Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.07.2006, Qupperneq 94

Fréttablaðið - 28.07.2006, Qupperneq 94
 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR46 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 opið alla laugardaga 11-14 Á GRILLIÐ! NÝR HUMAR, LÚÐA, VILLTUR LAX, SKÖTUSELUR og KEILA Á grillið! Nýr humar, lúða, sólþurrkaður saltfi skur, skötuselur og keila. LÁRÉTT 2 asni 6 belti 8 tala 9 kóf 11 hljóm 12 smápeningar 14 sagði 16 hvað 17 gæfa 18 kærleikur 20 ónefndur 21 viðlag. LÓÐRÉTT 1 rita 3 klaki 4 XIV 5 hjör 7 læðast 10 útsæði 13 einkar 15 spyrja 16 rámur 19 drykkur. LAUSN LÁRÉTT: 2 fífl, 6 ól, 8 sjö, 9 kaf, 11 óm, 12 aurar, 14 mælti, 16 ha, 17 lán, 18 ást, 20 nn, 21 stef. LÓÐRÉTT: 1 bóka, 3 ís, 4 fjórtán, 5 löm, 7 laumast, 10 fræ, 13 all, 15 inna, 16 hás, 19 te. „Elle Macpherson var hér á landi um helgina í fríi og hafði samband við mig til að spjalla. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hún kemur hingað,“ segir Georg Guðni Hauks- son myndlistarmaður. Hann vill þó lítið tjá sig um samskipti sín við fyrirsætuna. Georg Guðni og Elle þekkjast síðan hann hélt myndlistar- sýningu í Los Angeles í janúar og hreifst hún af málverkum hans og festi kaup á einu þeirra. Georg Guðni hefur oft verið kallaður bjargvættur íslenska landslagsmálverksins og vakið mikla athygli fyrir falleg lands- lagsmálverk hérlendis og erlendis. Á döfinni hjá honum eru bæði sýn- ingar og bókaútgáfa. „Það eru erlendir aðilar í Þýskalandi sem eru að undirbúa bók um mig og list mína sem kemur út þar í landi bráðlega.“ Georg Guðni býr og starfar í Reykjavík og hefur haldið fjölda einkasýninga bæði hér heima og á erlendum vígstöðvum. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og við Jan Van Eyck Akademie í Maastricht á árunum 1985-1987. Georg hlaut Menningar- verðlaun DV árið 1988 og hefur verið úthlut- að listamannalaunum samtals fjórum sinnum. Elle Macpherson er leikkona og ofur- fyrirsæta sem hefur haft gælunafnið Kroppurinn. Hún er áströlsk að upp- runa og hefur verið á forsíðum allra helstu tískutíma- rita heims enda talin tekjuhæsta ofurfyrirsæta síns tíma ásamt Naomi Campell, Cindy Crawford og Christy Turlington. Einnig hefur hún komið fram í fjöldanum öllum af bíómyndum á borð við Sirens, Jane Eyre og If Luck Fell en einnig sást hún í nokkrum þáttum af sjónvarps- þáttaröðinni vinsælu Vinum eða Friends þar sem hún lék meðleigj- anda Joey. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Georg Guðni kemst í kynni við stórstjörnur því þegar leikarinn Viggo Mortensen var staddur hér á landi heillaðist hann einnig af landslagsmálverkum hans. Viggo gaf út bók sem heitir „Strange Familiar“ með verkum Georgs Guðna í vor og einnig hafa þeir haldið sýn- ingu saman í Los Angeles. alfrun@frettabladid.is GEORG GUÐNI HAUKSSON: ENN Í SLAGTOGI MEÐ STÓRSTJÖRNUM Fékk Elle Macpherson í heimsókn um helgina GEORG GUÐNI HAUKSSON Hefur heillað stjörnurnar með fallegum landslagsmálverkum. Endurnýjaði kynnin við Elle Macpherson þegar hún var stödd hér á landi um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI TEKJUHÆSTA OFURFYRIRSÆTA HEIMS Elle Macpherson var stödd hér á landi um helgina og er það víst ekki í fyrsta sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES VIGGO MORTENSEN Danski leikarinn er mikill aðdáandi Georgs Guðna og hefur meðal annars gefið út um hann bók. FRÉTTIR AF FÓLKI Velgengni Magna heldur áfram í Rock Star: Supernova en hann er nú einn ellefu þátttakenda sem eftir eru í þættinum eftir að Phil Ritchie var sendur heim aðfaranótt fimmtudags. Okkar maður var aldrei í hættu en Magni söng lagið Heroes eftir David Bowie sem fékk enga glimrandi dóma frá þeim Gilby Clarke, Dave Navarro, Tommy Lee og Jason Newsted. Magni skartaði glæsilegum Les Paul-gítar en fékk þó ekkert sérstakt hól fyrir gripinn. Vinsældir íslenska söngvarans hafa aðeins dvínað á heimasíðunni supernovafans.com en þegar best lét voru tæplega áttatíu prósent þeirra sem greiddu atkvæði á því að Magni ætti að verða næsti söngvari hljóm- sveitarinnar. Nú hefur söngvarinn rúm sjötíu prósent atkvæða á bak við sig þegar fimmtán þúsund gestir hafa látið skoðun sína í ljós en söngkonan Dilana Robichaux kemur næst með rúm fimmtán