Fréttablaðið - 17.08.2006, Side 2

Fréttablaðið - 17.08.2006, Side 2
2 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18. Opið virka daga: 10-18 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 LÍBANON, AP Háttsettir stjórnarer- indrekar unnu í gær hörðum hönd- um að því að skipuleggja friðar- gæsluleiðangurinn til Líbanons með um fimmtán þúsund her- mönnum frá hinum ýmsu þjóð- löndum. En líbanska ríkisstjórnin var enn klofin í afstöðu til kröfu- gerðar um afvopnun Hizbollah- liða eða yfirleitt hvort vopnuðum Hizbollah-liðum skyldi gert að dvelja ekki í grennd við landa- mærin að Ísrael. Hizbollah á tvo ráðherra í stjórninni. Talsmenn Hizbollah lýstu því yfir að samtökin myndu hjálpa tug- þúsundum skjólstæðinga sinna að endurbyggja hús sín og heimili sem voru eyðilögð í hinu mánaðar- langa stríði við Ísraelsher. Þess var vænst að með slíkum fyrirheitum myndu samtökin festa í sessi vin- sældir sínar meðal sjía-múslima í Líbanon, en þeir eru rúmlega þriðj- ungur þeirra fjögurra milljóna manna sem í landinu búa. Philippe Douste-Blazy, utanrík- isráðherra Frakklands, var í Beir- út í gær til að ræða málin við þar- lenda ráðamenn. Frakkar hafa boðist til að fara fyrir alþjóðlega friðargæsluliðinu og leggja til vænan hluta liðsmanna þess. Ráð- herrann vildi þó ekki nefna neina tölu um það hve margir franskir hermenn yrðu í liðinu. Auk alþjóðaliðsins stendur til að líb- anski herinn leggi til fimmtán þús- und manna lið til að sinna gæslu í Suður-Líbanon. Forsvarsmenn Ísraelshers hafa ítrekað að þeir muni ekki kalla sitt lið að fullu frá Suður-Líbanon fyrr en alþjóðlega gæsluliðið er komið á vettvang. Þó var nokkuð um liðs- flutninga Ísraela suður yfir landa- mærin í gær. Talsmaður friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna í Suður-Líb- anon, UNIFIL, greindi frá því að líbanski herinn myndi hefja liðs- flutninga í dag til „umtalsverðs hluta“ Suður-Líbanons. Douste-Blazy hvatti Ísraels- stjórn til að aflétta hafn- og flug- banni því sem Ísraelsher hefur haldið uppi í Líbanon. Hafnbannið er að hans sögn óþarft eftir að vopnahléið tók gildi og batt enda á 34 daga átök. audunn@frettabladid.is Línur að skýrast um friðargæslu í Líbanon Frakkar munu fara fyrir 15.000 manna alþjóðlegu friðargæsluliði í Suður-Líbanon. Líbanonstjórn er enn klofin í afstöðu til afvopnunar Hizbollah. Ísraelsher heldur áfram liðsflutningum suður yfir landamærin en heldur enn uppi hafnbanni. EYÐILEGGING Beirút-búar ganga um götu í suðurhluta borgarinnar þar sem eyðileggingin af völdum loftárása Ísraela var hvað mest. And- bandarískur áróðursborði hangir í baksýn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SAMFYLKINGIN Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, þingkona Samfylkingar- innar, ætlar að bjóða sig fram í fyrsta sæti fyrir flokk sinn í Suð- vesturkjördæmi. „Ég vil gefa kost á mér á nýjan leik og hef hug á því að vera í forystu- sveit Samfylking- arinnar. Ég hef setið á þingi frá 1999 og er bjart- sýn á stöðu Sam- fylkingar í mínu kjördæmi og er sannfærð um að spennandi kosn- ingavetur sé framundan.“ Aðrir þingmenn Samfylkingarinn- ar í Suðvesturkjördæmi eru Katr- ín Júlíusdóttir, Rannveig Guð- mundsdóttir og Valdimar Leó Friðriksson. Ekki hefur verið ákveðið ennþá hvort stillt verður upp á lista í kjördæminu eða hald- ið prófkjör. - mh Þórunn Sveinbjarnardóttir: Býður sig fram í fyrsta sæti ÞÓRUNN SVEINBJARNAR LAUGARDALSVÖLLUR Nokkrar sæta- raðir í H-stúku Laugardalsvallar hrundu niður á gólfið á meðan á leik Íslendinga og Spánverja stóð í fyrradag. Sætin í viðkomandi stúku eru glæný og höfðu verið fest rétt áður en flautað var til leiks. Magnús Áskelsson, einn þeirra sem sat í sætaröð sem hrundi, segir fólkið sem var í sætunum hafa þurft að sitja í stigum stúk- unnar eða öðrum lausum sætum það sem eftir var leiks. Í hálfleik hefðu starfsmenn vallarins komið að sækja þær sætaraðir sem stóðu ekki lengur uppi. „Við náðum að standa upp áður en okkar röð hrundi alveg, það voru tvær búnar að hrynja fyrir neðan okkur. Þetta setti svartan blett á annars frá- bæran leik.“ Geir Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri KSÍ, segir afskap- lega leiðinlegt þegar svona kemur upp á en þetta geti gerst þegar ný sæti eru tekin í notkun. Alls hrundu sextíu sæti niður á gólf. „Við erum með nöfnin á þeim sem voru í þessum sætum. Þeim verður boðið upp á að fá miðann endurgreiddan eða frímiða á næsta leik.