Tíminn - 28.02.1978, Blaðsíða 3
Þri&judagur 28. febrúar 1978
3
„Fullyrðingar meirihluta stjórnar
BSRB úr lausu lofti gripnar”
- segir í tilkynningu f jármálaráðuneytisins
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi tilkynning frá Fjármála-
ráðuneytinu:
„Af hálfu meirihluta stjórnar
BSRB hefur þvi verið haldið
fram undanfarið, að fyrirhug-
aðar ólögmætar verkfallsað-
gerðir bandalagsins réttlætist af
neyðarrétti. í ávarpi frá meiri-
hluta stjórnar BSRB, sem dreift
hefur verið, er þetta enduretkiö
og ýmist talað um að
„nauðvörn” eða „neyðarrétt-
ur” réttlæti aðgerðirnar. I áður-
nefndu ávarpi er talaö um
„þann neyðarrétt sem viður-
kenndur sé i lýðfrjálsum iönd-
um”, án þess að haft sé fyrir þvi
að skýra frekar þann grundvöll,
sem meiri hluti stjórnar BSRB,
fullyrðir að réttlæti gerðir sinar.
Sú lagatúlkun sem þarna
kemur fram, fær ekki staðizt.
Þau skilyrði, sem almennt er
viðurkennt að vera þurfi fyrir
hendi svo neyðarvörn eða neyð-
arrétti verði beitt eru hér ekki
til staðar. Sjónarmið um neyö-
arvörn og neyöarrétt byggjast
fyrst og fremst á lögfestum
reglum, en i löggjöfinni hafa
slik sjónarmið einnig fengiö
staðfestingu svo sem i 12. og 13.
gr. almennra hegningarlaga nr.
19/1940. Skilyrði fyrir þvi aö
neyöarvörn eða neyðarréttur
geri verknað refsilausan, sem
undir öllum venjulegum kring-
umstæðum er réfsiverður, eru
afar þröng.
t kjarasamningi fjármálaráð-
herra fyrir hönd rikissjóðs og
BSRB frá 25. október 1977 eru á-
kvæði um það, hvernig aðilar
skuli bregðast viö, séu breyting-
ar geröar á visitölugrundvelli
samningsins. Samningurinn
gerir ráð fyrir að hvor aðili geti
krafist endurskoðunar á kaup-
liðum samningsins. Um þetta
eru nánari ákvæði i samningn-
um. Samningurinn gerir þvi
beinlinis ráð fyrir þvi að sú að-
staða komi upp, sem nú liggur
fyrir og hvernig viö skuli bregð-
ast.
Neyðarvörn eða neyöarrétti
verður þvi a&eins beitt, að öðr-
um úrræðum verði ekki viö
komið vegna skyndilegrar
neyðaraðstöðu. Jafnvel við slik-
ar aðstæöur er heimildinni mjög
þröngar skoröur settar. Með
hliðsjón af framansög&u eru
fullyrðingar meiri hluta stjórn-
ar BSRB um að neyðarvörn og
neyðarrétt réttlæti lögbrot
þeirra úr lausu lofti gripnar.
Fjármálaráðuneytið, 27. febr.
1978J:_______________________
Feluleikur
á ísafirði
— týndi
maðurinn
kominn fram-
ESE — Maður sá er hvarf á tsa-
firði 6. feb. sl., er nú fundinn.
Mikil leit hefur verið gerð að
manninum og auglýst eftir hon-
um i fjölmiðlum. Maðurinn mun
þjást af þunglyndi, og hefur
horfið af og til á undanförnum ár-
um.
Að þessu sinni hafði hann falið
sig i húsakynnum fyrirtækis eins
á ísafirði og allan þann tima varö
enginn var við hann. Maðurinn
mun hafa búið sér svefnstað i fá-
förnu skoti i fyrirtækinu og á
næturnar notaði hann tækifærið
og fékk sér i svanginn og notaði
eldunaraðstöðu fyrirtækisins.
Þegar maðurinn fannst hafði
hann orðið eitthvað seinn fyrir og
var i miðjum uppþvotti er komið
var að honum. Maðurinn var
ágætlega á sig kominn er hann
fannst og virtist ekki hafa orðið
meint af útilegunni.
