Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 22
28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR22
fólkið í landinu
STAÐURINN
TÖLUR OG STAÐREYNDIR
Postulín, glös og hnífapör
– fyrir brúðhjón og betri veitingahús
R
V
62
10
Opn
una
rtím
i
í ve
rslu
n RV
:
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:0
0
Laug
arda
ga f
rá
kl. 1
0:00
til 1
4:00
Þeir sem fara akandi frá höfuðborginni til Vestfjarða
hafa margir átt góðar griðastundir við þjóðveginn í
Bjarkalundi. Í vetur tóku nýir eigendur við staðnum
og í kjölfarið hefur verið ráðist í nokkrar breytingar.
Freyja Ólafsdóttir kokkur fór með blaðamanni um
staðinn og sagði honum hvað til stendur. „Hér eru
allir að bíða eftir flatskjánum,“ segir hún og bendir
á hvítan flöt á veggnum í matsalnum. „Málið er
hins vegar það að þetta er tréplata sem sett var
fyrir gluggann en það þurfti að taka rúðuna úr til að
koma nýja barborðinu inn. Rúðan fer svo aftur í,“
segir hún og brosir við.
Hún hefur unnið síðastliðin fimm sumur í Bjarka-
lundi en hún kennir í Lágafellsskóla á veturna. „Það
hefur alltaf verið lokað hérna þegar ég fer suður
en nú verður breyting á þar sem Bjarkalundur á að
vera opinn fram á vetur, jafnvel í allan vetur. Ekki er
vanþörf á, því ef menn leggja af stað frá Reykjavík
áleiðis til Barðastrandar eftir klukkan fimm á vet-
urna þá hafa þeir engan áningarstað frá Borgarnesi
og vestur. Svo er þetta kjörinn staður fyrir fyrirtæki
sem vilja bæta andann hjá starfsfólkinu og koma
með það hingað þar sem ekkert gemsasamband
er.“
Ekki láta menn í Bjarkalundi nú hamborgar-
ana og pylsurnar um að laða ferðamenn að,
því ætlunin er að halda fjölskylduhátíð þar um
verslunarmannahelgina með tónlist, uppákomum
og jafnvel leiktækjum.
En til að Bjarkalundur verði til fyrir veturinn
þarf að tvöfalda glerin í gluggum og verður senn
farið í það verk. Einnig hefur nýjum hitablásurum
verið komið fyrir í Bjarkalundi en þau tæki taka
loft í kassa sem er fyrir utan, hita það og blása svo
innandyra.
ATVINNUREKANDINN: HÓTELIÐ OG VEITINGASTAÐURINN BJARKALUNDI
Búa sig undir fyrsta veturinn
Það er sólskin og blíða þeg-
ar Jón Sigurður Eyjólfsson
kemur akandi að Reykhól-
um. Þar búa kraftmiklir og
sjálfsöruggir sveitungar
enda fá þeir auka orku
úr þanginu og vissuna úr
völunni hans Dalla.
„Dæmigerð hjón hér eru karl sem
vinnur í Þörungaverksmiðjunni
og kona sem vinnur á dvalarheim-
ilinu Barmahlíð,“ segir Einar Örn
Thorlacius, sem senn lætur af
störfum sem sveitarstjóri, þegar
hann er beðinn um að lýsa lífinu á
Reykhólum. 26 manns vinna í Þör-
ungaverksmiðjunni sem er stærsti
atvinnurekandinn í hreppnum en
svo kemur Barmahlíð þar sem 18
manns vinna. En svo eru það aðrir
sem eru að bralla eitthvað á eigin
spýtur eins og að framleiða áburð
eða stinningarlyf úr þangi.
Dalli galdrakarl og stinningarlyfið
„Margir gera gys að þessu og kalla
mig Kjartan galdrakarl eftir þess-
um í Strumpunum,“ segir Guðjón
Dalkvist Gunnarsson eða Dalli
eins og hann er kallaður. Blaða-
maður kom að honum í skúrnum
þar sem hann var að hræra í þang-
pottinum og minnti í raun nokkuð
á umræddan Kjartan.
Salan á áburðinum sem unninn
er úr þanginu gengur vel en
eflaust þekkja margir til þessa
vökva sem seldur er í Blómavali
og fleiri stöðum undir nafninu
Glæðir. „Mest hef ég selt sjö tonn
á ári en það verður þó eitthvað
aðeins minna í ár. Þessi vökvi
styrkir grasið en lætur það ekki
spretta neitt meira en ella. Þess
vegna er þetta vinsælt á golfvelli
og þeir sem reka þá eru nokkrir af
mínum stærstu kúnnum.“
En Dalli hefur áhuga á að
styrkja meira en gras og gróður.
„Eitt sinn þegar ég var að sjóða
þangið setti ég matarsóda út í í
stað sóda sem ég nota venjulega
og þá var ég kominn með hið besta
stinningarefni fyrir karla. Reynd-
ar er ég ógiftur svo ég hafði ekk-
ert með það að gera að rannsaka
þetta nánar en eftir því sem ég
best veit er þessi blanda eins
konar Viagra. Ég ræddi við nokkra
gosframleiðendur um að reyna að
markaðssetja þetta sem orku-
drykki en þeir voru ekki að átta
sig á þessu. En kannski næ ég að
stinna upp áhugann hjá þeim,“
segir hann og hlær. Kannski væri
það við hæfi að stinningarlyf væri
framleitt í sveitinni þar sem áður
stóðu Tittlingastaðir og Rúnkhús.
