Fréttablaðið - 28.07.2006, Page 29

Fréttablaðið - 28.07.2006, Page 29
FÖSTUDAGUR 28. júlí 2006 5 ��������������������������������� Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is Opið virka daga frá kl. 10-18 Lokað á laugardögum í júlí w w w .d es ig n. is © 20 06 ������������������������� ��������������������� �������������������������� ��������������������� ������������������������ ��������������������� ������������������������ ��������������������� ������������������������������� ���������������������� ��������������������������� ��������������������� ���������������� ��������������������� ������������������ ��������������������� ��������� ��������������������� �������� � ��������������������� ������������������������ ��������������������� ����������������������� ��������������������� Össur Skarphéðinsson þing- maður segist frekar lélegur í öllum sparnaði en man þó vel sín bestu og verstu kaup í gegnum tíðina. „Bestu kaup gerði ég þegar ég var nýkominn úr námi og var að vinna í Portúgal árið 1986. Ég keypti for- kunnarfagurt leðursófasett frá Madeira á ótrúlega góðu verði. Þóttist ég þá dottinn í lukkupott- inn enda var ég svo heppinn að búa í borg sem íslenskt skipafélag sigldi til og við fengum flutning- inn heim á feikilega góðu verði,“ segir Össur en það eina dýra við innkaupin segir hann hafa verið flutninginn frá Hafnarfirði þar sem skipið landaði og niður á Vest- urgötu en hann kostaði jafn mikið og flutningurinn til Íslands. „Þetta sófasett er ennþá stofuprýði í mínum híbýlum og smekkmenn horfa enn á það öfundaraugum. Það er enn í framúrstefnu í hús- gagnalínu og listamenn spyrja hvar ég hafi fengið þennan kosta- grip,“ segir Össur stoltur og lýsir því næst sínum verstu kaupum. „Það voru Pajoneer hljómflutn- ingstæki sem ég hafði séð auglýst og sá að þau voru til í fríhöfninni í flugstöðinni. Einu sinni kom ég með það heim en það dugði í þrjár vikur. Þegar ég hafði farið með það í viðgerð í þriðja sinn sá ég að þarna hefði ég keypt köttinn í sekknum og þau enduðu niður í geymslu þar sem ég á þau enn og eru á hraðri leið út í öskutunnu,“ segir hann glettinn. Að öðru leyti segist Össur ekki duglegur í sparnaði. Hann kaupi það sem hendi sé næst. „Ég geri mér þó far um að kaupa matvörur í ódýrum verslunum og geri öll mín höfuðinnkaup í Krónunni þar sem hún er nánast í næsta húsi við mig,“ segir Össur og rifjar upp gamalt sparnaðarráð frá fyrri tíð. „Hér áður fyrr tókum við slátur á hverju hausti af því við vorum blönk og það var ódýrt. Síðan héld- um við því áfram af því það var svo gaman og gott,“ segir þing- maðurinn sem gætir þess einnig vendilega að allir silungar sem hann veiðir séu nýttir til heimilis- ins en þráni ekki í frystikistunni. „Sumir stórveiðimenn þurfa að byrja veiðitímabilið á að henda úr kistunni löxum frá árinu áður.“ Á háskólaárum sínum nýtti Össur sér einnig líffræðikunnáttu sína til mikilla búbóta. „Ég bjó til úr sykri og ýmsu öðru mjöð sem gladdi bæði mig og vini mína. En það er auðvitað kolólöglegt og virðulegur alþingismaður getur ekki leyft sér að grípa til slíkra ráða lengur og hef ég því lagt heimilisiðnaðinn af,“ segir Össur glaðlega enda staddur á flugvelli á leið í sína fyrstu eiginlegu sólar- landaferð. solveig@frettabladid.is Ódýrt að taka slátur Össur lagði niður ólöglegan heimilisiðnað eftir að hann varð þingmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Útsöluvörur í verslununum Whistles og All Saints í Kringlunni eru nú komnar á 50 til 70 prósenta afslátt. Enn fremur er boðið upp á þrjár vörur á verði tveggja, það er ef keyptar eru tvær vörur fæst sú þriðja og ódýrasta ókeypis með. Á útsölu í Whistles og All Saints eru föt, skartgrip- ir og skór. Flestar útsölu- vörur eru úr vorlínunni en einnig er þónokkuð úr sum- arlínunni. Enn fremur eru vörur frá því í vetur á 1.500 krónur stykkið. Þrjár á verði tveggja Ef keyptar eru tvær vörur í verslununum Whistles og All Saints fæst sú þriðja ókeypis. 50 til 70 prósenta afsláttur er á fötum í Whistles og All Saints. Verslunin Anas í Firðinum í Hafnarfirði selur allar sín- ar vörur á einstökum afslætti næstu daga. Vandaður kvenfatn- aður í Anas er á gjafverði um þess- ar mundir, að sögn verslunarstjór- ans. Verið er að rýma til fyrir haustlínunni og því eru flíkurnar sem fyrir eru seldar á verði frá 1.000 upp í 5.000 krónur. Um danska hönnun er að ræða, bæði sparifatnað og sportlegri flíkur og geta margar þeirra talist til heilsársfatnaðar. Merkin eru eink- um Créton og Carla. Nefna má að jakkar sem áður kostuðu um 20.000 krónur fást á 5.000 krónur svo nú er gullið tækifæri. Gæðaföt á gjafverði Jakki í Anas.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.