Fréttablaðið - 30.07.2006, Page 11
SUNNUDAGUR 30. júlí 2006 11
Unnið er að stofnun hvíldarheimil-
is fyrir HIV-smitaða hér á landi og
verður það staðsett á Breiðdalsvík.
Stefnt er að því að heimilið verði
opnað í haust.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
svona heimili er opnað hérlendis.
Við erum sem betur fer mjög fá
sem erum smituð á Íslandi en
fyrir vikið erum við líka mikill
minnihlutahópur. Því töldum við
fulla þörf á að stofna svona
hvíldarheimili,“ segir Alexander
Björn Gíslason, einn aðstandenda
heimilisins.
Svipuð heimili eru meðal ann-
ars rekin í Noregi, Danmörku og
mörgum löndum Evrópu. Hafa
komið upp hugmyndir um sam-
vinnu milli heimilisins hér á landi
og heimila í öðrum löndum. Fælist
það meðal annars í því að HIV-
smitaðir hérlendis gætu heimsótt
heimilin úti og erlendir gestir
komið hingað í staðinn. Gert er ráð
fyrir að fjórir til sex geti dvalið á
heimilinu hverju sinni.
Alexander segir að náttúran og
umhverfi Breiðdalsvíkur sé ein-
stakt og að samfélagið sé alveg
laust við fordóma. „Hér mætum
við hlýhug og skilningi og fólk
virðist vera mjög vel upplýst um
sjúkdóminn. Megintilgangur heim-
ilisins er að bjóða þeim sem sýktir
eru af HIV vin í eyðimörkinni. Hér
geta þeir komið og dvalist með
aðstandendum sínum.“
Hvíldarheimili fyrir HIV-smitaða
HVÍLDARHEIMILI Unnið er að stofnun hvíldarheimilsins sem verður staðsett á Breið-
dalsvík.
Allar stofur í helstu byggingum
Háskóla Íslands hafa nú verið
merktar að utan með blindraletri,
en lokið var við merkinguna á
þriðjudag. Það var Stúdentaráð
Háskóla Íslands sem stóð fyrir
verkefninu í samráði við Blindra-
félagið.
„Þetta er fyrst og fremst gert
til að auðvelda blindum og sjón-
skertum bætt aðgengi, en þetta er
líka táknrænt því við viljum að
allir hafi aðgang að háskólanum.
Háskólinn er fyrir alla.“ segir
Ásgeir Runólfsson, framkvæmda-
stjóri Stúdentaráðs.
Blindraletur við stofur HÍ:
Háskólinn á að
vera fyrir alla
ÞESSI FÆDDUST
1974 Hilary Swank,
leikkona.
1971 Tom Green,
grínisti.
1964 Jürgen Klins-
mann, knattspyrnu-
þjálfari.
1963 Lisa Kudrow,
leikkona.
1958 Kate Bush,
söngkona
HUMAR Systkinin Mark D‘Alessandro og
Lizzie hjálpa til við humargildrurnar við
heimili sitt á Flórída. FRÉTTABLAÐIÐ/AP.