Tíminn - 05.02.1978, Qupperneq 29

Tíminn - 05.02.1978, Qupperneq 29
Sunnudagur 5. febrúar 1978 29 Herra Grainger var um fertugt. Hann var þrekinn á vöxt og höfuð- stór, en lágvaxinn og leggstuttur. Var búkur- inn áberandi lengri en fæturnir. Hárið var þunnt og farið að grána, og hann var með gráleitt vangaskegg, en alrak- aða höku. Hann var órór og flöktandi i framkomu og hljóp úr einu i annað i samtali, eins og hann gæti ekki haldið sama þræðinum lengi. Það kom þó fram i viðtalinu, að hann hafði misst konuna fyrir tveimur árum, ög Linda litla var einkadóttir hans. Hann gat þess lika að hin látna kona hans hefði verið á sinn hátt eins rólynd og kyrlát i fasi og hann væri ör- geðja og órór i fram- komu. Þa var auðheyrt á öllu, að hann saknaði mjög konu sinnar. Hann hafði reist fagra kirkju á gröf hennar og var leg- staðurinn undir altar- inu. Eftir lát konu sinnar hafði hann verið á stöðugu ferðalagi. Hann gat hvergi skapað sér varanlegt heimili, en sigldi fram og aftur um úthöfin á þessu skraut- lega skipi. í fyrstu bauð hann mörgum gestum i þessi ferðalög, en svo leiddist honum samvistir við þá og sagði lika, að þeir hefðu verið heimskir og ráðrikir og dauðans leið- inlegir. (Berit hugsaði með sjálfri sér, að ef til vill hefði það verið ráð- riki hans og sérvizka, sem hefði rekið þá af skipinu). Auk skipshafnarinnar voru nú aðeins með i þessari för dóttir hans, Linda og kennari henn- ar, sem var alvarleg og ströng kona. Þegar Harry Grainger i fyrra mánuði var staddur i Manilla i Filipseyjunum, las hann frásögn frá eyjunni Tongarewa. Höfundur greinarinnar hafði lýst eyjunni sem fegurstu og afskekktustu eyju heimsins. Harry Grainger fékk þá óstöðvandi löngun til að kynnast þessari eyju, enda var hún ekki svo mjög langt úr leið, þvi að áður hafði hann ákveðið að leggja leið sina til Callao i Perú. Prestarnir buðu þess- um gestum til miðdegis- verðar. Þær Berit og Matahiwa gerðu sitt til þess, að miðdegisverð- urinn yrði góður, en búr- ið var þó yfirleitt fátækt af dýrum réttum, en þrátt fyrir það varð maturinn ljúffengur og snyrtilega fram borinn. Undir borðum spurði Árni Harry Grainger, hvort hann þekkti móðurbróður þeirra systkina, Kristján Hei- berg að nafni, væri hann plantekrueigandi á Hawaii. „Hvort ég þekki hann,” svaraði Harry hrifinn og hávær. ,,Hann er nágranni minn og vinur, og betri drengur finnst ekki á Kyrrahafs- eyjunum. Marg oft hef ég boðið honum i lang- ferð með mér á „Sun- beam” (það var nafn skipsins), en þvi miður hefur hann aldrei getað komizt að heiman. Hann hefur svo mikið um að annast. Er herra Heiberg virkilega móðurbróðir ykkar? Já, ég man það núna, að hann hefur oft, nú hin siðustu árin, rætt um það, að hann ætti von á norsku frændfólki sinu til Hawaii. Það var ein- kennilegt, að ég skyldi hitta á ykkur hér. Hvað- an úr veröldinni eruð þið hingað komin?” Árni varð að segja honum ágrip af hinni áralöngu ferðasögu þeirra systkinanna. Það tók sinn tima að segja þessa ferðasögu, og Árni var alls ekki öruggur um, að herra Grainger hlustaði á hann. Augu hans voru flöktandi og sjaldnast leit hann i þá átt, sem Ámi var. Ef hann greip fram i frá- sögnina, þá snerti það venjulega ekki sögu- þráðinn, og sýndi það að plantekrueigandinn var ekki með hugann við frásögn Áma, heldur að hugsa um allt annað. Á meðan Ámi sagði sögu sina, hafði Linda staðið upp frá borðinu og farið fram i eldhús til stúknanna. Strax og Linda kom upp á bryggjuna, hallaði hún sér að Berit og tal- aði mest við hana. Hún vék ekki frá henni og vildi helzt, að hún leiddi hana sér við hlið. Linda var sjaldgæft barn. Falleg var hún og barnsleg með löngu, ljósu fléttumar, fölleitt fagurskapað andlitið og FÓRNÁRLAMB ELDSINS Þessi stúlka lenti í eldsvoða. Þrátt fyrir ítrekaðar skurðaðgerðir hefur ekki tekist að bæta skaðann til fulls. Slysinu hefði mátt forða ef reykskynjari eðaslökkvitæki hefði verið við hendina. 1 Junior Chamber Reykjavík

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.