Tíminn - 05.02.1978, Síða 2

Tíminn - 05.02.1978, Síða 2
2 Sunnudagur 5. febrúar 1978 Leiðólfur skrifar um landbúnaðarmál: ÞAÐ ER UNNT AÐ LÆKKA FRAMLEIÐSLUKOSTNAÐ LANDBÚNAÐARVARA Það verður að leggja höfuðáherzlu á að gera bændum kleift að minnka f ramleiðslu- kostnaðinn. Opinberar álögur á landbúnaðinn f umræðum um landbúnaðarmálin hefur verðmyndon landbúnaðarvara ekki verið nægilega skilgreind. Það hefur t.d. ekki komið nægilega skýrt fram, að ríkisálögur er æði stór liður í verðmynduninni. Mun það einsdæmi meðal þjóða, að vélar, verkfæri og aðföng við framleiðslu á landbúnaðar- vörum er notað sem tekjuálagningarstofn fyrir ríkissjóð. Nær væri að hæffa þessari skattlagningu og minnka um leið þann rikisstuðning, sem landbúnaðurinn fær. Landbúnaðarstefna flestra þjóða miðast við það, að beinn framleiðslukostnaður bænda verði sem minnstur. Þessu er þver- öfugt farið hér á landi. Alltof off hefur ver- ið dauf heyrzt við óskum bænda, um það að rikisálögum yrði létt af landbúnaðinum. Dæmi um ríkisálögur Til þess að útskýra nánar, hvað við er átt með ríkisálögum skulu tekin dæmi um verðmyndun á nokkrum land- búnaðarvélum og tækjum. Dæmi 1. Almenn hjóladráttarvél með öryggisgrind — þekkt merki % af söluverði Framleiðandi 60.83 Flutningskostn. og vátrygging 3.89 Bankakostn., vextir o.fl. 6.44 Gjöld til ríkissjóðs 21.03 Aðstöðugjald sveitarfélags 0.83 Álagning innf lytjanda 4.48 Þóknun smásala 2.50 100.00% Útsöluverð vélarinnar . kr. 1.859.204 af því fær ríkissjóður . kr. 390.991 Dæmi 2. Stór dráttarvél meö húsi % af söluverði Framleiðandi 62.74 Flutningskostn. og vátrygging 3.35 Bankakostn., vextiro.fi. 5.28 Gjöld til ríkissjóðs 21.26 Aðstöðugjald sveitarf élags 0.83 Álagning innflytjanda 4.04 Þóknun smásala 2.50 100.00% Útsöluverð vélarinnar kr. 3.332.131 Af því fær ríkissjóður kr. 708.411 Dæmi 3. Sláttuþyrla % af söluverði Framleiðandi 62.60 Flutningskostn. og vátrygging 3.94 Bankakostn., vextir o.f 1. 3.93 Gjöld til ríkissjóðs 19.31 Aðstöðugjald sveitarfélags 0.83 Álagning innf lytjanda 6.91 Þóknun smásala 2.48 100.00% Útsöluverð vélarinnar . kr. 509.621 af því fær ríkissjóður . kr. 98.408 Dæmi 4. Ámoksturstæki % af söluverði Framleiðandi 51.84 Flutningskostn. og vátrygging 3.45 Bankakostn., vextiro.fi. 3.94 Gjöld til ríkissjóðs 30.68 Aðstöðugjald sveitarfélags 0.83 Álagning innflytjanda 6.76 Þóknun smásala 2.50 100.00% Útsöluverð vélarinnar kr. 513.346 af því fær ríkissjóður kr. 157.495 Dæmi 5. Sturtuvagn 4 1/2 tonn % af söluverði Framleiðandi 42.93 Flutningskostn. og vátrygging 5.17 Bankakostn., vextir o.f I. 2.88 Gjöld til ríkissjóðs.............41.96 Aðstðug jaid sveitarf élags 0.83 Álagning innf lytjanda 3.73 Þóknun smásala 2.50 100.00% Útsöluverð vélarinnar.......kr. 706.324 þar af fær ríkissjóður......kr. 296.373 Eins og þessi dæmi sýna, er hlutur ríkis- sjóðs í verðmyndun landbúnaðarvéla og tækja ótrúlega stór eða frá ca. 20% i 42%. Dæmin verða þó ennþá ótrúlegri, þegar skilgreind er verðmyndun ýmissa vara- hluta, sem fá á sig 35% toll, 18% vörugjald og svo 20% söluskatt, rúsínuna í pylsuend- ann! Meira að segja girðingarefni er stór- lega skattlagt, eða þannig: 10% tollur, 18% vörugjald og 20% söluskattur ofaná allt saman. Breytt stefna óumflýjanleg Ekki verður lengur komizt hjá því að gjörbreyta þeirri stefnu, sem ríkt hefur undanfarið í tolla- og söluskattsmálum á landbúnaðarvélar og tæki og fjöldamörg önnur aðföng við landbúnaðarframleiðsl- una. Stjórnvöld verða að koma til móts við óskir bænda og létta af þessum álögum og þar með greiða fyrir því að lækka fram- leiðslukostnaðinn. Jafnframt verður að fella niður söluskatt á landbúnaðarvörur innanlands. Þak þekkist hvergi í löndum Evrópu, að lagður sé 20% söluskattur á nauðsynlegustu matvörur. í öðrum löndum er slíkur skattur, sem er í f ormi virðisauka- skatts, mismunandi mikill og eru nauðsyn- legustu matvörur undanskildar slíkri skatt- lagningu eða þá að skattur er tiltölulega lágur á þær. Dæmi um virðisaukaskatt í nokkrum Evrópulöndum lítur þannig út þann 15. jan. 1978 í %: Nauðsynja- Almennar vörur vörur Lúxusvörur Austursíki 8 18 30 Belgía 6, 14 18 25 Bretland 0 8 12 1/2 Frakkland 7, 17,6 20 33 1/3 Vestur-Þýzkaland 6 12 7 ítalía 1, 3, 6,9 12 18, 30, 35 Holland 4 18 Svíþjóð 3, 9.8 17.65 — Ríkið á leik á borði Þegar ísland gerðist aðili að EFTA og gerði fríverzlunarsamning við EBE var lögð sú skylda á íslenzk stjórnvöld, að þau gerðu ráðstafanir til þess að gera islenzkri f ramleiðslu kleift að keppa við framleiðslu Efta- og Ebe-þjóða á sem flestum sviðum. Það átti að taka upp þá stef nu á öllum svið- um að lækka framleiðslukostnaðinn eins og mögulegt væri og búa framleiðslunni hér á landi hliðstæð skilyrði og framleiðsla þess- ara Evrópulanda nýtur. íslenzk stjórnvöld hafa því miður brugð- izt þessari skyldu. Kannski hefur glíman við verðbólguna skekkt kompásinn. Þessi ríkisstjórn er að missa af strætis- vagninum, en ennþá á hún leik á borði. — Hvað varðar landbúnaðinn þá verður ekki komizt hjá því, að fella niður áður umrædda skatta, sem þýðir lægri f ramleiðslukostnað, og þar með lægra búvöruverð. Tekjumiss- inn myndi ríki fá uppborinn með lægri greiðslum útflutningsbóta. íslenzkur land- búnaður myndi hins vegar auka reisn sína með þjóðinni og er hann vel að því kominn. LEIÐÓLFUR

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.