Tíminn - 09.04.1978, Síða 10

Tíminn - 09.04.1978, Síða 10
10 íiiliíl!’ Sunnudagur 9. apríl 1978 Siöastliðiö haust var hiuti af heilsugæzlustöð formlega tek- inn i notkun á Hornafirði og er þetta tveir þriðju hlutar af væntanlegu húsnæði heilsu- gæzlustöðvarinnar. t öðrum áfanga stöðvarinnar verður legurými fyrir 20 sjúklinga. Miklar framkvæmdir í vaxandi þorpi Rætt við Óskar Helgason oddvita á Höfn i Hornafirði Við leggjum mikla áherzlu á að byggja hér upp sem fjöl- breyttasta atvinnu og viljum gjarnan efla iðnað úr sjávar- afurðum og landbúnaðarvörum, sagði Óskar Helgason oddviti á Höfn i Hornafirði i samtali við Timann. Hér höfum við mjög fullkomið frystihús og stutt er héðan á fiskimiðin, og bátum fjölgar stöðugt. En iðnaðarupp- bygging yrði staðnum enn frek- ari lyftistöng. Miklar framkvæmdir hafa verið hér i sveitarfelaginu undanfarin ár. Stærstar hafa þar verið skólabyggingin og hafnarframkvæmdir, en auk þess sinnir sveitarfélagið fjöl- mörgum öðrum framkvæmd- um. Dagheimili er nú fokhelt og stefnt er að þvi að ljúka bygg- ingu þess á þessu eða næsta ári. Þar á að verða rúm fyrir 40 börn. Nú er dagheimili rekið i gömlu húsi sem kaupfélagið á, en það húsnæði er orðið gamalt og fullnægir ekki nútima kröf- um. Ýmis félagasamtök i þorpinu hafa sýnt þessari dag- heimilisbyggingu mikinn áhuga og lánað til verksins rúmlega hálfa fimmtu milljón. Aætlaður kostnaður með öllum búnaði er um 48 millj. kr. 1 sumar munum við vinna nokkuð að framkvæmdum við vatnsveitu þorpsins en hér höf- um við ekki nægjanlegt vatn. 1 sumar er áætlað að leggja 12 tommu viða lögn hluta af leiðinni og er kostnaður við það áætlaður um 30 millj. kr. Við höfðum ráðgert að halda áfram viðað endurbyggja eldri götur þorpsins i sumar en af þvi getur þvi miður ekki orðið vegna þess hve vatnsveitufram- kvæmdirnar verða dýrar. Á þessu ári ætlum við að koma upp sorpbrennsluofni og er rætt um að það verk verði unnið i samvinnu við Nesja- hrepp. Þá er hér iþróttavöllur i byggingu og vantar okkur til- finnanlega meira fjármagn til þeirrar framkvæmdar. Búið er að grófvinna völlinn, en eftir er að fullvinna efni til að leggja þar ofan á. Auk þess höfum við i hyggjú að byggja leigu- og söluibúðir samkvæmt lögum um slikar byggingar á vegum sveitar- félaga. Við höfum þegar byggt 14 leiguibúðir eftir þessu kerfi og aðrar 14 söluibúðir. Eru þessar ibúðir i tveimur sam- býlishúsum. Mó <-------« Óskar Helgason. Kaupfélag Austur-Skaftfell- inga á Hornafirði rekur um- fangsmikla starfsemi. Auk verzlunarreksturs er það með frystihús sláturhús, mjólkurbú, bakari'og sitthvað fleira. Kaup- félagsstjóri er Hermann Hans- son og sagði hann i viðtali við blaðamann á dögunum að frystihúsið sem tekið var i notkun fyrir ári, væri stærsta fjárfesting kaupfélagsins til þessa. Kaupfélagið er ekki með út- gerð hún er alfarið i höndum einstaklingá sem leggja fiskinn siðan inn hjá kaupfélaginu. 1 vetur hafa átta bátar verið gerðir út á linu frá Hornafirði og fiskað vel en nú hafa þeir hafið netaveiðar. Alls eru 16-18 bátar gerðir út frá Hornafirði i vetur. Hermann sagði að út- flutningsverðmæti fisks sem unninn var i frystihúsinu sl. ár væri um 1,4 millj. kr. 1 vinnslu- sal er vinnuaðstaða fyrir um 90 manns en nú eru þar i vinnu 65 manns, en verkafólk hjá kaup- félaginu er alls um 230-240 manns. 1 Austur-Skaftafellssýslu eru nú um 120 bændur. Hermann sagði að búskapur i sýslunni væri þróttmikill, þótt meðal- tekjur bænda væru ekki nógu háar. Framleiðslan væri fremur vaxandi. Sl. haust var slátrað um 30 þúsund fjár i sláturhúsi félagsins og um 1900 þúsund litrar komu i mjólkurbúið á siðasta ári. MÓ Kaupfélag Austur-Skaftfellinga Hermann Hansson Umfangs- mikil starfsemi kaup- félagsins Afurðarlí að að hæ’ verulega — segir Ingólfur Björ Verðlagsmálin eru okkur bændum alltaf efst i huga sagði Ingólfur Björnsson bóndi á Grænahrauni i Austur-Skafta- fellssýslu i samtali við Tímann á dögunum. Mjög er mikilvægt að bóndinn fái verð vörunnar að mestu leyti greitt við afhend- ingu hennar, og til þess að svo megi verða þarf að hækka afurðalánin verulega svo að vinnslufyrirtækin geti greitt verðiðstrax. Það er ekki mönn- um bjóðandi að fá laun sin ekki greidd fyrr en löngu eftir að verkið hefur verið unnið.en með núverandi fyrirkomulagi er það i raun svo. Þá vil ég nefna þá óhæfu að bændur þurfi að greiða tolla, vörugjald og söluskatt af öllum þeim búvélum sem þeir þarfn- ast til búrekstursins. Væri þess- ari skattheimtu hætt, mætti lækka vöruverðið mikið. Þriðja málið sem ég vil nefna og tel mjög brýnt er það að

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.