Rann-
sókn
komin
á loka
stig
— í bilainn-
flutningsmálinu
Innflytjand-
anum sleppt
í síðustu viku
SSt.— Eins og kunnugt er var Ás-
geir Sigurðsson innflytjandi
notaðra Mercedes Benz bifreiða
látinn laus úr gæzluvarðhaldi I
siðustu viku, þar sem nú hillir
undir að rannsókn þessa máls
ljúki senn og þvi ekki ástæða til að
hafa gæzluvarðhaldsvistina
lengri. Vegna þessa máls hafði
Asgeir setið i gæzluvarðhaldi frá
þvi um jól og um tima einnig að-
stoðarmaður hans við innfluting-
inn, bifreiðaeftirlitsmaöur i
Hafnarfirði en hann var látinn
laus um miöjan janúar.
Að sögn Hallvarðs Einvarðs-
sonar hjá Rannsóknarlögreglu
rikisins mun enn eftir nokkur
vinna við rannsókn málsins. Gat
hann ekki sagt til um hvenær
henni lyki aö svo stöddu. Að rann-
sókn lokinni yröi máliö afhent
rikissaksóknara sem ákvæði
frekari málsmeöferð sagði Hall-
varður Einvarðsson að lokum.
Söngvar og upplestur
Þegar ljósmyndasýningunni
„Ljós” lýkur að Kjarvalsstöðum
i kvöld kl. 21.30, verður flutt þar
dagskrá i tali og tónum eftir
Sveinbjörn J. Baldvinsson, sem
nefnist „Heimurinn heima” og
fjallar um heim barnsins.
Flytjendur auk höfundar eru
Ragnheiður Steindórsdóttir leik-
kona og Kolbeinn Bjarnason.
Sveinbjörn hefur sent frá sér
eina ljóðabók, „1 skugga manns-
ins”, sem kom út hjá Almenna
bókafélaginu haustið 1976. Hann
stundar nú nám i bókmenntum
við Háskóla Islands.
Þess má geta að þremenn-
ingarnir fluttu þessa dagskrá á
„Góuvöku” Menntaskólans við
Sund sl. fimmtudagskvöld, við
mjög góðar undirtektir.
Ungur drengur
beið bana í
snjóskriðu á
Súgandafirði
ESE — Síðastliðinn föstudag
fórst 8 ára gamall drengur i
snjóskriðu i fjallinu fyrir ofan
Suðureyri i Súgandafirði.
Hann hét Egill Traustason og
var hann,er slysið varð, á ferö
með félaga sinum, Ingvari
Sigurðssyni, 10 ára.
Drengirnir höfðu verið að
klifra i fjallinu er snjóhengja
brast undan þeim. Grófust
þeir undir snjónum, og þegar
tekizt hafði að losa þá var Eg-
ill heitinn látinn. Félagi hans
var mikið slasa&ur, m.a. lær-
brotinn^en er þó úr lifshættu.
Prófkjör Framsóknarmanna
á Egilsstööum:
Magnús Einars-
son efstur
JS — Svo sem kunnugt er fór um
helgina 11.-12. febrúar sl. fram
prófkjör meðal Framsóknar-
manna á Egilsstöðum vegna
sveitarstjórnarkosninganna i vor.
Úrslit prófkjörsins urðu þessi:
Magnús Einarsson bankastjóri
hlaut 104 atkvæði i 1. sætið 18 at-
kv. i2. sætið 11 atkv. i 3. sæti, 3 i 4.
sætið og 5 i 5. sætið.
Næstefstur varð Sveinn
Herjólfsson kennari með 12 at-
kvæði i 1. sætið 53 atkvæði i 2.
sætið, 25 atkvæði i 3. sæti 37 i 4.
sætið og 14 i 5. sætið.
Þriðji varð Benedikt Vilhjálms-
son radióvirki en hann hlaut 11 at-
kvæði i 1. sæti 35 atkvæði i 2. sætið
55 atkvæði i 3. sæti 28 i 4. sætið og
12 I 5. sætið.
Fjórði varð Þórhallur Eyjólfs-
son húsasmiðameistari. Hann
hlaut 7 atkvæði i 1. sæti 31 atkvæði
i 2. sætið, 42 atkvæöi i 3. sæti 49 i 4.
sætið og 11 i 5. sæti.
