Fréttablaðið - 28.07.2006, Qupperneq 58
■■■■ { ferðahelgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■26
Vaxandi fjöldi fólks sækir í að
upplifa víðernin og njóta óbyggð-
anna. Þessi þróun er fagnaðarefni
og eykur skilning fólks á nauðsyn
þess að vernda náttúruna, en um
leið felur hún í sér vaxandi hættu
á náttúruskemmdum af manna-
völdum. Því er brýnt að ferðafólk
umgangist náttúruna af virðingu og
varfærni.
Aðstandendur átaksins „Áfram
veginn – á réttum slóðum“ vilja
leggja sitt að mörkum til að
vekja ferðafólk til umhugsunar
um náttúruna og umgengni við
hana. Aðstandendur átaksins eru
Ferðaklúbburinn 4x4, Vélhjóla-
íþróttaklúbburinn, Ferðafélag
Íslands, Útivist, Umhverfisstofn-
un, Landgræðsla ríkisins og Land-
vernd.
Umhverfisboðorð ökumanna
- Berum virðingu fyrir náttúrunni
og skiljum við hana eins og við
komum að henni – og helst betur.
- Ökum ekki utan vega nema á snjó
og frosinni jörð í samræmi við nátt-
úruverndarlög.
- Ökum ekki slóðir sem hefur verið
lokað vegna aurbleytu eða þar
sem hætta er á að slóðir spillist af
umferð.
- Myndum ekki ólöglega slóða.
- Sveigjum ekki af vegi eða slóð til
að forðast polla og ófærur.
- Gætum varúðar þegar snúa þarf
við á þröngum vegum og slóðum.
- Ökum ekki eftir þekktum, fjölförn-
um göngu- eða reiðleiðum.
- Lágmörkum útblástursmengun og
förum gætilega með óumhverfis-
væn efni.
- Samþykkjum ekki óábyrga ferða-
mennsku annarra.
- Berum virðingu fyrir þörfum ann-
arra útivistarhópa og sýnum öðru
ferðafólki kurteisi og hjálpsemi.
Áfram veginn
- á réttum slóðum
Átak gegn utanvegaakstri.
Þó að jeppar og torfæruhjól séu skemmtilegur ferðamáti verður að virða bann um utan-
vegaakstur, hvert sem farið er.
Á tjaldsvæðum gildir almennt að
bílar eru leyfðir á svæðinu svo lengi
sem pláss leyfir. Síðustu ár hefur
mikil aukning verið á tjaldvögn-
um, fellihýsum og húsbílum og eru
hefðbundin tjöld því á töluverðu
undanhaldi. Í votviðri er oft gripið
til þess ráðs á tjaldsvæðum þó að
banna bílum að leggja í grasinu
vegna þess að grasið breytist fljótt í
drullusvað þegar bílar keyra á því.
Bílar &
tjaldsvæði
Bílar eru ekki æskilegir
á grasi í rigningu.
