Fréttablaðið - 28.07.2006, Side 20
28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR20
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.259 -1,22% Fjöldi viðskipta: 256
Velta: 2.488 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 61,80 -0,80% ... Alfesca
4,00 -0,74% ... Atlantic Petroleum 583,00 +0,00% ... Atorka
6,10 +0,00% ... Avion 32,50 +0,62% ... Bakkavör 46,50 -1,90%
... Dagsbrún 5,37 -0,92% ... FL Group 15,50 -2,52% ... ... Glitnir
16,50 -0,60% ... KB banki 710,00 -1,39% ... Landsbankinn 20,30
-0,98% ... Marel 73,20 +0,00% ... Mosaic Fashions 16,50 -1,20% ...
Straumur-Burðarás 15,60 -1,89% ... Össur 107,00 -1,84%
MESTA HÆKKUN
Avion Group +0,62%
MESTA LÆKKUN
FL Group -2,52%
Bakkavör -1,90%
Straumur-Burðarás -1,89%
Stjórnendur Landsbankans eru ánægð-
ir með grunnafkomu bankans á fyrri
hluta ársins sem skilaði 17,6 milljarða
króna hagnaði fyrir skatta, samanborið
við 6,8 milljarða á sama tíma í fyrra.
Hagnaður bankans fyrir skatta nam 25
milljörðum fyrstu sex mánuði ársins.
Hugtakið grunnafkoma felur í sér að
gengishagnaður af verðbréfum er
bakfærður en á móti er vaxtamunur,
sem nemur kostnaði bankans af því
að vera með fjármuni geymda í bréf-
unum, leiðréttur. Grunnafkoman var
töluvert betri á öðrum ársfjórðungi en
fyrsta fjórðungi, enda var gengishagn-
aður neikvæður á öðrum en jákvæður
á þeim fyrsta.
Bankinn hefur það þó ávallt að
markmiði að fjárfesta í hlutabréfum og
skuldabréfum. - eþa
Grunnafkoma LÍ
eykst milli fjórðunga
Í samræmi við 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er hér með auglýst að álagningu
opinberra gjalda, þ.m.t. tryggingagjalds og ákvörðun vaxtabóta og barnabóta, á árinu 2006 er
lokið á menn, sem skattskyldir eru samkvæmt framangreindum lögum, sbr. I. kafla laga nr.
90/2003.
Álagning gjalda á lögaðila mun liggja fyrir síðar og verður auglýst sérstaklega.
Álagningarskrár með gjöldum manna verða lagðar fram í öllum skattumdæmum föstudaginn
28. júlí 2006. Skrárnar liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðs-
manni skattstjóra eða öðrum þeim stöðum í hverju sveitarfélagi sem sérstaklega hafa verið
auglýstir dagana 28. júlí til 11. ágúst 2006 að báðum dögum meðtöldum.
Álagningarseðlar er sýna álögð opinber gjöld 2006 þ.m.t. tryggingagjald, vaxtabætur og
barnabætur hafa verið póstlagðir og/eða birtir á þjónustusíðu viðkomandi á vef ríkisskattstjóra.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda á menn, sem tilkynnt hefur verið um með álagning-
arseðli 2006, þurfa að hafa borist skattstjóra eigi síðar en mánudaginn 28. ágúst 2006.
28. JÚLÍ 2006
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi Tómas Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
Auglýsing um álagningu opinberra
gjalda á menn árið 2006
Hagnaður Landsbankans á öðrum
ársfjórðungi nam 6.143 milljón-
um króna og hagnaðist bankinn
því um 20,4 milljarða króna á
fyrri hluta ársins. Afkoma bank-
ans er tæpum einum milljarði
betri en meðaltalsspár markaðs-
aðila gerðu ráð fyrir.
Til samanburðar hagnaðist
Landsbankinn um 11,1 milljarð
króna á fyrri hluta ársins í fyrra.
Nam arðsemi eigin fjár fjöru-
tíu prósentum á ársgrundvelli á
fyrstu sex mánuðum ársins.
Rétt eins og í tilfelli KB banka,
sem einnig skilaði uppgjöri
umfram spár, lækkuðu bréf
Landsbankans eftir uppgjörið.