Fimmta sætið hlaut Friðrik
Ingvarsson bóndi með 7 atkvæði i
1. sæti 4 atkvæði i 2. sætiö, 8 at-
kvæði i 3. sæti, 24 atkvæði i 4. sæti
og 94 i 5. sæti.
Niðurstöður prófkjörsins verða
lagðar fyrir uppstillingarnefnc^
sem gengur endanlega frá fram-
boði Framsóknarmanna á Egils-
stöðum.
N orður-Þingey-
ingar vilja átak
í atvinnumálum
Um all langt árabil hefur
byggðin i Norður-Þingeyjarsýslu
átt I vök að verjast. Bæði hefur
stjálbýli verið mikið og atvinnu-
tækifæri ekki nægilega mörg og
stöðug svo að i sýslunni hefur
orðið fólksfækkun.
1 júni 1975 voru lögð fram af
hálfu Framkvæmdastofnunar
rlkisins byggöaþróunaráætlun
Norður-Þingeyjarsýslu en hún er
þó aðeins úttekt á atvinnuástandi
og hugsanlegum leiðum til fram-
vindu i atvinnumálum sýslunnar.
Ekkert hefur verið gert til að
hrinda i framkvæmd áætlun þess-
ari svo að hún er enn sem komið
er aðeins pappirsplagg. Með
áætluninni var þó viðurkenndur
af opinberri hálfu sá mikli vandi
sem Norður-Þingeyingum er á
höndum.
Skömmu eftir útgáfu byggða-
þróunar áætlunarinnar fundust
hins vegar auðug rækjumið á
öxarfirði en þá brá svo viö að all-
ur sá vandi sem byggðaþróunar-
áætlunin lýsti var gleymdur og
sjávarútvegsráðuneytið úthlutaði
veiðileyfum til skipa úr öðrum
sýslum. Af þessu tilefni gerði
sýslunefnd Norður-Þingeyjar-
sýslu svohljóðandi ályktun á
siðasta fundi sinum:
„Aðalfundur sýslunefndar
Norður-Þingeyjarsýslu.haldinn á
Kópaskeri lýsir fullum stuðningi
sinum við kröfu ibúa við öxar-
fjörð um algjöran forgang þeirra
til nýtingar rækjumiðanna I
firðinum og skorar hún á
sjávarútvegsráðuneytið að verða
við eðlilegum og sjálfsögðum
kröfum þeirra til sama réttar og
viðurkenndur hefur verið alis
staðar, þar sem rækjuveiðar eru
stundaðar innfjarðar við landið.”
Litlar breytingar á
kjörum BSBB félaga
samkvæmt úrskurði kjaranefndar
JB — Föstudaginn 24. febrúar
sl. birti kjaranefnd úrskurð sinn
um sérkjarasamninga rikis-
starfsmannafélaga I Bandalagi
starfsmanna rikis og bæjar.
Eftir þvi sem fram kemur I úr-
skurði nefndarinnar, er ekki um
miklar breytingar að ræöa frá
þvi samningar voru undirritaðir
þ. 25. október sl., þó munu nokk-
ur félög fá einhverjar breyting-
ar.
Það eru fjórtárv aðildarfélög
innan BSRB sem voru stefn-
endur i málinu og féll dómurinn
gegn fjármálaráðherra fyrir
hönd rikissjóös annars vegar og
gegn borgarstjóra fyrir hönd
Reykjavikurborgar hins vegar.
Voru það eftirtalin félög:
Starfsmannafélag Sjúkrasam-
lags Reykjavikur, Tollvarða-
félag Islands, Hjúkrunarfélag
Islands, Ljósmæðrafélag Is-
lands, Félag flugmálastarfs-
manna rikisins, Starfsmanna-
félag rikisstofnana, Samband Is-
lenzkra barnakennara, Lands-
samband framhaldsskólakenn-
ara, Félag forstjóra Pósts og
sima, Félag islenzkra sima-
manna, Landssamband lög-
reglumanna, Starfsmannafélag
rikisútvarpsins, Starfsmanna-
félag Sjónvarpsins og Póst-
mannafélag íslands.
Af þessum félögum voru það
aöeins þrjú sem fengu breytingu
á sinum kjörum samkvæmt úr-
skurði kjaranefndar, en þaö eru
Hjúkrunarfélag lslands, Lands-
samband lögreglumanna og
Póstmannafélag Islands og var
sú breyting einkum fólgin I
færslu milli launaflokka.