„Við vorum að setja upp nýja
göngubrú við skálann Strút og
höfum síðustu ár verið að bæta
aðstöðuna, bæði í skálanum og
við hann,“ segir Skúli Skúlason
hjá Útivist þegar hann er inntur
frétta. Skálinn Strútur tekur 26
manns í gistingu og er á Syðri-
Fjallabak, milli Mælifells og Veð-
urháls og Skúli segir hann eitt af
best geymdu leyndarmálum leið-
arinnar um Syðri-Fjallabak. Samt
er hann til í að aflétta leyndinni
og lýsa leiðinni þangað. „Mælifell
er áberandi kennileiti sem stendur
upp úr Mælifellssandi. Þar er beygt
til norðurs inn í gil og innst í því
stendur skálinn í mjög skemmti-
legu dalverpi. Þangað er svona
sex kílómetra spotti frá aðalveg-
inum um Syðri-Fjallabak.“
Skúli segir Strút hafa verið vígð-
an 2002 en síðan sé búið að setja
upp snyrtiaðstöðu og í vor hafi
einangrun verið bætt í gólfið og
skipt um gólfefni. „Strútur er í
stíl við kröfurnar í dag og tjald-
stæðið í kring er smám saman að
verða nokkuð boðlegt en þar eins
og víða á Fjallabaki er gróðurinn
viðkvæmur þannig að við höfum
styrkt það í samráði við Land-
græðsluna.“
Af því að skálinn stendur spöl
frá aðalveginum segir Skúli viss
rólegheit ríkja þar. Þó sé hann
notaður af gönguhópum sem
fara um svokallaðan Strútsstíg
úr Hólaskjóli í Hvanngil og góð
klukkutíma ganga er úr skálanum
að Strútslaug sem vinsælt er að
baða sig í. Reyndar segir hann líka
Strútsskálann allvinsælan áfanga-
stað vélsleðamanna og jeppa-
manna að vetrinum. En er skálinn
alltaf opinn?
„Hann er opinn yfir sumarið og
þar er skálavörður sem verður
eitthvað fram í ágúst en í annan
tíma er skálinn lokaður og þá þarf
að fá lykil hjá okkur í Útivist,“
segir Skúli að lokum.
Innst í stóru gili stendur hús
Hinn vistlegi Strútsskáli Útivistar er eitt af vel geymdum leyndarmálum Syðri-Fjalla-
baksleiðar.
Kíkt út um gluggann. MYND/GUÐNI RUNÓLFSSON
Slakað á í Strútslaug. MYND/STEINAR FRÍMANNSSON
Gönguhópur við Strútsskála.
„Ég og konan mín gengum ásamt
vinahjónum okkar á Sveinstind
fyrir skemmstu. Við gengum inn
með Fögrufjöllum Skaftármegin,
síðan gengum við inn í Grasver við
Skaftána og aftur Langasjávarmeg-
in í gegnum Fagrafjörð,“ segir Einar
Torfi sem gekk í um 7 klukkutíma
á dag, fjóra daga í röð. „Við vorum
þó ekki að ná að fara yfir meira en
15-17 kílómetra á dag,“ bætir hann
við.
„Landslagið þarna er svo flott og
það er meira að segja fallegt hvern-
ig þessi margumtalaði leir í Skaftá
myndar svona eins til tveggja metra
þykk leirlög. Síðan mótast þetta til
með rigningarvatni og þá fer þetta
að líkjast einskonar æðahnútum,
þetta er mjög sérstakt. Það eru þó
ekki margir sem eru hrifnir af þess-
um framburði úr ánni.“
Þrátt fyrir að starfa hjá fyrirtæki
sem sérhæfir sig í leiðsögn á fjöll-
um segist Einar þó ekki komast jafn
mikið á fjöll og hann vildi. „Ég vildi
að ég kæmist meira, það kemur fyrir
að maður lokast inni á skrifstofunni
á háannatíma.“ Aðspurður um fal-
legasta staðinn á Íslandi að sínu mati
segist Einar vera heillaður af Norð-
urdal í Skaftafellsfjöllum. „Við gist-
um í dalnum eina nótt í skipulagðri
ferð sem við förum á hverju ári.
Þarna eru fjögur jökullón og útsýnið
frá gistisvæðinu yfir jölkullónin og
líparít fjöll er brjálæðislega fallegt.
Þetta er einfaldlega frábært.“
Um fjöll og firnindi
Einar Torfi Finnsson, markaðsstjóri Íslenskra fjallaleið-
sögumanna ehf., hefur átt margar eftirminnilegar ferð-
ir út fyrir malbikið. Aðspurður um eftirminnilegustu
ferðirnar segir Einar að göngur um hálendið með allt á
bakinu séu honum að skapi.
Einar Torfi Finnson markaðsstjóri Íslenskra fjallaleiðsögumanna.