Tíminn - 05.02.1978, Blaðsíða 5

Tíminn - 05.02.1978, Blaðsíða 5
Sunnudagur 5. febrúar 1978 5 Ófremdarástand í Iðnskólanum Reglugerð um löndun á loðnu — til bræðslu, frystingar og hrognatöku HEI — 1 „Iðnnemanum”, mál- gagni Iðnnemasambands tslands, er mjög hörð gagnrýni á aðbúnað og yerklega kennslu fyrir bakara- nemai Iðnskólanum i Reykjavik. Astandið er talið það slæmt, að nemendur fái nánast enga kennslu, vegna tækja- og efnis- skorts. Þá segir „fljótlega skapaðist sú hefð að afurðirnar voru seldar kennurunum ákostnaðarverði, og átti arður þeirrar sölu að duga fyrir efniskostnaði. Vegna van- skila kennara ogeinkaþarfa yfir- manna skólans varð þessi arður aldrei til. Þá kom fljótlega i ljós að námsefni bakaranema i' verk- legu var stilað uppá framleiðslu- þarfir burtséðfrá kennslugildi, og markmið kennslunnar er þvi að engu orðið.” Um aðbúnað i skólanum segir, að birgðageymsla sé ónothæf vegna ýmiss konar skorkvikinda. i bakaríi sé ekki einu sinni heitt vatn, sem sé þó frumskilyrði fyrir þrifnaði, jafnvel vanti handklæði og þurrkur. Sagt er að kennslan einkennist af skipulags- og framkvæmda- leysi, settar hafi verið upp náms- greinar fyrir fagið þó að kennslu- gögn vanti, t.d. hreinlætisfræði, verkþáttagreining, vinnuáætlan- ir, lifræn efnafræði, faglegur reikningur og verkstæðis- og tækjafræði. Bækur fyrir þessar greinar séu ekki til staðar. Þann- ig verði þær 36 áætluðu stundir i viku i þessum greinum, ekki að neinu. Einnig er á það bent, að alger fjarstæða sé að hafa verknáms- deild bakaranema og málara- nema hlið við hlið, þar sem lykt frá málningarefnum teljist hvorki hollustu- eða bragðbæt- andi. GV — Sjávarútvegsráðuneytið hefur sett reglugerð um löndun á loðnu til bræðslu, frystingar og hrognatöku, samkvæmt tilmæl- um loðnunefndar, og með sam- þykki Sambands islenzkra sam- vinnufélaga, Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, Félags isl. fiskim jölsframleiðenda Far- manna- og fiskimannasambands Islands og Landssambands isl. útvegsmanna. Reglugerðin er í sex greinum, og er þar m.a. kveðið á um að loðnuverksmiðjur skuli tilkynna loðnunefnd daglega, eða svo oft sem nefndin ákveður um mót- tökurými á hverjum þeim tima sem nefndin óskar. Nefndin ákveður siðan og tilkynnir veiði- skipum hvenær löndun skuli hefj- ast eðahætta hjá einstökum verk- smiðjum. Nú hefur loðnunefnd tiikynnt um að löndun til ákveðinnar verk- smiðju skuli hefjast á ákveðnum tima og má þá ekki hefja löndun fyrir þann tima þó að móttöku- rými sé fyrir hendi. Þó segir i reglugerðinni, að á þessu séu undantekningar. Skip, sem landa ioðnu- til hrognatöku og bræðslu skulu hlita sömu reglum og skip sem landa loðnu til bræöslu, segir i reglugerðinni. Skip sem landa loðnu til frystingar þurfa ekki aö fara I löndunarröð með þeim skipum, sem landa loðnu til bræðslu. En við það skal þó mið- að, að þetta gildi að jafnaði ein- ungis um farma, sem ekki eru stærri en 120 lestir. Loðnunefnd ákveður hverju sinni hve miklum hluta afla megi landa beint til verksmiðju til þess að tæma þau skip sem landa til frystingaru en skal við það miða að þetta magn fari að jafnaði ekki yfir 25% afl- ans. Siærrí - Kraftmeirí - Betrí 1978 Undrabíllinn SUBARU 1600 er til afgreiðslu strax. Allur endurbættur Breiðari, stærri vél, rýmra milli sæta, minni snún- ingsradíus, gjörbreytt mælaborð, nýir litir o. fl. o. fl. Það er ekki hægt að lýsa Subaru þú verður að sjá hann og reyna Greiðsluskilmálar þeir hagstæðustu sem völ er á í dag Kaupið bí/inn strax í dag því þá getið þér sparað aiit að 5-10 þús. á viku; þvi gengið sígur svo ört. INGVAR HELGASON Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 84511 Sýningarbiiar á staðnum Eyjólfur Ágústsson, bóndi, Hvammi, Landssveit, segir í viðtali um Subaru: „Ég fékk einn af fyrstu Subaru-bilunum og hefur hann reynst i alla staði vel og tel ég þá henta sérstaklega vel til allra starfa við bú- skapinn. Ég hef farið á honum inn um allar óbyggðir og yfirleitt allt, sem ég áður fór á jeppa. Subaru er góður i hálku, duglegur i vatni og sparneytinn — og nú er ég að fá mér 1978 árgerðina.”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.