prósent. Veðurfréttamaðurinn Sigurður Þ. Ragnarsson hefur spádómsgáfu á fleiri sviðum en þegar kemur að veðrinu. Siggi stormur tók þátt í veðmáli starfs- manna fréttastöðvarinnar NFS um hvaða land myndi sigra HM í knattspyrnu í sumar og gerði sér lítið fyrir og sigraði. Siggi stórgræddi á veðmál- inu og hafði upp úr krafsinu tuttugu kassa af bjór. Mun kappinn hafa haft á orði að ótrúlegt skuli hafa verið að vinnufélagar hans skuli hafa lagt í hann, manninn sem vinnur við að spá og spekúlera. Mikil gleði ríkir nú í herbúðum stór-stjörnunnar Silvíu Nætur. Nýlega var tilkynnt að helsti samstarfsmaður hennar, Gaukur Úlfarsson, eigi von á barni með kærustu sinni, fyrirsætunni Dagbjörtu Ylfu Geirsdóttur. Þau skötu- hjúin studdu bæði rækilega við bakið á drottningunni á Euro- vision í Aþenu, Gauk- ur sem umboðsmað- ur og Dagbjört Ylfa í umsjón búninga dívunnar. Nú er talað um að Silvía ætli að launa þeim greiðann með því að bjóða sig fram í hlutverk guð- móður barnsins. -hdm Íbúar Seyðisfjarðar hafa glaðst mjög yfir þeim fréttum að eina bókaverslun bæjarins muni áfram haldast í rekstri. Helgi Örn Péturs- son, fyrrum meðlimur hljómsveit- arinnar Singapore Sling ætlar að fá íbúana til þess að lesa og skrifa meira, en hann tók við rekstri bóka- verslunarinnar um miðjan júní. Ætlar hann að brydda upp á ýmsum nýjungum í versluninni og eru nokkrar þeirra nú þegar orðnar sýnilegar. Komið er kósí sófahorn í verslunina þar sem gestir geta tyllt sér niður, flett í bókum eða kíkt á netið og svo er farið að selja geisla- diska frá Smekkleysu og 12 tónum í versluninni. Helgi Örn útskrifað- ist frá myndlistardeild Lista- háskólans í vor og flutti þá með fjölskylduna austur og kann afar vel við sig. Helgi Örn er ekki í slæmum félagsskap á Seyðisfirði því myndlistarmenn sækja í síauknum mæli þangað og margir þeirra hafa keypt sér hús á staðn- um. „Ég verð að sjálfsögðu með allar nauðsynlegar myndlistarvörur hérna og svo ætla ég að leggja áherslu á að vera líka með bækur um myndlist og þá sérstaklega um Dieter Roth sem var mikill unn- andi Seyðisfjarðar.“ Sjálfur ætlar Helgi Örn að vera með vinnustofu í versluninni og þannig ná að sinna bæði listinni og afgreiðslunni. -snæ Hvetur til bóklestrar á Seyðisfirði LÍF Í BÓKAVERSLUNINNI Helgi Örn færir aukið líf í bókaverslunina á Seyðisfirði. Takið eftir hinni húmorísku áletrun á skilt- inu, sem listamaðurinn Baldur Björnsson gerði fyrir verslunina. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ,,Ég er himinlifandi með þessa breytingu. Nú er ég er loksins orðinn löglegur,“ segir Steingrím- ur Sævarr Ólafsson, fyrrverandi upplýsingafulltrúi forsætis- ráðuneytisins, sem hefur fengið nafnið Sævarr samþykkt af Mannanafnanefnd. Steingrímur Sævarr hefur háð harða baráttu við Manna- nafnanefnd um að fá nafnið Sæv- arr samþykkt. Mannanafna- nefnd setti sér reglu að nafnið Sævarr samræmdist ekki íslenskum rithætti og vildi því ekki viðurkenna skírnarnafn hans. ,,Sævarr er íslenskt nafn og kemur meðal annars fyrir í bók- menntunum okkar. Þetta er upprunalegur ritháttur nafns- ins,“ segir Steingrímur Sævarr. ,,Nefndin horfði meðal annars framhjá því að það eru að minnsta kosti sex nöfn sem leyfi- legt er að skrifa svona: Óttarr, Heiðarr, Snævarr, Steinarr, Ævarr og Hnikarr. Það lá fyrir að það sama þyrfti að gilda fyrir Sævars nafninu.“ Barátta Steingríms Sævars tók tæp sjö og hálft ár en nú er henni loks lokið. ,,Ég vann fullan sigur,“ segir Steingrímur Sævarr. ,,Ég fékk bréf frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu þess efnis að búið væri að gefa út nafnabreytingaleyfi sem tekur gildi um leið og ég er búinn að borga 4.400 krónur.“ -kh Fallbeyging nafnsins Sævarr, sam- kvæmt samþykkt Mannanafna- nefndar: Hér er Sævarr Um Sævar Frá Sævari Til Sævars Steingrímur Sævarr loksins löglegur STEINGRÍMUR SÆVARR Steingrímur getur loks skrifað nafn sitt á löglegan hátt eftir tæplega sjö ára baráttu. HRÓSIÐ ... fær Margrét Lára Viðarsdóttir sem hefur skorað hundrað mörk í Landsbankadeild kvenna, aðeins tvítug að aldri. 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8 Svar við spurningum á bls. 8 1. Í Arnarfirði. 2. Legia Varsjá. 3. Massachusetts. VEISTU SVARIÐ?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.