“ Hann segir steypu- galla hafa valdið því að festingar hafi losnað með fyrrnefndum afleiðingum. - sþs Ný sæti voru tekin í notkun á Laugardalsvellinum á landsleiknum í fyrradag: Sextíu sæti hrundu á gólf stúkunnar MAGNÚS VIÐ STÚKUNA Hann segir hrunið hafa sett svartan blett á annars frábæran leik. KSÍ ætlar að endurgreiða þeim sem voru í sætunum sem hrundu. FJÖLMIÐLAR Dagsbrún verður minni- hlutaeigandi í Nyhedsavisen og sjóður verður stofnaður um blaðið sem félagið mun reka og fá tekjur af. Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir stofnun sjóðsins ekki varnarvið- brögð Dagsbrúnar við mikilli sam- keppni á dönskum fríblaðamarkaði. Dagsbrún sé fyrst og fremst rekstr- arfélag með ákveðin fjárfestingar- verkefni. Það sé skynsamlegra að halda svo stóru „start-up“ verkefni utan samstæðunnar. Dagsbrún mun leggja sex hundr- uð milljónir til sjóðsins og verður áhætta hluthafa félagsins takmörk- uð við þær. Að öðru leyti verða eig- endur sjóðsins fáir en stórir inn- lendir og erlendir aðilar. Gunnar Smári segir að Dagsbrún hafi þegar tryggt um sjötíu prósent af þeim fjármunum sem þörf er á næstu þrjú árin. Stefnt sé að því að fjár- mögnun ljúki á næstu vikum og þá verði tilkynnt um hverjir fjárfest- arnir eru. Gunnar Smári segir sam- keppnina í Danmörku vissulega hafa verið meiri en búist var við í upphafi. Flest hinna fríblaðanna beri þó með sér handbragð fljót- færni og því óttist Dagsbrún ekki samkeppnina frá þeim. „Þetta eru í raun ekki alvöru leikmenn. Það má frekar líkja þeim við þá sem hlaupa naktir inn á völlinn til að trufla leik- inn.“ - hhs GUNNAR SMÁRI EGILSSON Dagsbrún takmarkar áhættuna af Nyhedsavisen: Dagsbrún verður minnihlutaeigandi DANMÖRK Kaupmannahafnarbúar fengu í gær fyrstu eintökin af Dato, nýju fríblaði Berlingske Officin. Því verður dreift á um 500 þúsund heimili á Kaupmannahafn- arsvæðinu og í Árósum. Þar með varð Berlingske fyrst til að koma slíku fríblaði á mark- að. Fríblað JP-Politiken, 24timer, kemur einnig út í fyrsta sinn í dag. Útgefendur beggja blaða hafa ekki farið í neinar grafgötur með það að nýju blöðunum sé stefnt gegn Nyhedsavisen, sem 365 Media Scandinavia ætlar að hefja útgáfu á í haust. „Sum þessara fríblaða munu ekki lifa, því það er ekki nægt aug- lýsingafé á markaðnum til að þau geti öll staðið undir sér,“ hefur AP-fréttastofan eftir danska fjöl- miðlarýninum Malene Birkebæk Hubertz. Hún segir að fríblöðin verði að vinna til sín að minnsta kosti helming dagblaðaauglýs- ingamarkaðarins til að komast af. - aa FRÍBLAÐASTRÍÐ Blaðberi býður vegfaranda í Kaupmannahöfn eintak af MetroExpress, fríblaði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Danska fríblaðastríðið: Berlingske varð fyrst með blað LÖGREGLUMÁL Tæplega þrítugur maður hefur játað að hafa ráðist á stúlku í Breiðholti í síðustu viku og reynt að nauðga henni. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu en ekki í tengslum við ofbeldisglæpi. Maðurinn var handtekinn í vinnu sinni og játaði við yfirheyrslur. Lögreglu er ekki kunnugt um geðheilsu mannsins, en hann beit stúlkuna í hálsinn í miðri árásinni. Bjarnþór Aðalsteinsson, lög- reglufulltrúi í ofbeldisbrotadeild lögreglunnar, segir mikinn létti að búið sé að klófesta manninn. Nær allir í ofbeldisbrotadeildinni hafi unnið að málinu undanfarið. - æþe Nauðgunartilraun í Breiðholti: Maður játaði við yfirheyrslu BOSTON, AP Herþotur fylgdu banda- rískri breiðþotu á leið frá Lundún- um til Washington DC til lending- ar á Logan-flugvelli við Boston í gær, eftir að flugstjórinn tilkynnti um neyðarástand um borð. Orsök- in var þó ekki alvarlegri en sú að farþegi, sem þjáðist af innilokunar- kennd, tók kast. Þrátt fyrir að alríkislögreglu- menn hefðu fljótt fengið staðfest að neyðarástandstilkynningin hefði ekki átt sér alvarlegri for- sendur var allur farangur úr vél- inni settur í öryggisskönnun og farþegarnir yfirheyrðir. - aa Taugaveiklun í háloftunum: Þotu lent er far- þegi fékk kast LENTI Í BOSTON Flugstjórinn tilkynnti um neyðarástand um borð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS Eiríkur, eru einkaskólar málið? „Nei, alls ekki, því einkaskólar geta valið sér nemendur og taka þá aðeins inn sem standast gæðamat.“ Samkvæmt rannsókn menntamálayfirvalda í Svíþjóð sýna sænskir nemendur betri námsárangur í þeim sveitarfélögum þar sem hlutfall einkaskóla er hátt. Stroessner deyr Alfredo Stroessner, sem var einræðisherra í Paragvæ í 35 ár, dó í útlegð í Brasilíu í gær, 93 ára að aldri. Stroessner var hershöfðingi og mikill andkommúnisti og stjórnaði landi sínu með blöndu af valdbeitingu, kænsku og bitlingum, uns honum var bolað frá völdum árið 1989. PARAGVÆ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.