Svo ekki sé talað um Barma sem
standa þar enn og eru hinir fín-
ustu en þar er torfhús fallegt.
Rýnt í framtíðina
Einnig hefur Dalli hafið fram-
leiðslu á völu eins og þeirri sem
forfeður okkar notuðu við völu-
spá. „Þetta er í raun lítið kinda-
bein í liðnum þar sem fótleggur og
lærleggur mætast.“ Því næst sýnir
hann blaðamanni hvernig valan er
notuð. Hann rennir henni um
hvirfilinn nokkra stund, hallar
höfðinu aftur og setur hana milli
augna sér og þylur: „Spákona, ég
spyr þig! Ég skal þig með gullinu
gleðja og silfrinu seðja ef þú segir
mér satt. Annars skaltu í eldi
brenna ef þú skrökvar að mér.“
Því næst spyr hann hvort veðrið
verði gott í Reykjavík á laugar-
dag, það er að segja á morgun. Þá
reisir hann höfuðið svo valan fell-
ur til jarðar og lendir með holuna
upp sem þýðir já. Borgarbúar geta
svo séð á morgun hvort eitthvað
vit sé í völunni.
Sjávarþang í bjór, varalit og
sígarettur
Rétt úti fyrir strönd Reykhóla er
Karlsey en þar stendur Þörunga-
verksmiðjan. Þegar blaðamann
bar að voru Ebenezer Jensson og
Steinunn Lilja Ólafsdóttir að skipa
út þangmjöli. „Þetta er notað alveg
í ólíklegustu hluti,“ segir Ebenezer.
„Mér er minnisstætt þegar hingað
komu hjón og konan kvartaði
mikið undan lyktinni sem er af
þessu en þá svaraði karlinn: „Þú
lætur ekki svona þegar þú ert að
maka þessu framan í þig.“ En það
vill svo til að mjölið er notað í
varalit og alls konar snyrtiduft
sem konurnar setja framan í sig.
Einnig er það komið í lög í Banda-
ríkjunum að sígarettur verða að
hafa efni sem meðal annars er
unnið úr þessu mjöli og gerir það
að verkum að hún verður
sjálfslökkvandi.“
Halldór Óskar Sigurðsson
framkvæmdastjóri bætir við að
mjölið sé notað í efni sem er sett í
bjór til að hann freyði meira. Mest
er þó mjölið notað í fæðubótarefni
og áburð. „Ég borða einnig þurrk-
að og malað klóþang líkt og aðrir
hér. Ég set þetta út á mat í staðinn
fyrir salt.“ segir Halldór. „Það er
kannski þess vegna sem íbúarnir
hérna hafa alltaf verið eins og
gangandi orkuboltar,“ segir
Ebenezer og fer að segja sögur af
grófara taginu úr sveitinni af
kvennamanni miklum frá árum
áður sem átti 14 skilgetin börn
með fjórum konum og mörg börn
vinnukvenna í sveitinni báru svip
hans. Þessar sögur eru ekki
eftir hafandi hér en þær væru
vissulega góð áminning til
þeirra sem ætla að fara að borða
þang eða önnur stinningarlyf.
Orkuboltarnir á Reykhólum
DALLI SPYR VÖLUNA Guðjón Dalkvist Gunnarsson fer með þuluna og spyr svo völuna hvort
veðrið verði gott í Reykjavík á morgun. Hún kvað svo mundu verða og þá er það bara að
sjá hvort eitthvað vit sé í völunni sem hann er að markaðssetja. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
STEINUNN LILJA ÓLAFSDÓTTIR OG EBENEZER JENSSON Þangmjölið sem síðan fer í bjór,
varalit, sígarettu eða eitthvað annað vellur á kerruna fyrir aftan þau Ebenezer og Steinunni
en þangað til hún fyllist segja þau sögur úr sveitinni. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
FRAMKVÆMDASTJÓRINN VIÐ ÞANGIÐ Hall-
dór Óskar Sigurðsson skoðar þangið sem
komið hefur verið með að landi. Sjálfur
setur hann þang í mat sinn í stað salts líkt
og fleiri sveitungar. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
Íbúafjöldi í desember 2005: 255
Íbúafjöldi í desember 1998: 309
Íbúafjöldi í desember 1991: 370
Íbúafjöldi á Reykhólum
í desember 2005: 119
Sveitarstjóri: Einar Örn Thorlacius, nýr
verður ráðinn innan skamms.
Helstu atvinnufyrirtæki: Þörungaverk-
smiðjan, Dvalarheimilið Barmahlíð,
Hótel Bjarkalundur.
Skólar: Reykhólaskóli, Leikskólinn
Hólabær, Tónlistarskóli Reykhóla-
hrepps.
Vegalengd frá Reykjavík: 288
Reykhóla-
hreppur
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI