Tíminn - 05.02.1978, Page 33

Tíminn - 05.02.1978, Page 33
Sunnudagur S. febrúar 1978 liBÍS'IÍÍ 33 í sextíu ár þannig helzt þetta við. Þannig höfum viðtildæmisfengið nokkra ágæta kvæðamenn inn i félagið, nú alveg nýlega. — Koma þá ekki lika ljóðelskir menn inn i félagið, þótt þeir séu hvorki tónhneigðir né heldur raddmenn til kveðskapar? — Jú, það er talsvert algengt. Visnasafnarar eru til dæmis all- tiðir gestir hjá okkur, enda vita þeir, að þar er um auðugan garð að gresja. Félagið á stórt safn vlsna, svo að vafalaust nemur tugum þúsunda, enda hefur verið haldið til haga öllum visum, sem orðið hafa til á fundum i þessi fjörutiu og niu ár, sem félagið er búið að starfa. Og safn okkar er reyndar ekki einskorðað við þann kveðskap sem orðið hefur til á fundum okkar, heldur höfum við leitað fanga viðar. Auk þess á svo félagið stórt og merkilegt safn rimnalaga. — Viltu ekki kenna mér eina góða visu, — þó ekki væri nema eina, — en ég veit, að þú kannt margar. — Nei, belssaður vertu, ég kann ekki margar visur. Ja, ef þú vilt það endilega, þá get ég svo sem kennt þér visu, sem góður vinur minn orti um mig, þegar ég var sextugur. Hún er svona: Magnast þér elli, margt er liðið, mun þó óhögguð staðreynd sú: í sextfu ár hefur Kölski kviðið að kæmi sú stund, er birtistþú. — Gerið þið ykkur ekki sitt- hvað fleira til gamans á fund- unum en að kveða kvæðalög og yrkja visur? — Jú, það er ýmislegt fleira gert. Stundum er efnt til getrauna um það, eftir hvern ljóð eru, og getur verið gaman að spreyta sig á þvi. Einu sin ni tók ég meö mér á fund tuttugu ljóðabækur þekktra höfunda, las siðan upp eina visu úr hverri bók, og valdi þá auðvit- að heldur þær sjaldgæfari. Árangurinn varð miklu slakari en ég hafði búizt við, þótt ég á hinn bóginn gerði mér fiila grein fyrir þvi, að visurnar, sem ég las væru ekki á hvers manns vörum. Þó var einn maður, sem skaraði langt fram úr öðrum. Það var Sveinbjörn Beinteinsson á Drag- hálsi, enda er hann mjög fróður um kveðskap og bókmenntir yfir- leitt. Svlrhans i getrauninni voru næstum öll rétt, en það var merkíiega mikill munur á honum og þeim næstu fyrir neðan hann. — Tekur þú ekki þátt I þvi að yrkja á fundunum? — Það er litið— og ekki i frá- sögur færandi. — Viltu ekki kenna mér eins og eina eða tvær, áður en við skilj- um? — Nei, ég held nú ekki! Þótt ég hafi kannski einhvern tima hnoð- að einhverju saman, þá. er það ekki til þess að birta það i blöðum. „Nú var þeirri þýzku allri lokið...” — Koma ekki stundum útlend- ingar á fundi i Iðunni til þess að hlusta á hina þjóðlegu tónlist okkar tslendinga, kvæðalögin? — Jú, það kemur oft fyrir. Og nú er bezt að ég ljúki þessuspjalli okkar með þvi að segja þér sak- lausa gamansögu, sem ég er oft búinn að brosa að. Fyrir nokkrum árum kom góð- vinur minn einn að máli við mig og sagði mér þær fréttir, að það hefðí verið kveðið skopkvæði um mig i þýzka útvarpið, undir islenzku rimnalagi. Mig grunaði fljótt, hvernig i málinu myndi liggja, en fór þó að leita mér upplýsinga um, hvernig á þessu gæti staðið. Og svörin létu ekki á sérstanda. Allt á sér sinar orsak- ir, og hér var orsökin þessi: Kvæðamannafélagið Iðunn hafði nýlega eignazt segulbands- tæki. Bandið var vigt með þvi að góður vinur minn og félagi i Iðunni kvað inn á það magnaö gri'nkvæði, sem hannhafði ortum mig, og hann kvað af innlifun og þrótti, eins og bezt gerist, þegar höfundar flytja verk sin. Svo geröist það einn sumardag, að hingað kom þýzkur kven- maður, sem hafði ferðazt um hálfan hnöttinn eða meira og kunni einhver ósköp af tónlist hina ólikustu þjóðflokka i ýmsum „GERI EKKI RÁÐ FYRIR AÐ BLAÐAMENN DAGBLAÐS- INS YNNU í VERKFALLI” segir framkvæmdastjórinn, en blaðið gæti hugsanalega komið út heimshornum. En islenzk kvæða- lög hafði hún aldrei heyrt. Hún gekk nú á fund Sigurðar frá Haukagili og baö hann fyrir hvern mun að leyfa sér að koma á fund i Kvæðamannafélaginu Iðunni, svo hún gæti fengið aö heyra menn og sjá þá kveða islenzk rimnalög. En auðvitað voru ekki nein t<8c á þvi að ná saman fundi, svona um hásumariö, þegar menn voru ýmist í sumarleyfi fjarri heim- ilum sinum eða á annan hátt vant við látnir. En til þess nú að gera konunni einhverja úrlausn, lofaði Sigurður henni að heyra kvæðið um mig, það var eina efni þess- arar tegundar, sem honum var handbært á stundinni. En nú var þeirriþýzku allri lokið. Hún heill- aðist svo af þessum flutningi, að hún linnti ekki látum, fyrr en Sig- urður leyfði henni að hafa kveð- skapinn með sér heim til Þýzka- lands. Þarna var þá skýringin komin, — eins og mig hafði grunað. Auðvitað þurfti ég ekkert að kvarta, þvi að kvæði vinar mins um mig var allt hið prúð- mannlegasta, þrátt fyrir glensið og gamansemina. En reyndar gerir það svo sem hvorki til né frá, þvi ég býst varla við, að þýzka konan sem varð sér úti um þetta hér norður á Islandi, eða þeir útlendingar sem heyrðu kvæðiðkveðið með gömlu kvæða- lagi i hina þýzku útvarpsstöð, hafi skiliðmikið iislenzkunni, —og þó allra sizt meiningarnar á bakviö orðin! —VS Ritstjórn. skrifstofa og afgreiðsla SJ — Kjaradeila blaðamanna og útgefenda er óleyst og i dag lýkur atkvæðagreiðslu um hvort stjórn Blaðamannafélags Islands skuli heimilt að boða verkfall. Eitt dagblaðanna gæti þólögum sam- kvæmt komið út þótt blaðamenn færu i verkfall, en það er Dag- blaðið, þar sem margir blaða- mannanna þar eru hluthafar i út- gáfufélagi blaðsins og eru þvi ekki skyldugir til að fara i verk- fall ásamt stéttarbræðrum sin- um. Dagblaðið er hins vegar prentað hjá Árvakri h.f., prent- smiðju Morgunblaðsins, og trú- legt er að Morgunblaðsmenn yndu þvi illa að Dagblaðið yrði unnið þar meðan sjálft Morgun- blaðið kæmist ekki út vegna verk- falls blaðamanna! Sveinn Eyjólfsson fram- kvæmdastjóri Dagblaðsins sagði Timanum i gær að ekki hefði ver- ið um það rætt innan blaðsins að það kæmi út þrátt fyrir að blaða- menn færu i verkfall og útgáfa annarra dagblaða stöðvaðist. — Ég geri ekki ráð fyrir þvi að blaðamenn Dagblaðsins héldu á- fram störfum meðan starfsbræð- ur þeirra væru i verkfalli, sagði Sveinn, — annars er bezt að spyrja þá að þvi sjálfa. CROWN Okkar verð hagstæðast! 80.000 KR. ÓDÝRARA en samsvarandi tæki á markaðinum SHC-3250 - VERÐ 199.500 Magnari 6—IC, 33 transistorar 23. dióður, 70 wött. útvarp Örbylgja: FM88-108 megarið Langbylgja: 150-300 kilórið Miðbylgja: 520-1605 kilórið Stuttbylgja: 6-18 megarið Segulband Iiraði: 4.75 cm/s Tækniupplýsingar: Tiðnisvörun venjulegrar kasettu (snældu) er 40-8000 rið Tiðnisvörun Cr 02 kasettu er 40- 12.000 rið Tónflökt og -blakt (woW & flutter) betra en 0.3% RMS Timi hraðsþólunnar á 60 min. spólu er 105 sek. Upptökukerfi: AC bias, 4 rása stereo Af þurrkunarkerfi AC afþurrkun Plötuspilari Full stærð, allir hraðar, sjálfvirkur eða handstýrður. Nákvæm þyngdarstilling á þunga nálar á plötu. Mótskautun miðflóttans sem tryggir litið slit á nál og plötum á- saml fullkominni upptöku. Magnetiskur tónhaus. Hátalarar Bassahátalari 20 cm. af kon iskrigerð. Mið- og hátiðnihá talari 7.7 ,cm. af kóniskri gerð. Tiðnisvið 40-20.000 rið Aukahlutir Tveir hátalarar Tveir hljóðnemar Ein Cr 02 kasetta FM loftnet Stuttbylgju loftnetsvir. Við höfum nú se/t yfir 4.000 tæki af þessari gerð - ef það eru ekki meðmæii - þá eru þau ekki tii PANTIÐ STRAX í DAG! Afgreiðsla samdægurs! 26 AR í FARARBRODDI búðin á horni Skipho/ts og Nóatúns Simi 29-800 5 iinur

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.