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans, er sáttur:
„Hagnaðurinn á ársfjórðungnum
er sá þriðji mesti í sögu bankans
og kemur til á erfiðu tímabili. Það
er merki um styrk bankans að ná
þetta góðri niðurstöðu við aðstæð-
ur sem þessar.“
Þegar horft er á tölur fyrir
fjórðunginn sést mikill vöxtur í
hreinum vaxtatekjum frá fyrsta
árshluta. Hreinar vaxtatekjur
námu tæpum 13,7 milljörðum
króna, samanborið við 8,9 millj-
arða á þeim fyrsta. Aukningin
kemur að stórum hluta til vegna
hárrar verðbólgu á tímabilinu.
Hreinar þóknunartekjur voru
um 6,9 milljarðar króna og
breyttust nær ekkert milli fjórð-
unga. Hins vegar urðu mikil
umskipti á fjárfestingartekjum
bankans, sem voru neikvæðar
um 1,5 milljarða króna á öðrum
ársfjórðungi en jákvæðar um
11,2 milljarða á þeim fyrsta. Er
þetta rakið til lækkunar á hluta-
bréfamörkuðum.
Sigurjón er sér í lagi ánægð-
ur með auknar vaxta- og þókn-
unartekjur á milli ára. Á fyrstu
sex mánuðunum námu þessar
tekjur alls 36,4 milljörðum
króna og hafa um það bil tvö-
faldast á milli ára.
Rekstrarkostnaður bankans á
öðrum ársfjórðungi var um 9,8
milljarðar króna og hækkaði um
1,7 milljarða frá fyrsta árshluta.
Eignir bankans stóðu í 1.811
milljörðum króna í lok júní og
höfðu vaxið um 406 milljarða frá
áramótum, eða um 29 prósent.
Hins vegar jukust þær aðeins um
2,3 prósent á milli fjórðunga.
Eigið fé bankans stóð í 123 millj-
örðum króna þann 30. júní og
hefur eiginfjárhlutfall bankans
aldrei verið hærra: nam CAD
hlutfall 15,1 prósenti í lok síðasta
árshluta.
Sigurjón segir núverandi stöðu
bankans eiga að tryggja að tekjur
hans verði á hverju ári af stærð-
argráðunni sjötíu milljarðar
króna og árlegur gróði á bilinu
tuttugu til þrjátíu milljarðar, óháð
gengishagnaði.
Á næstunni verði unnið að
fjármögnunarmálum, og auk þess
haldið áfram að vinna úr þeim
yfirtökum sem ráðist var í á síð-
asta ári. Í vikunni gekk bankinn
frá 54 milljarða króna sambanka-
láni til þriggja ára sem er fyrsta
skref að endurfjármögnun fyrir
næsta ár. Þá er stefnt að útgáfu
skuldabréfa í Bandaríkjunum á
seinni hluta ársins. Bankinn
stefnir að því að sækja lán til
almennings í Bretlandi og Hol-
landi með því að bjóða upp á inn-
lánsreikninga í gegnum netið.
eggert@frettabladid.is
Sáttir við uppgjör LÍ
Hagnaður Landsbankans var 6,1 milljarður á öðrum ársfjórðungi. Verðbólga
skilaði mikilli aukningu vaxtatekna á öðrum ársfjórðungi en afkoma af fjár-
málastarfsemi var neikvæð. Áhersla lögð á fjármögnun með innlánum.
HAGNAÐUR LANDSBANKANS Á
ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI OG SPÁR
MARKAÐSAÐILA*
Hagnaður 6.143
Spá Glitnis 2.934
Spá KB banka 7.392
Meðaltalsspá 5.158
* Í milljónum króna
BANKASTJÓRAR LANDSBANKANS, HALLDÓR J. KRISTJÁNSSON OG SIGURJÓN Þ. ÁRNASON
Hagnaður bankans, 6,1 milljarður á öðrum ársfjórðungi, var umfram spár markaðarins.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
MARKAÐSPUNKTAR
Avion Group hefur verið valið besta
alhliða þjónustufyrirtækið á sviði flutn-
inga 2005 til 2006. Breska viðskipta-
blaðið Business Britain Magazine veitir
verðlaunin.
Dagvöruvelta jókst um 1,3 prósent
í júní, samkvæmt smásöluvísitölu
Rannsóknarseturs verslunarinnar. Tólf
mánaða vöxtur mælist nú 2,4 prósent.
Greiningardeild KB banka mælir með
því að fjárfestar minnki við hlut sinn í
Dagsbrún. Telur greiningardeildin að
sanngjarnt verð á bréfum í félaginu sé
5,15 krónur á hlut en 5,8 krónur að tólf
mánuðum liðnum.
Rafmagnsleysi ofan á
Rafmagn fór af stórum hluta City, fjár-
málahverfis Lundúna, í gær, skömmu
eftir að stjórnendur Landsbankans
luku við að kynna hálfs árs uppgjör
bankans fyrir breskum kaupahéðnum.
Var varla líft hjá bankamönnum í City
er sátu kófsveittir fyrir framan tölvurnar
sínar í steikjandi hitanum. Þetta atvik er
kannski til marks um þær erfiðu aðstæð-
ur sem íslenskir bankamenn hafa glímt
við upp á síðkastið, til dæmis hækkandi
vaxtaálag og neikvæða umfjöllun. Stjórn-
endur LÍ segjast hafa orðið þess varir að
mesti skjálftinn sé farinn af mörkuðum.
Nú er bara að vona að þeir nái fluginu
til baka.
Erlend geðvonska
Það er ekki bara hiti og rafmagnsleysi
sem hrjáir bankana á alþjóðamörkuðum.
KB banki fékk fúlar viðtökur hjá Merrill
Lynch í kjölfar síns uppgjörs. Merrill
Lynch hefur verið afar neikvætt í garð
íslensku bankanna og virðast menn
þar lítið hrifnir af viðskiptamódeli
KB banka. Bankanum er nudd-
að upp úr krosseignarhaldi, þrátt
fyrir að unnið hafi verið markvisst
að því að leysa slíkt upp. KB menn
dæsa og segja erfitt að gera slíkum
til hæfis.
Á markaðnum er hvískrað að Merrill
Lynch hafi ráðlagt kúnnum sínum
að skortselja skuldabréf bank-
anna, í fullvissu þess að ekki rofi
til í bráð. Þeir muni því ekki gefa
eftir þá skoðun sína fyrr en í fulla
hnefana.
Peningaskápurinn ...
ÁGÚST OG LÝÐUR GUÐMUNDSSYNIR Bakkavör Group skilaði methagnaði á öðrum ársfjórð-
ungi.
Methagnaður varð af rekstri
Bakkavarar Group á öðrum fjórð-
ungi ársins 2006. Jókst hagnaður
eftir skatta um 83 prósent miðað
við sama ársfjórðung í fyrra og
nam tveimur milljörðum króna.
Var afkoman um hundrað millj-
ónum króna yfir meðaltalsspá
greiningardeilda viðskiptabank-
anna þriggja. Fyrir fyrstu sex mán-
uði ársins nam hagnaðurinn 2,8
milljörðum króna. Hagnaður fyrir
skatta og fjármagnsliði (EBITDA)
nam 6,6 milljörðum króna á fyrstu
sex mánuðum ársins sem var aukn-
ing um 123 prósent milli tímabila.
Eigið fé Bakkavarar nam 27,3
milljörðum króna í lok júní saman-
borið við 17,9 milljarða króna í
árslok 2005 sem er aukning um 52
prósent. Eiginfjárhlutfall, sem
gefur til kynna hve hátt hlutfall
eigið fé er af heildarfjármagni
fyrirtækisins, jókst úr 12,4 pró-
sentum í árslok 2005 í 15,3 prósent
á fyrri helmingi ársins 2006.
Í fréttatilkynningu frá Bakka-
vör Group er haft eftir Ágústi Guð-
mundssyni, forstjóra félagsins, að
afkoman í Bretlandi staðfesti
leiðandi stöðu félagsins á markaðn-
um sem enn frekar hafi verið styrkt
með kaupunum á Laurens
Patisseries og New Primebake. - hhs
Hagnaður yfir
spám hjá Bakkavör