Fréttablaðið - 28.07.2006, Side 54

Fréttablaðið - 28.07.2006, Side 54
■■■■ { ferðahelgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■22 Allar nýjustu upplýsingar og fréttir á ensku á vefnum reykjavik.com og í blaðinu Reykjavikmag. Upplýsingar, viðburðir, afþreying og fréttir Allir klárir í tjöldin „Ætli fyrsta verslunarmannahelgin sé ekki langeftirminnilegust,“ segir Freyr. „Þá var ég rótari í hljóm- sveitinni Faraldi á útihátíðinni á Laugum árið 1986, sem var nú ekki leiðinlegt hlutskipti fyrir tólf ára gutta skal ég segja þér.“ Freyr var í för með frænda sínum sem var meðlimur í hljómsveitinni, en að hans sögn var hún samblanda af Icy-tríóinu, Mannakornum og fleirum góðum böndum frá þessum tíma. Freyr kveður hátíðina hafa verið afar skemmtilega, þar sem mikið hafi verið lagt upp úr dagskránni. „Þarna voru alls kyns uppátæki, eins og til dæmis aflraunakeppni, auk þess sem landsþekktir skemmti- kraftar tróðu upp. Greifarnir, sem voru upp á sitt besta, fluttu sitt fræga útihátíðarlag „Útihátíð“. En ætli hápunktur hátíðarinnar hafi samt ekki verið þegar ég sá söng- konuna Helgu Möller í sólbaði, en hún var þarna komin til að skemmta með Icy-tríóinu.“ Að mati Freys fylgir verslunar- mannahelgin frá árinu 1988 fast á hæla hinnar hvað skemmtilegheit varðar. „Mamma skutlaði okkur Guðna vini mínum, þá fjórtán ára gömlum, á tjaldsvæðið á Lauga- vatni. Í það skipti var engin skipu- lögð dagskrá í gangi. Það kom þó ekki að sök þar sem við vorum með okkar eigið tónlistaratriði og vökt- um vinsældir viðstaddra með söng og gítarleik.“ Freyr segir seinni helgina þó helst minnistæða fyrir það að hafa fengið fyrsta kossinn. „Á milli atriða náði ég að smella kossi á íslenska stelpu sem bjó í Svíþjóð. Ég var líka svo lánsamur að vinna 10 lítra af mjólk í skafmiðakeppni þannig að við drukkum mjólk út í eitt,“ bætir hann við og hlær. roald@frettabladid.is Hápunkturinn Helga Möller í sólbaði FREYR EYJÓLFSSON DAGSKRÁRGERÐARMAÐUR UM EFTIRMINNILEGAR VERSLUNARMANNAHELGAR. Freyr segir tvær verslunarmannahelgar sérstaklega eftirminnilegar, aðra vegna þess að þá hafi hann unnið 10 lítra af mjólk í skafmiðakeppni. MYND/HÓLMFRÍÐUR ANNA BALDURSDÓTTIR. Þegar farið er í tjaldferðalag með fjölskylduna getur ýmiss konar búnaður aukið þægindin til mikilla muna. Í dag er til svo mikið úrval hluta sem hægt er að hafa í og með tjaldinu að manni líður nánast eins og í litlum kofa þegar dvalið er þar inni. Nýja skátabúðin setti upp tjald með öllum helsta búnaðinum sem hentar fjölskylduferðalagi. Allar vörurnar er hægt að fá í versluninni í Faxafeni 8. Eftirminnileg ferðahelgi Tjald – Sala 4. Þessi tjöld eru frábær fyrir þá sem vilja hafa mikið pláss og góða birtu í rúmgóðu fortjaldi. Þolir íslenska veðráttu þar sem tjaldið er með sterkum fibersúl- um og með eina mestu vatnsheldni (4.000 mm) á Íslandi í fjölskyldu- tjöldum. Verð 39.995 kr. Tvöfalt rafmagnskælibox, bæði fyrir kælikubba og 12 volta rafmagn (tvö lok). Tilboð 9.995 kr. Sterk loftdýna með innbyggðri pumpu. Tilboð 2.995 kr. Minni stóll, tilvalinn fyrir börn. 995 kr. Útileguborð sem hægt er að leggja saman. Tilboð 2.995 kr. Gaskút- ar. frá 395 kr. Prímus. 2.995 kr. Solo teflonhúð- að pottasett með pönnu. 2.995 kr. Útilegusett með diskum, hnífum, göflum, skeiðum og glösum. 1.495 kr. Sterkir og vandaðir álstólar með örmum. Tilboð 2.495 kr. Flottir Aztec svefnpokar fyrir fjölskylduna. Frá 4.995 kr. Rafmagns- lukt, gengur fyrir AA batteríum. 1.495 kr.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.