Fréttablaðið - 28.07.2006, Qupperneq 16
28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Um fimmtíu vísindamenn eru
staddir á ráðstefnu um dýralíf í
jarðvegi sem haldin er á Akureyri.
Bjarni E. Guðleifs-
son náttúrufræð-
ingur segir að hér
kunni að finnast
smádýrategundir
sem ekki finnist
annars staðar.
Þetta er fyrsta
skiptið sem ráð-
stefna af þessu tagi
er haldin á Íslandi
en þar koma saman vísindamenn
frá hinum Norðurlöndunum, Eist-
landi og Rússlandi og kynna rann-
sóknarniðurstöður sínar. „Einn
vísindamannanna var á ferð á
Íslandi í haust og komst þá að því
að tegundir mordýra, sem eru
smádýr í jarðvegi, eru fleiri en
áður hafði verið talið á Íslandi.“
Þá verður á ráðstefnunni fjall-
að um hringrásina í jarðveginum,
um tegundafjölbreytni jarðvegs-
dýra og áhrif mannlegra aðgerða
á jarðvegsdýralífið. Bjarni segir
jarðveg á Íslandi vera sérstakan
því þetta sé eldfjallajörð og því
kunni að finnast hér dýrategundir
sem ekki finnist annars staðar.
Bjarni segir að vegna legu
landsins sé dýralíf í jarðvegi hér
fábreyttara en í öðrum löndum.
„Sem dæmi má nefna að hér finn-
ast aðeins ellefu tegundir af ána-
möðkum en annars staðar á
Norðurlöndunum eru þær nokkrir
tugir. Köngulóartegundir eru tæp-
lega eitt hundrað hér á landi en
flestar þeirra eru litlar.“
Bjarni segir ýmislegt geta haft
áhrif á dýralíf í jarðvegi og nefnir
sem dæmi túnrækt, sinubruna,
virkjanaframkvæmdir, geislun og
mengunarslys ýmiss konar. „Flest
smádýr lifa í efstu fimm senti-
metrum jarðvegs og því er margt
sem getur haft áhrif á þau. Ég hef
verið að rannsaka áhrif túnrækt-
unar á smádýr og þar kemur í ljós
að í túnrækt fækkar tegundum
dýra í jarðvegi en hefur jafnframt
þau áhrif að innan sumra dýrateg-
unda verður veruleg fjölgun.“ - hs
Þetta hefur ekki verið neitt að bögga
mig. En svo náttúrulega þegar maður
heyrir af svona hlutum eins og slys-
inu þegar flutningabíllinn hellti niður
olíu fyrir norðan fer maður að pæla
í þessu. Hann var með tengivagn,
sem mér finnst nú kannski óþarfi.
Þegar maður er að flytja eitthvað
svona rosa bensín og olíu finnst
mér ekki að maður eigi að vera með
vagn aftan í líka. En einhvern veginn
verður auðvitað að flytja þetta.
Ég keyrði alltaf reglulega milli Kefla-
víkur og Reykjavíkur og flutninga-
bílstjórar fóru oft alveg út í kant til
að hleypa manni framúr. Þeir voru
alveg tillitssamir með það enda voru
þeir aldrei á brjálæðislega mikilli
ferð á Reykjanesbrautinni. Mér finnst
samt, eins og á hringtorginu hjá
Lækjargötunni í Hafnarfiði, að þessir
vöruflutningabílar fari alltof hratt.
SJÓNARHÓLL
ÞUNGAFLUTNINGAR
Á ÞJÓÐVEGUNUM
Vill ekki
tengivagna
SVANDÍS ÓSK HELGADÓTTIR
HÁRSNYRTIR Á FLÓKA Í HAFNARFIRÐI
„Aðalfrétt dagsins í dag er að það eru akkúrat
23 ár síðan tvíburarnir mínir fæddust. Þeir eru
því orðnir einu ári eldri en ég var þegar ég
eignaðist þá,“ segir Ingibjörg Kristleifsdóttir,
leikskólastjóri Klambra. Á afmælisdeginum
fær hún annan tvíburann í heimsókn enda
eru þeir „orðnir karlar í sitt hvoru landinu“.
Ingibjörg er annars hæstánægð með sumarið
enda er hún búin að nýta það vel í alls konar
útiveru. „Sumarið er bara hálfnað en samt
búið að vera svo skemmtilegt og sólríkt. Ég
er búin að ganga Síldarmannagötu, upp á
Arnarvatnsheiði og svo fann ég Paradís á
Norðfirði,“ segir hún og bætir við að einnig
sé nauðsynlegt að komi fram að hún hafi
gengið á Strút síðastliðinn laugardag. „Ég segi
öllum sem ég hitti það svona sjö sinnum.“
Leikskólinn Klambrar er að fara aftur af
stað eftir sumarleyfi og í vikunni fóru börn og
starfsfólk saman í hvalaskoðun. „Við sáum
náttúrulega bara nokkra sporða, en eftir á
erum við öll alveg viss um að við sáum hvali
sem eru stærri en kastalinn í garðinum.“
Ingibjörg hefur annars í nógu að snúast við
undirbúning vetursins á Klömbrum. „Við
erum með alla útlimi krosslagða í von um
að manna allar stöðurnar í haust.“ Ingibjörg
segist þó ekki vera kvíðin heldur full til-
hlökkunar fyrir veturinn. „Einhver sagði að
leikskólastjórar héldu að kvíði væri eðlileg
tilfinning. Við erum núna að senda kvíðann
út í hafsauga og taka tilhlökkunina inn því
búið er að ráða svo mikið úrvalslið hér til
starfa. Svo er þetta bara alveg að koma,“
segir Ingibjörg.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? INGIBJÖRG KRISTLEIFSDÓTTIR LEIKSKÓLASTJÓRI
