Tíminn - 03.02.1978, Síða 3
Föstudagur 3. febrúar 1978
3
Gjaldeyriseftirlitið:
Ekkert ákveðið um
framhald mála ef
gjaldeyriseigendur
flytja féð ekki heim
SKJ — „Við höfum ekki ákveðið
hvert málið verður sent áfram ef
eigendur bankareikninga i Dan-
mörku verða ekki við tilmælum
okkar,” sagði Sigurður Jóhannes-
son, forstöðumaður gjaldeyriseft-
irlits Seðlabankans, er Tíminn
innti hann eftir þvi hvað heim-
kvaðningu gjaldeyrisins liði. Sig-
uröur kvað fáa reikningseigendur
hafa heimild til að leggja fé inn á
gjaldeyrisreikninga i íslenzkum
bönkum, og væri ætlazt til að þeir
seldu bönkunum gjaldeyrinn.
Aðspurður kvað Sigurður það
ekki i verkahring gjaldeyriseftir-
litsins að reka refsimál, en á
þessu stigi væri ekki ákveðið hver
um þau myndi fjalla ef til kæmi.
Sigurður sagði að svo stutt væri
siðan eigendur innistæða i Dan-
mörku fengu tilskrifin um heim-
flutning gjaldeyrisins, að svör
þeirra ættu eftir að berast.
Banaslys við
Lagarflj ót sbr ú
ESE —Banaslys varð við Lagar-
fljótsbrú, um kl. 19 i fyrrakvöld.
Slysið varð með þeim hætti, að
hinn látni sem ók Fiat bifreið
hugðist fara fram úr öðrum bil,
en við það lenti bifreið hans á
vörubifreið, sem ekið var á móti.
Talið er að ökumaður Fiat bif-
reiðarinnar hafi látizt samstund-
is.
Hann hét Sigurbjörn Pétursson
og var rétt rúmlega sextugur.
Reykjavikurskákmótið:
Draga í
SSt — Reykjavikurskákmótið
hefst á laugardaginn, og eru
erlendu skákkapparnir nú að
tinast til landsins einn af öðr-
um og nokkrir reyndar þegar
komnir. Keppendur á Reykja-
kvöld
vikurskákmótinu draga i
kvöld um töfluröð, og að þvi
búnu verður ákveðið hverjir
mætast i fyrstu umferð, sem
hefst á Hótel Loftleiðum á
laugardag kl. 14.
Forráðamenn Junior Chamber, Reykjavik og fulltrúar slökkviliðsins á fundi meö blaðamönnum f
gær. Timamynd: Róbert.
Eldvarnarvika í Reykja-
vík 5.-11. febrúar
— Eldvarnartæki verða kynnt í skólum borgarinnar
ESE — Eldvarnarvika hefst i
Reykjavik á sunnudag, og er
hún haldin að frumkvæði Junior
Chamber, Reykjavik, i samráði
við slökkviliðið.
Vika þessi er haldin til þess að
vekja almenning til vitundar
um eldvarnarmál, en að mati
JCR, hefur þeim málum ekki
verið sinnt sem skyldi hér á
landi.
Dagskrá vikunnar verður
mjög fjölþætt. M.a. verða aug-
lýsingar i öllum helztu fjölmiðl-
unum og fræðsluefni um eld-
varnir verður i útvarpi og sjón-
varpi. Veggspjöldum hefur nú
þegar verið dreift um borgina,
og fyrirhugað er, að slökkvilið
[ EIdvamai*vika
skríddu,,,
I’að cr undankomuloidir.
þcgar herbt'rgi er fulh .J' ttvk,
Loftið er hreittna níxlxgi gélSi,
Junlor Cháfntw* R«ykj*v*i
Merki vikunnar.
Reykjavikur sæki flesta for-
skóla borgarinnar heim, ásamt
eldvarnareftirliti, og i þeim
heimsóknum verði eldvarnar-
tæki kynnt og skólabörnum gef-
inn kostur á að kynnast tækja-
búnaði slökkviliðsins.
A fundi með forráðamönnum
JCR og fulltrúum eldvarnar-
mála kom fram, að hlutverk
skóla i eldvarnarfræðslu væri
mjög mikið, og með þvi móti að
kynna eldvarnir á þeim vett-
vangi, væri hægt að ná til mikils
fjölda fólks, þvi að börnin væru
þau, sem bezt væru vakandi
fyrir þörfinni á aukinni eldvarn-
arfræðslu og hættunni sem gæti
stafað af eldi.
200 tn bátur strandar á Arnarfirði:
V arðskipsmaður
slasazt er reynt var að
ná skipinu á flot
Alvarlegt áfall fyrir atvinnulif á Bildudal
VERÐUR GERT TIL-
BOÐ í HEIMSMEIST-
ARAEINVÍGIÐ?
SSt— 1 gær hélt stjórn SSl fund
með nokkrum aðilum, sem likleg-
ir eru til að geta staðið straum af
kostnaði við heimsmeistaraein-
vigið i skák hér, ef af yröi, til að
ræða hugsanlega tilboðsgerð.
Eins og fram hefur komið, hefur
SSl tilkynnt, að skáksambandið
muni reiðubúið að annast skipu-
lagningu á mótinu, náist sam-
staða nokkurra aðila um að fjár-
magna einvfgishaldið Þeir aðilar
sem SSl hefur einkum i huga, eru
riki og borg, Ferðamálaráð,
Flugleiðir og meiri háttar útflutn-
ingsaðilarhér á landi s.s. Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins og SIS.
Að sögn Högna Torfasonar,
varaforseta SSl var fundurinn i
gær nokkurs konar kynningar-
fundur Þar var ekki tekin nein
endanleg ákvörðun, en greinilegt
að áhugier fyrir hendi. Stjórn SSl
gerði grein fyrir umfangi þessa
verkefnis og var málið siðan reif-
að. Sagði Högni að boðað hefði
verið til annars fundar i næstu
viku með sömu aðilum.Frestur til
að skila tilboðum i heims-
meistaraeinvigið rennur út 16.
febrúar n.k.
SJ — Um fjögurleytiö i fyrrinótt
strandaði Hafrún iS-400 frá
Bildudal úti fyrir Austmannsdal i
Arnarfiröi. Varðskip kom 'fljót-
lega á staðinn og björgunarsveit
Slysavarnarfélagsins á Bildudal
fór einnig til aðstoðar. Áhöfninni
varð fljótlega bjargað heilu og
höldnu yfir i varðskipiö. A flóöinu
i dag voru gerðar tvær tilraunir
til aö koma Hafrúnu á flot og mis-
tókust þær báðar. Það slys varð
við þetta starf að vir sem brugðið
var urn stýrishús Hafrúnar slitn-
aöi og slóst i tvo varðskipsmanna,
lærbrotnaði annar þeirra og hinn
mun hafa meiðzt eitthvað á hönd-
um. Flugvél, sem var á leið frá
isafirði var kölluð niöur og lenti á
flugvellinum á Bildudal og fóru
mennirnir til Reykjavikur til
læknismeðferðar.
Bilddælingar fóru fram á það
við vegagerðina, þegar vitað var
um strandið, að Hálfdán yrði
ruddur, svo fært yrði til Patreks-
íjarðar en þangað sækja ibúar
Bfldudals læknishjálp. Var þeirri
beiðni synjað og þótti það súrt i
broti. Hálfdán er ruddur á mánu-
dögum og föstudögum þegar
veður leyfir slikar aðgerðir.
Leki var kominn að Hafrúnu
siðdegis i gær og gera átti þriöju
tilraunina til að ná skipinu á flot,
og ef hún tækist ekki átti að reyna
frekar á kvöldflóðinu.
Strand Hafrúnar 1S-400 hefur
mikil áhrif á atvinnulif á Patreks-
firði. Þar leggur upp annar minni
bátur, Steinanes, sem er 150 tn, og
varafli þessara tveggja báta tæp-
ast nægilegt hráefni fyrir Bild-
dælinga að vinna úr. Hafrún er
um 200 tn. Augljóst þykir að
Hafrún verði frá veiðum út þessa
vertið, þótt tjónið á skipinu veröi
ekki metað fyrr en það er komiö
að bryggju.
Allri kj ara skerðingu
mótmælt
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt einróma og með öllum at-
kvæðum á stjórnarfundi Banda-
lags starfsmanna rikis og bæja,
þriðjudaginn 1. fd)r. 1978:
„Stjórn BSRB mótmælir harð-
lega öllum hugmyndum um að
skerða nýgerða kjarasamninga
opinberra starfsmanna eða af-
nema vísitöluákvæði samning-
anna.
Vill stjórnin i þvi sambandi
vekjaathygli á þvi, að meginhluti
hækkunar á kauptöxtum félags-
manna BSRB eru verölagsbætur
vegna hinnarstórfelldu dýrtiðar
hér á landi og auka þvi alls ekki
kaupmá'tt launa.
Grunnkaupshækkun sú, sem
BSRB og bæjarstarfsmannafé-
lögin sömdu um við fjármálaráö-
herra og sveitarstjórnir miðaði
að þvi að bæta opinberum starfs-
mönnum þá gifurlegu kjara-
skerðingu sem þeir uröu fyrir á
árunum 1974-1977, svo og að leiö-
rétta launakjör opinberra starfs-
manna miðað viö sambærilega
starfshópa.
Kaupmáttaraukning opinberra
starfsmanna i siöustu kjara-
samningum er sizt meiri en aukn-
ing þjóðartekna og þjóðarfram-
leiðslu undanfarin ár.”
Fundur mígreni-
sjúklinga
GV— A morgun laugardag, verð-
ur haldinn fundur migrenisjúkl-
inga i Tjarnarbúð kl. 13.15 og
verða þá kannaöar undirektir viö
stofnun félags migrenisjúklinga.
Gestir fundarins verða dr. Gunn-
ar Guðmundsson og Tryggvi Jón-
asson kirópraktor. Fundarstjóri
verður Helgi Danielsson.
Að sögn Einars Loga Einars-
sonar verður félagið með liku
smöi og önnur svipuð samtök
sjúklinga hérlendis. Fyrsta og
helzta markmið félagsins verður
að fá göngudeild fyrir þessa
sjúklinga á vegum heilbrigöis-
þjónustunnar, og kemur það fram
i lögum og stefnuskrá sem lögö
verður fram á fundinum.
Ekki hefur þaö verið kannað
hve margrir migrenisjúklingar
eru á landinu, og er það eitt af þvi
sem félagið hyggst kanna.