Tíminn - 09.04.1978, Síða 8

Tíminn - 09.04.1978, Síða 8
8 Sunnudagur 9. apríl 1978 1909-1911. Starfaði einnig að bindindis- og búnaðarmálum. „Eygði svo í einum svip fjörutíu íranskar duggur — fimmtán róðrarskip”. Svo kvað Jón Ólafsson frá Kolfreyjustað i Fá- skrúðsfirði, er hann sat kviaær og komst upp á Halaklett. Jón varð siðar alþingismaður, rit- stjóri o.fl. Franskar fiskiskútur voru algeng sjón við Austfirði, Vestfirði og viðar fram yfir aldamót. Fylgdu eftirlitsskip og hér er mynd tekin um borð i einu þeirra á Fáskrúðsfirði um aldamótin. Maðurinn sem situr lengst til vinstri (með svartan kúluhatt), er Georg Georgsson læknir, forstöðumaður franska spitalans á Fáskrúðsfirði. Drengurinn er mágur hans, Jó- hann Wathne frá Seyðisfirði. Hinir munu franskir. Franskur spítali var og lengi rekinn i Reykjavik, eins og al- kunnugt er. Eitthvert slangur mun vera af franskættuðu fólki á íslandi, sumir komnir af skútumönnum. „Golfranskir skútumenn skruppu inn á fjörðu, skildu eftir mark sitt i is- lenzkri jörðu”. Vikjum að öðru. Minningin um jól og þorrablót lifir enn i Kirkjan á Vestdalseyri ........ Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga Ferming i kirkjunni á Vestdalseyri Gm borft f frönsku eftirlitsskipi um aldamótin Enn er brugðið upp þremur myndum frá Austfjörðum — úr myndasafni Jóns Wathne. Við sjáum kirkjuna á Vestdalseyri við Seyðisfjörð, myndarlegt hús, fólkið mun vera að koma frá messu. Seyðfirðingar hinir eldrimunukannast við kirkjuna og húsin i grennd. Kirkjan mun hafa verið rifin og ný kirkja byggð inni á ölduárið 1922. Önnur mynd sýnir fermingu i kirkjunni á Vestdalseyri. Séra Björn Þorláksson fyrir altari. Kirkjan stóð fyrst á Dverga- steini utarlega með firðinum. Gerðist Björn þar prestur 1884. Þjónaði Seyðisfirði til 1925. Var alþingismaður Seyðfirðinga mörgum huga. Mér bárust ný- lega i hendur myndir af listavel útskornum laufabrauðskökum. Skurðmeistarar tvær konur, önnur eyfirzk en hin úr Þing- eyjarsýslu búsettar i Reykja- vik. Eru þetta kniplingar?, varð „skrifstofustarfskrafti” að orði, er hann leit eina myndina. Vert væri að ungt fólk lærði þennan listavel gerða laufaskurö, hann má ekki falla i gleymsku. Hygg ég að þeir séu ekki margir fyrir norðan sem kunna hann svo vel að listbragð sé að. En þessi norðlenzki siður er þó að breið- ast út, einnig hér syðra. Eiga átthagafélög þátt i þvi og er það vel. Laufabrauft fjölbreytilega skorift

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.