Tíminn - 28.04.1978, Page 11
Föstudagur 28. april 1978
11
Reykjavík:
Mjög góð nýting á gistirými það sem af er apríl
ESE — Þaö sem af er aprilmán-
uði hefur nýting gistirýmis á
hótelum höfuðborgarinnar verið
mjög góð, og er það mál manna
að nýtingin hafi sjaldan eða
aldrei verið eins góð á þessum
árstima áður. Óvenju mikið er
um útlendinga i borginni, og að
undanförnu hafa verið haldnar
hér fjölmargar ráöstefnur með
þátttöku erlendra gesta. T.d. er
staddur hér þessa dagana 150
manna hópur norrænna bakara-
meistara, sem hingaö eru komnir
til fundarhalda. Einnig hefur
bilasýningin AUTO 78 dregið að
gesti, en áhugi manna út á lands-
byggðinni á sýningunni er mjög
mikill.
Við hringdum á nokkur hótel i
borginni í gær og könnuðum að-
sóknina það sem af er mánuðin-
um.
Erling Aspelund hótelstjóri á
Hótel Loftleiöum og Hótel Esju
sagði, að nýtingin á hótelunum
Pingeyri:
Bygging
viðbótarfrysti-
geymslunnar
ekki hafin
Undirritaður vill koma þeirri
leiðréttingu á framfæri, að rang-
lega er eftir honum haft I viðtali I
Timanum 6. april s.l. að verið sé
að byggja við frystigeymslu
Hraðfrystihúss Dýrfirðinga á
Þingeyri.
Bygging viðbótarfrystigeymslu
er fyrirhuguð, en nauðsynleg
lánafyrirgreiðsla hefur dregizt á
langinn. Þaö standa hins vegar
vonir til þess að slik bygging geti
risið á næsta ári.
Sigurður Kristjánsson
kaupfélagsstjóri
Norræna félagið:
Sænskunám-
skeið í Svíþjóð
Enn á ný býður Norræna félag-
ið i Norrbotten i Sviþjóð Islend-
ingum á sænskunámskeið i
Framnas lýðháskóla. Að þessu
sinni er boðið 112 þáttakendum
og stendur námskeiðið frá 31. júli
til 14. ágúst. Eftir það er ráðgerð
ferð um Nordkalotten sem lýkur
með þátttöku i Nordkalott-
ráðstefnu i Alta i Norður-Noregi
20. ágúst. Undirbúningsnámskeið
verður heima 2.-4. júni fyrir þá
útvöldu og hefur slikt reynzt
mjög vel undanfarin ár, bæði
hefur fólkið kynnzt' og fengið
fyrstu kynni af málinu og einnig
hefurkennarinn fundið út á h^aða
stigi hópurinn er og hagað
kennslu eftir þvi.
Umsóknareyðublöö og allar
nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu Norræna félagsins i
Norræna húsinu, simi 10165.
Skilafrestur
í skáldsagna-
samkeppni
MM að
renna út
15. mai n.k. rennur út skila-
frestur i skáldsagnasamkeppni
þeirra, sem efnt var til á 40 ára
afmæli Máls og menningar.
Verða veitt ein verðlaun, hálf
milljón króna, auk höfundar-
launa, sem nema 18% af forlags-
verði bókarinnar að frádregnum
söluskatti.
Félagið áskilur sér rétt til
útgáfu fleiri skáldsagna en
þeirrar er verðlaun hlýtur.
Sögur þær er sendast I keppnina
skulu merktar dulnefni en nafn
höfundar fylgja með I lokuöu
umslagi.
Dómnefnd skipa Sveinn Skorri
Höskuldsson prófessor, dr.
Jakob Benediktsson, Silja
Aðalsteinsdóttir cand. mag. og
Þorleifur Hauksson útgáfustjóri
Máls og menningar.
væri mjög góð og væri þessi april-
mánuður einn sá albezti siðan
Hótel Loftleiðir opnuðu 1966 og
myndi hann að öllum likindum slá
fyrri met hvað nýtingu varðaði,
en fyrstu 23 daga mánaðarins
hefði nýtingin verið rúmlega 78%.
Kvaðst hann ekki búast við þvi að
hún yrði minni það sem eftir væri
mánaðarins. Þá hefði nýting
einnig veriö miög góö á Hótel
Esju og nýtingarhlutfall þar svip
að og á Hótel Loftleiðum. Erling
kvað marga af þeirra gestum
vera stadda hér vegna bilasýn-
ingarinnar og nefndi i þvi sam-
bandi, að fólk kynni vel að meta
þann afslátt sem veittur væri á
ferðum og gistingu vegna hennar.
A Hótel Borg fengum við þær
upplýsingar, að þar væri allt fullt
út úr dyrum, og meira að segja
hefi þurft að nota setustofuna
undir gesti, auk þess sem þurft
hefði að visa fjölda manna frá.
Mikið væri um útlendinga á hótel-
inu, svo og fasta viöskipavini utan
af landi.
Konráð Guðmundsson á Hótel
Sögu tjáði okkur að þar hefði allt
verið fullt i nokkra daga og hefði
nýting verið þar mjög góð að und-
anförnu.
Konráö sagði að á hótelinu væri
nú staddur 150 manna hópur nor-
rænna bakarameistara, sem
hingað hefðu komið til funda-
halda og munaði um minna.
Þegar við höföum samband við
Hótel Holt.var okkur tjáð aö þar
hefði allt verið fullt undanfarna
daga og þar væri mjög mikið af
erlendum gestum, auk islenzkra
gesta.
A Hótel Heklu hefur einnig ver-
ið mjög góð nýting að undanförnu
og hefur þar yfirleitt verið fullt
fjármunarétt
Prófessor dr. jur. W.E. v.
Eyben frá Kaupmannahafnarhá-
skóla flytur opinberan fyrirlestur
i boði lagadeildar Háskóla Is-
lands og Lögfræðingafélags ís-
lands fimmtudaginn 27. april n.k.
Fyrirlesturinn, sem nefnist ,,Ný
viðhorf i norrænum fjármuna-
um helgar, þó að nokkuð hafi
aregiö úr aösókn I miðri viku.
Eins og sést á framangreindu,
er bjart framundan i hótelmálum
hérlendis i sumar ef framhaldið
verður eitthvað i likingu við á-
standið nú.
rétti,” verður haldinn kl. 17:15 i
stofu 101 I Lögbergi, húsi laga-
deildar.
Prófessor v. Eyben er I fremstu
röð norrænna fræðimanna I löe-
fræöi og hefur um langt árabil
tekið mikinn þátt i samstarfi nor-
rænna lögfræðinga. .
Háskólafyrirlestur um norrænan
er sameiqinleqt
með þeim öllum
Golfinn er léttur og lipur í umferðinni.
Hugvitsamleg hönnun hans veldur því að innra
rýmið er mikið og drjúgt en ytri mál eru miðuð við
að smjúga í umferðinni; það stæði finnst vart
sem Gplfinn smeygir sér ekki inn í.
Á vegum úti er Golfinn eins óg hugur manns.
Hægt er að breyta honum í sendibíl á svipstundu.
Það vekur athygli að Loftleiðir völdu Golfinn
af öllum þeim aragrúa bíla, sem bjóðast hér á
landi fyrir bílaleigu sína.
32 VnT.KSWAGKNGnT.FM
Derby sameinar smekklegt útlit, framúrskar-
andi ak8tur8eiginleika og þýska natni í frágangi.
Aðrir helstu kostir Derbys:
Hæð undir lœgsta punkt er 22,5 cm.
Sparneytinn svo af ber: hann varð nr. 1
í sparak8tur8keppninni í október ’77.
Farangur8rýmið er óvenju stórt, 515 lítrar.
Afþessu má sjá að Derby er tilvalinn ferða- og
fjölskyldubíll sökum sparneytni, hæðar frá
vegi og farangursrými8.
Það er eitt að kaupa bíl annað að reka hann:
Þú sem vilt tryggja þér góðá þjónustu,
VOLKSWAGENÞJÖNUSTU, velur því Golf, Derby
eða Passat. Einhver þeirra þriggja er
bíllinn fyrir þig og þína.
Passatinn er “stóri” bíllinn hjá Volkswagen.
Sportlegur bíll sem fœst í mismunandi gerðum:
2ja eða 4ja dyra, einnig með stórri gátt að aftan og
í “station” útfœrslu.
Við erfiðustu akstursskilyrði bregst hann
ekki, hvort heldur í snjó, hálku, rigningu eða
miklum hliðarvindi.
Ekki sakar útlitið: Passatinn er glœsilegur
vagn, rýmið mikið, frágangur og innréttingar
frammúrskarandi vandaðar.