Með alla útlimi krosslagða
Stolin vínber
„Fólk stundar að bragða á
vínberjunum áður en það
kaupir þau, þetta er að
sjálfsögðu ekki leyfilegt
en virðist vera séríslenskt
vandamál.“
SIGURÐUR REINHALDSSON,
INNKAUPASTJÓRI MATVÖRU HJÁ
HAGKUPUM, UM VÍNBERJASMÖKK-
UN VIÐSKIPTAVINA. FRÉTTABLAÐIÐ,
27. JÚLÍ.
Mjólkin vinsæl
„Við höfum sáralítið afgangs
til útflutnings því við höfum
þurft að nota alla mjólkina á
innanlandsmarkaðinn.“
GUÐBRANDUR SIGURÐSSON, FOR-
STJÓRI MJÓLKURSAMSÖLUNNAR,
VEGNA MIKILLAR EFTIRSPURNAR
EFTIR ÍSLENSKRI MJÓLK. FRÉTTA-
BLAÐIÐ, 27. JÚLÍ.
ÁNAMAÐKUR Ellefu tegundir ánamaðka
lifa á Íslandi en til samanburðar má geta
þess að nokkrir tugir finnast annars staðar
á Norðurlöndunum.
BJARNI E. GUÐ-
LEIFSSON
Fimmtíu vísindamenn staddir á Íslandi um helgina á ráðstefnu um dýralíf í jarðvegi:
Ellefu tegundir ánamaðka
Leslie Earl Boyd, Banda-
ríkjamaður sem kominn
er af Vestur-Íslendingum,
heimsótti Odd Helgason hjá
ORG ættfræðiþjónustunni í
gær þar sem Oddur lét hann
hafa upplýsingar um alla
íslenska forfeður hans og
ættingja sína á landinu.
Þegar blaðamaður kom á staðinn
hafði þeim Oddi og Leslie ekki
farið ýkja margt á milli, en þeim
hafði samt sem áður tekist að leita
sér upplýsinga í gagnagrunni Odds,
sem haldið er utan um með Espólín-
forriti Friðriks Skúlasonar.
Leslie, sem býr í Markerville í
Bandaríkjunum, heimsækir Ísland
í annað sinn, en hann kom einnig
hingað árið 2001, þá í frí með fjöl-
skyldu sinni. Í þetta sinn kom hann
einn til landsins, gagngert til að
rannsaka tengsl sín við Ísland og
Íslendinga. Hann hefur nú haft
samband við nokkra ættingja sína
hérlendis sem hann segir hafa
tekið sér opnum örmum. Leslie
var bent á að hafa samband við
Odd, þar sem Oddur segir sjálfur
að ættfræðiþjónusta hans sé sú
umfangsmesta á landinu. „Þetta
er eina ættfræðiþjónustan á land-
inu sem er með upplýsingar um
erlenda afkomendur Íslendinga,“
segir Oddur.
Hann segist fá fjöldan allan af
upplýsingum um afkomendur
Íslendinga alls staðar að úr heim-
inum, sem hann safnar síðan í sinn
mikla gagnagrunn. Síðast í gær-
morgun fékk hann ábendingu
póstleiðis og var ekki lengi að
færa þær upplýsingar til bókar.
Grunnur Odds spannar hvorki
meira né minna en tuttugu aldir,
allt aftur til ævafornra Tyrkja-
konunga, ólíkt til að mynda grunni
Íslendingabókar sem einungis
nær aftur til landnáms. Hann
segir alla landsmenn, og fleiri til,
þjóna sér og sínum rannsóknum.
„Þetta er fjölmennasti vinnustað-
ur landsins. Samt er enginn ráð-
inn, enginn rekinn, engir starfs-
lokasamningar og það er enginn á
launum.“ - sh
Leitaði ættingjanna á Íslandi
Á SKRIFSTOFU ODDS Þrátt fyrir að Oddur og Leslie hafi ekki rætt mikið saman gátu þeir þó í sameiningu fundið íslenska forfeður Leslies langt aftur í aldir, og jafnvel fundið alla ættingja
Leslies hérlendis, hversu fjarskyldir honum sem þeir voru. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Opna Ingvars Helgasonar mótið
verður haldið á golfvelli GKG laugardaginn 29. júlí.
Flokkaskipt punktakeppni með forgjöf:
1. flokkur frá 0-10,4 // 2. flokkur frá 10,5-36
Hámarksforgjöf: 24 karlar // 28 konur
Skráning á www.golf.is // Mótsgjald er 3.500 kr.
Vegleg verðlaun í boði ...
1. Sérmælt PING G5 járnasett (6 kylfur)
2. PING G5 driver & PING ferðapoki
3. PING G5 hybrid kylfa & PING ferðapoki
Nándarverðlaun (x6)
PING skópoki
PING ferðapoki
PING Moon golfpoki
„Ingvar Open“
Teiggjöf
Merktir Pinnacle
Exception boltar
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI