Aðstandend-
ur hátíðarinnar telja mikilvægt að
bjóða upp á áfengis- og vímuefna-
lausa viðburði fyrir félagsmenn
sína sem ef til vill finna sig ekki í
því skemmtanalífi þar sem áfengi
er haft um hönd.
Að þessu sinni eru gestir boðnir
velkomnir að Hlöðum þar sem allir
aldurshópar geta skemmt sér
saman án nokkurra aukaefna. Dag-
skráin er miðuð við að allir aldurs-
hópar fái eitthvað við sitt hæfi og
gera aðstandendur ráð fyrir að
minnsta kosti 2.000 gestum.
Landsþekktir skemmtikraftar
munu troða upp, þar á meðal
Bubbi Morthens og KK, félagarn-
ir Gunni og Felix og hljómsveitin
sprellfjöruga Paparnir. Börnin
geta skríkt yfir atriðum úr Ávaxta-
körfunni og horft á brúðuleikhús
eða tekið þátt í listasmiðju málar-
ans Tolla.
Spáð er bongóblíðu um helgina
og að sögn aðstandenda hátíðar-
innar verður allt til alls í Hval-
firði. Frekari upplýsingar má
finna á heimasíðunni www.saa.is.
Verulegt fjör án vímuefna
BUBBU MORTHENS LÆTUR SIG
EKKI VANTA Útihátíð SÁÁ verður
haldin að Hlöðum í Hvalfirði.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
28. júlí - kl. 20:00 - Örfá sæti
17. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti
18. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti
24. ágúst - kl. 20:00 - laus sæti
25 ágúst - kl. 20:00 - laus sæti.
Föstudag 21. júlí kl. 20 uppselt
Laugardag 22. júlí kl. 20 uppselt
Sunnudag 23. júlí kl. 15 aukasýning
Sunnudag 23. júlí kl. 20 uppselt
Föstudag 28. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Laugardag 29. júlí kl. 20 örfá sæti laus
Sunnudag 30 júlí kl 15 aukasýning
Sunnudag 30. júlí kl. 20 nokkur sæti laus
Föstudagur 4. ágúst kl. 20
Laugardagur 5. ágúst kl 20
Sunnudagur 6. ágúst kl. 15
Sunnudag 6. ágúst kl. 20
Laugardagur 19. ágúst kl 20
Tvíréttaður kvöldverður og
leikhúsmiði
kr. 4300 - 4800.-
Verið er að undirbúa
heljarinnar hátíð í húsi
niðri við Sæbrautina sem
kennt er við Ó. Jónsson &
Kaaber. Í ágúst verður tíu
daga veisla fyrir augu og
eyru þar sem ungir lista-
menn halda Artfart.
Karl Ágúst Þorbergsson, einn af
aðstandendum hátíðarinnar, segir
að skipulagning hennar hafi haf-
ist strax í vor þegar hópar ungs
listafólks fengu grænt ljós hjá
Hinu húsinu og Reykjavíkurborg
og stimpil þess efnis að þeir gætu
stundað Skapandi sumarstörf á
þeirra vegum. Húsið var síðan
fengið að láni með milligöngu KB
banka og í júní fór að kvikna líf í
þessum gamla kaffikastala þar
sem ólíkir hópar listafólks hreiðr-
uðu um sig. „Ég og vinur minn
höfðum velt því fyrir okkur að
efna til leiklistarhátíðar og þarna
voru komnar forsendur fyrir
slíku,“ segir Karl Ágúst og áréttar
að það hafi alla tíð verið stefnan
að halda hátíð sem nú er farin að
taka á sig endanlega mynd.
Hátíðin stendur frá 10.-20. ágúst
og verða nokkrar sýningar á hverj-
um degi. Danslist og leiklist verða
í hávegum hafðar, en tónlistin og
myndlistin spila líka sínar rullur
og landamærin verða að litlu höfð.
„Stemningin hér er búin að
vera frábær í einu orði sagt. Hér
er mikið líf og mikil sköpun enda
eru töluverð samskiptin milli hóp-
anna og ólíkra listgreina.“ Liðlega
þrjátíu listamenn koma fram á
hátíðinni í tíu hópum, þar af átta
sviðslistahópum. „Sýningarnar
verða allar mjög tilraunakennd-
ar,“ útskýrir Karl Ágúst. „Við
höfum til dæmis verið að prófa
okkur áfram með aðferðir sem
ekki þekkjast vel hér á landi en
hafa verið notaðar mikið erlendis
undanfarin tuttugu ár,“ segir hann
og vísar til þeirrar nálgunar að
setja spurningarmerki við leik-
húsformið. „Hver getur sagt hvað
er leiklist og hvað ekki? Hvað er
leikbært við allskonar athafnir?
Til dæmis eru gjörningar stór-
merkileg fyrirbrigði en þeir hafa
yfirleitt fallið undir myndlist hér-
lendis en það væri mjög auðvelt
að líta á þá sem leiklist. Margar
sýninganna ganga út á að brjóta
upp þessi viðteknu form.“
Margir listamannanna hafa
gengið með hugmyndir sínar lengi
og fá loksins tækifæri og aðstöðu
til þess að útfæra þær og koma
þeim á framfæri. Karl Ágúst
útskýrir að þetta framtak og vel-
vilji hafi gríðarlega þýðingu fyrir
listamennina sem þarna starfa.
„Ef ég má vera hreinskilinn þá
held ég að svona tækifæri bjóðist
ekki aftur – ekki með svona húsi
og þessari hátíð. Varla nema ef
einhver alveg ótrúlega góðviljaður
færi að skjóta yfir okkur skjóls-
húsi, þetta er mjög sjaldgæft.“
kristrun@frettabladid.is
Ævintýralegt Artfart
LISTAMENN ERU BESTU SKINN Þessi ábúðarfulli maður hafði engar áhyggjur. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Myndlistarmaðurinn Óli G. opnar
sýningu í Gallerí Turpentine kl. 17
í dag þar sem hann sýnir 31 mál-
verk. Sýningin ber heitið Við-
komustaðir og stendur til 18.
ágúst. Málarinn hefur að sögn
komið víða við en hélt síðast
einkasýningu á höfuðborgarsvæð-
inu árið 2003.
Í tengslum við sýninguna
kemur út vegleg listaverkabók
um málarann sem Aðalsteinn
Ingólfsson hefur sett saman. - khh
Óli G. sýnir
VIÐKOMUSTAÐIR Nú í Gallerí Turpentine.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI