Fréttablaðið - 28.07.2006, Qupperneq 44
■■■■ { ferðahelgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■12
Þótt það sé voðalega gaman að ferðast um landið og kynnast landi og þjóð
þá er oft ekki verra að hafa eitthvað fyrir stafni, sérstaklega fyrir yngstu
kynslóðina.
Fréttablaðið kíkti við í leikfangaversluninni Leikbæ og athugaði hvað
er hægt að dunda sér við út í náttúrunni þegar allt annað er ekki nógu
spennandi.
Ansi vígalegur traktor á
9.980 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Bregðum á leik
Á ferðalögum er ekki verra að hafa skemmtileg leikföng
við hendina til að finna barnið í sjálfum sér.
Spurning hvort eitthvað
sé hægt að veiða með
þessum háf? 395 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Sláttuvél á 2.980 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Hefðbundnar sápukúlur
á 145 kr.
Skóflur frá 150 kr., fata á
580 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Geðveik Spiderman sundlaug
á 3.950 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Leikfangabílar frá 580
kr. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
„Ég fór á samtals tvær útihátíðir,
báðar í Húsafelli. Þetta hefur verið
árin 1969 og 70 og ég 15 og 16 ára
gamall. Eflaust er ég búinn að end-
ursmíða minningarnar eitthvað en
sumt gleymist aldrei,“ svarar Sig-
urður þegar hann er beðinn að rifja
upp fyrstu kynni sín af verslunar-
mannahelgarfjöri á útihátíðum. „Ég
hafði mikinn áhuga á tónlist á þess-
um árum og þarna var Trúbrot með
Rúna Júl. í broddi fylkingar. Maður
fylgdist vel með honum þegar fór
að líða á kvöldið því þá hljóp hann
í annan gír og fór til dæmis að spila
á bassann aftan við hnakkann á sér.
Það fannst manni mjög töff. Svo
voru þarna ljósaperur eftir sviðs-
brúninni ofanverðri og Rúnar braut
þær allar í röð með tambúrínu í
takt við tónlistina og hoppaði ofan
á brotunum á einhverjum indíána-
mokkasínum. Þetta var auðvitað
rosalega flott. Sem minning stendur
það algerlega upp úr.“
Sigurður segir sportfatnað ekki hafa
þótt áhugaverðan á þessum árum.
„Maður klæddi sig með hliðsjón af
því að maður gæti virkað sem best
á hitt kynið og það voru hvorki
hlý föt né praktísk sem maður var
í heldur bara það flottasta sem
maður átti, þar á meðal blank-
skórnir. Sumir voru gangandi um
í svörtum sorppokum til að verj-
ast harkviðrinu,“ rifjar hann upp.
Hann kveðst hafa sofið eins lítið og
hann gat á hátíðunum til að missa
ekki af neinu og fæðið var kapít-
uli útaf fyrir sig. „Maður var að éta
súkkulaði og annað sjoppukyns en
í annarri ferðinni var fermingar-
prímusinn notaður til að hita dollu
af saxbauta sem var uppistaðan í
fæðu þeirrar helgar.“
Síðan hefur Sigurður verið stilltur
um verslunarmannahelgar. „Maður
fékk einhvernveginn nóg af þessari
vosbúð og þetta var fullur skammt-
ur af útihátíðum fyrir lífið,“ segir
hann og bætir við: „Ég var alltaf í
bænum eftir þetta og þar myndaðist
ákveðin samkennd með þeim sem
ekki fóru neitt.“
Á blankskónum í Húsafelli
SIGURÐUR G. VALGEIRSSON SVAF EINS LÍTIÐ OG HANN GAT Á
ÚTIHÁTÍÐUNUM Á HÚSAFELLI Í GAMLA DAGA.
Sigurður fékk sinn skammt af útihátíðum fyrir lífið þegar hann var á táningsaldri og heldur
sig gjarnan í borginni um verslunarmannahelgar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Spiderman
bolti á 550 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Skemmtilegur
boltaleikur á
3.895 kr.
Flugdreki er ómiss-
andi í góðu veðri.
Þessi er á 990 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Það er alltaf gaman að
sippa en þessi sippubönd
eru á 299 kr. stk.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Allir hafa gaman að vatnsblöðru-
slag. 50 kr. pakkinn.
Hér á að kasta boltum
í körfurnar til að fá stig.
Leikur fyrir alla fjölskylduna
á 590 kr.
Nei þetta er ekki rjómaís heldur
sápukúlur á 195 kr.
Eftirminnileg ferðahelgi
Hamborgarakóngurinn Tómas
Tómasson, eigandi Hamborgara-
búllu Tómasar, segist aldrei fara
í útilegu án þess að taka með sér
flatkökur. „Þær eru alveg ómiss-
andi í útileguna. Það er bara eitt-
hvað svo útilegulegt og íslenskt
að borða flatkökur í útilegu,“ segir
Tómas. „Flatkökur með rækjusalati
eru náttúrulega það allra besta,“
segir hann, en það kemur nokkuð á
óvart að hann skuli hvergi minnast
á hamborgara.
Flatkökur ómissandi
Ómissandi í ferðalagið
Það er meira að segja hægt
að bjóða fólki í kaffi og með
því – bollastell á 840 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN