Fréttablaðið - 17.08.2006, Page 6

Fréttablaðið - 17.08.2006, Page 6
6 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR BANASLYS Sveinn K. Rúnarsson, varðstjóri í lögreglunni á Hvols- velli, segir slysahættu í íshellun- um við Hrafntinnusker vera mikla og ráðleggur öllum þeim sem eiga leið um Laugaveg að fara ekki inn í hell- ana. „Þeir sem fara inn í hellana eru í lífshættu. Við lokuðum af hellinum þar sem slysið varð með lögregluborða en að öðru leyti eru ekki merkingar á svæðinu. Ferða- menn eiga ekki að fara inn í íshell- ana, við þær aðstæður sem nú eru. Þarna er mikil hætta á ferðum.“ Arnar Páll Gíslason, sem er í björgunarsveitinni Ársæli í Reykjavík, var í skálanum við Hrafntinnusker er slysið varð og fór ásamt félaga sínum inn í hell- inn. „Ég fór strax á slysstaðinn og gerði mér grein fyrir því að það var mikil hætta á hruni í hellinum. Skömmu eftir að við höfðum komið manninum út úr hellinum hrundi úr loftinu á þann stað þar sem við höfðum verið skömmu áður. Það voru líklega yfir hundr- að kílóa hnullungar sem hrundu úr loftinu. Þarna var einfaldlega ekki óhætt að vera.“ Félagi Arnars Páls, Guðmund- ur Sigurðsson, björgunarsveitar- maður úr Hafnarfirði, var með Arnari á slysstað og hjálpuðust þeir að við að komast út úr hellin- um með manninn. - mh KJÖRKASSINN Þarf að efla gæslu á skemmti- stöðum? Já 78% Nei 22% SPURNING DAGSINS Í DAG Ert þú fylgjandi hrefnuveiðum í vísindaskyni? Segðu skoðun þína á Vísi.is FRÁ ÍSHELLINUM VIÐ HRAFNTINNUSKER Mikil hætta er á hruni úr lofti íshella á svæðinu þar sem slysið varð. Lögreglumenn á Hvolsvelli stjórnuðu aðgerðum eftir slysið. FRÉTTABLAÐIÐ/FÍ BANASLYS Þýskur karlmaður á fer- tugsaldri lést er hann varð undir íshnullungum sem hrundu úr lofti íshellis skammt frá Hrafntinnu- skeri í gær. Íshellirinn er um tíu kílómetra frá Landmannalaugum. Maðurinn var inni í hellinum ásamt ferðafélaga sínum, sem slapp ómeiddur. Félagi mannsins tilkynnti um slysið rétt fyrir hálf níu í gærmorgun eftir að hafa hlaupið stuttan spöl til þess að komast í símasamband. Tveir björgunarsveitarmenn, Guðmundur Sigurðsson og Arnar Páll Gíslason, voru á ferð skammt frá slysstaðnum og gátu hjálpað til við að koma manninum, sem talinn er hafa látist samstundis, út úr hellinum. Lögreglumenn frá lögreglunni á Hvolsvelli komu skömmu síðar á staðinn og tóku við stjórn á vettvangi. Íshellirinn við Hrafntinnusker, þar sem slysið varð, er vinsæll ferðamannastaður. Fjöldi fólks sem gengur Laugaveginn skoðar hellinn á hverju ári. Baldur Ólafsson, formaður björgunarsveitarinnar Dagrenn- ingar á Hvolsvelli, segir mikla hættu geta skapast inni í hellun- um yfir sumarið. „Þessir hellar hafa alltaf verið varasamir og það er kominn tími til þess að það verði settar upp merkingar til þess að gera ferðamönnum grein fyrir hættunni sem skapast getur í hellunum. Það eru engar merk- ingar í grennd við hellana sem gefa til kynna að hætta geti verið á hruni í hellunum.“ Maðurinn sem lést og félagi hans hittust á Höfn í Hornafirði fyrir skemmstu og fóru saman upp í skálann við Hrafntinnu- sker, þar sem þeir gistu aðfara- nótt miðvikudags. Þeir gengu upp að hellunum snemma morg- uns í gær og voru búnir að vera í hellunum í skamma stund þegar slysið varð. Björgunarsveitir frá Hvols- velli og Hellu tóku þátt í aðgerð- um á slysstað en þyrla Landhelg- isgæslunnar fór ekki á vettvang, eftir að ljóst var að maðurinn hafði látist samstundis. magnush@frettabladid.is Beið bana í íshelli við Hrafntinnusker Þýskur ferðamaður lést vegna hruns úr lofti íshellis við Hrafntinnusker skammt frá Landmannalaugum. Félagi mannsins slapp ómeiddur. Íshellarnir eru varasamir og það verður að koma upp merkingum, segir Baldur Ólafsson. Ráðleggja ferðamönnum að fara ekki inn í íshellana: Í lífshættu inni í hellunum SVEINN K. RÚN- ARSSON HEILBRIGÐISMÁL Fimmti hver Íslendingur þjáist af einhvers konar gigtarsjúkdómi en bylting hefur orðið í meðferð sjúkdóm- anna, að sögn Björns Guðbjörns- sonar, dósents í gigtarlækningum og formanns Félags íslenskra gigt- arlækna. „Byltingin hefur falist í nýrri kynslóð gigtarlyfja sem hefur gjörbreytt meðferðinni og hefur veruleg áhrif á lífsgæði gigtarsjúkra, þá helst þá sem eru með hrygggikt, iktsýki og sóra- gigt,“ segir Björn. „Lyfin sem við höfum verið að nota í áratugi hafa komið frá öðrum sviðum, t.d. krabbameinslyf, en nýju lyfin eru hönnuð fyrir gigtarsjúklinga og hafa bein áhrif á ákveðna liði. Þannig getum við stjórnað þessu betur.“ Fjallað verður um nýja meðferð- armöguleika á ráðstefnu sem Norræna gigtar- læknafélagið stendur fyrir á Íslandi í vikunni, en tæplega fimm hundruð þátttak- endur koma hvaðanæva að úr heiminum til að sitja ráðstefnuna. „Við höfum fengið til liðs við okkur heimsþekkta fyrirlesara sem munu flytja stór yfirlitserindi um það nýjasta á hverju sviði,“ segir Björn. Gigtarsjúkdómar eru milli tvö og þrjú hundruð talsins en hér á landi eru beinþynning, liðagigt og slitgigt algengastir. Björn segir að sumir gigtarsjúkdómar séu mun algengari í Norður-Evrópu en ann- ars staðar, svo sem beinþynning. „Þar kemur til vafalaust eitthvað erfðafræðilegt, en íslenskir gigt- arlæknar hafa unnið umtalsverða vinnu með Íslenskri erfðagrein- ingu,“ segir Björn. Hann bendir jafnframt á að fjöldi aldraðra sé að aukast og þar með verði aldurs- tengdir gigtarsjúkdómar meira áberandi. - rsg Fimmti hver Íslendingur er með gigtarsjúkdóm: Bylting í meðferð gigtar SKÁLINN VIÐ HRAFNTINNUSKER Maðurinn sem lést gisti ásamt félaga sínum í skálan- um nóttina áður en hann lést. FRÉTTABLAÐIÐ/FÍ 5 km 0 10 Tindfjalla- jökull Laufafell HRAFNTINNUSKER Torfajökull M Ý R D A L S - J Ö K U L L LANDMANNALAUGAR Emstrur Álftavatn M ar ka rfl jó t Tu ng na á Mælifellssandur ➧ ➧ ✘ BJÖRN GUÐ- BJÖRNSSON SKÓLASTARF Enn vantar 25 starfs- menn á frístundaheimilin í Graf- arvogi að sögn Þóru Melsted, deildarstjóra barnastarfs hjá Gufunesbæ í Grafarvogi. „Lengstur er biðlistinn í Rima- skóla en þar bíða fimmtíu börn þess að fá pláss á frístundaheim- ili skólans. Frístundaráðgjafar eiga að taka til starfa eftir viku svo við leggjum allt kapp á að manna þær stöður sem enn eru lausar.“ Þóra segir töluvert um að for- eldrar barna á biðlista hringi og spyrji hvernig staðan sé og segir nokkurrar örvæntingar gæta hjá sumum þeirra. - hs 50 börn í Rimaskóla bíða: Frístundaráð- gjafa vantar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.