Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 88
Nylon-stelpurnar þykja líklegast-
ar til að verða „heitasta“ stúlkna-
sveitin í Bretlandi ef marka má
niðurstöðuna úr vefkönnun götu-
blaðsins The Sun. Keppnin stóð á
milli þeirra og hljómsveitarinnar
Stonefoxx en íslensku stelpurnar
sigruðu með rússneskri kosningu,
rúmlega 91 prósent atkvæða féll
þeim í skaut.
Nylon gaf fyrir nokkru út smá-
skífuna Loosing a Friend í Bret-
landi og fór hún hæst í 29. sæti en
féll niður í 52. sætið eftir eina
viku.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá var þetta árangur sem búist
hafði verið við og ætla aðstand-
endur flokksins að leggja enn
meira á sig fyrir næsta lag sem
nú er verið að taka upp. ■
Nylon sigurvegari hjá The Sun
NYLON Sigruðu í vefkönnun á vegum götublaðsins The Sun en þær þykja líklegastar til að
verða næsta vinsælasta stúlknasveitin í Bretlandi.
KVIKMYNDIR
[UMFJÖLLUN]
Pirates of the Caribbean: The
Curse of the Black Pearl varð
öllum að óvörum smellur árið
2003. Rétt eins og alltaf í Holly-
wood, þegar kvikmynd nær hæstu
hæðum í miðasölunni, verður að
búa til framhaldsmynd og nú eru
þær ekki bara ein heldur tvær.
Pirates of the Carabbean: Dead
Man’s Chest hefst á því að hjóna-
leysin Will Turner og Elizabeth
Swann eru handtekinn fyrir að
hafa aðstoðað Sparrow á flótta
undan réttvísinni af lávarðinum
Cutler Beckett. Beckett gerir sam-
komulag við Turner um að hann
finni Sparrow og fái hjá honum
áttavita sem er þeim hæfileika
gæddur að geta vísað veginn á
þann hlut sem stendur viðkom-
andi hjarta næst. Þegar Turner
hefur loks upp á Sparrow er hann
í vanda staddur (fyrir utan mann-
ætur sem hafa gert hann að Guði
og ætla sér að éta hann) því
sæskrímslið Davy Jones á inni hjá
honum sálina eftir að hafa lyft
Svörtu perlunni upp af hafsbotni
fyrir þrettán árum. Komið er að
skuldadögum en skipstjórinn klóki
hyggst að sjálfsögðu komast hjá
því að borga með öllum tiltækum
ráðum. Vandamálið er að lausnin
liggur grafin í kistu á einskis-
mannslandi og lykillinn að henni
hangir utan um hálsinn á Davy
Jones.
Dead Man’s Chest er að sjálf-
sögðu uppfull af flottum hasarat-
riðum, skylmingasenum og glæsi-
legum tæknibrellum. Sæskrímslin
eru einstaklega vel gerð og þar fer
fremstur í flokki Davy Jones sem
lítur út fyrir að vera mannlegur
kolkrabbi. Allar persónur mynd-
arinnar eru einhvers konar erki-
týpur, meðal annars skipsverji
með páfagauk á öxlinni og tveir
heimskir félagar sem henda fram
fimmaurabröndurum í miðju stuð-
inu. Allt kórrétt eftir ákveðinni
formúlu sem ætti að halda áhorf-
andanum við efnið. Vandamálið
við Dead Man’s Chest er að hún er
númer tvö, hennar hlutverk er að
byggja upp spennu fyrir lokakafl-
ann en standa jafnframt á eigin
fótum. Þar sem þríleikurinn varð
ekki til fyrst heldur er skapaður
vegna vinsælda fyrstu myndar-
innar er söguþráðurinn heldur
klúðurslegur og nánast asnalega
flókinn á köflum með alltof mörg-
um útúrdúrum.
Johnny Depp heldur uppi merki
fyrri myndarinnar með stanslausu
stuði og Jack Sparrow er einhver
allra skemmtilegasta persóna sem
þessi stórkostlegi leikari hefur
alið af sér. Bill Nighy er óþekkjan-
legur í hlutverki Davy Jones og
Stellan Skarsgaard hæfilega þung-
lyndur og leiður sem Bootstrap
Bill, faðir Will Turner. Ungstirnin
Keira Knightley og Orlando Bloom
eru því miður full saklaus og hálf
leiðinleg í sínum hlutverkum, ein-
hver þyrfti að kýla Bloom ærlega
í andlitið og gefa honum romm-
flösku til að hann verði trúverðug-
ur sjóræningi eða í það minnsta
sjómaður.
Dead Man’s Chest er ágætis
ævintýramynd en stendur forvera
sínum svolítið að baki. Skemmtun-
in er í fyrirrúmi og leikstjórinn
Gore Verbinski sér til þess að
engum leiðist í þá rúma tvo tíma
sem myndin er. Kannski eru það
bara örlög miðkaflans að falla í
gleymskunnar dá en Dead Man’s
Chest tekst að skilja eftir sig
spennu fyrir síðustu myndina þar
sem öllu verður tjaldað til og það
var ef til vill alltaf markmiðið.
Freyr Gígja Gunnarsson
Meðalgóður millikafli
PIRATES OF THE CARIBBEAN: DEAD MAN‘S CHEST
LEIKSTJÓRI: GORE VERBINSKI
Aðalhlutverk: Johnny Depp, Bill Nighy, Orlando Bloom og Keira Knightley
Niðurstað: Dead Man’s Chest er fínasta ævintýramynd en stendur forvera sínum svolítið að baki.
Myndin er meðalgóður millikafli sem tekst að byggja upp spennu fyrir lokakaflann.
Meira á www.kreditkort.is/klubbar
James Bond fyrir unglinga
Myndin er gerð eftir fyrstu metsölubók Anthony Horowitz um ung-
linginn Alex Rider sem uppgötvar að nýlátinn frændi hans var í
bresku leyniþjónustunni. Þó hann sé aðeins 14 ára neyðist Alex til
að hjálpa leyniþjónustunni við að finna illmenni sem ætlar að beita
efnavopnum í Bretlandi. Frábærir leikarar í hörkuspennandi mynd.
MasterCard korthafar fá miðann á 600 kr. gegn því að
greiða með MasterCard.
Tilboðið gildir á meðan myndin er í sýningum.
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
Milla Jovovich í mögnuðum
Sci-Fi spennutrylli!
FRÁ HÖFUNDI BRING IT ON
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þinu?
ADAM SANDLER, KATE BECKINSALE OG
CHRISTOPHER WALKEN Í GAMANMYND
ÁRSINS
Sprenghlægileg grínmynd með
Íslandsvininum Rob Scheider úr
Deuce Bigalow og John Heder úr
Napoleon Dynamite!
SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 8 og 10.40
ULTRAVIOLET kl. 4.50 og 8 B.I. 12 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 3 og 5
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 3, 5, 7 og 9
SÝND Í LÚXUS ENSKT TAL kl. 3 og 5
STICK IT kl. 3, 5.30, 8 og 10.20
CLICK kl. 10.10 B.I. 10 ÁRA
RAUÐHETTA ÍSL. TAL kl. 3
SILENT HILL kl. 5.20, 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
STORMBREAKER kl. 6 og 8
THE BENCHWARMERS kl. 8 og 10 B.I. 10 ÁRA
CLICK kl. 5.30, 8 og 10.10 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE SÍÐ. SÝNINGAR kl. 5 og 10 B.I. 14 ÁRA
SILENT HILL kl. 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
STORMBREAKER kl. 6, 8 og 10
STICK IT kl. 6
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
ATH
: sí
ðus
tu
sýn
ing
ar