Tíminn - 17.05.1978, Síða 6
6
MiOvikudagur 17. mai 1978
Wímívm___
Fjórtán og hálfur
milljarður til hafnar-
framkvæmda á 4 árum
— Ræða samgönguráðherra, Halldórs E.
Sigurðssonar, um skýrslu um hafnarfram
kvæmdir á árinu 1977. Flutt á Alþingi.
Skýrsla sú, sem hér liggur fyrir
um hafnarframkvæmdir á árinu
1977, er lögö fram i samræmi við
ákvæOi i 10. gr. hafnalaga. 1
skýrslunni er yfirlit um fjárveit-
ingar og framkvæmdir i höfnum,
sem falla beint undir hafnalögin.
og enn fremur yfirlit um fram-
kvæmdir i landshöfnum, ferju-
höfnum og Reykjavikurhöfn.
Samkv^emt skýrslunni uröu
heildarframkvæmdir i hafnar-
gerðum á landinu á s.l. ári alls
2.178.1 millj.kr., sem er 296
millj.kr. hærra en árið áður eöa
hækkun um 15.7%. Af þessum
2.178.1 millj.kr. voru samtals
1.278.8 millj.kr. til framkvæmda i
almennum höfnum eða 58.7%. A
Grundartanga var framkvæmt
fyrir 391.3 millj.kr., en þótt sú
framkvæmd heyri undir almennu
hafnalögin, er hún nokkuð sér-
staks eðlis. Hlutfallslega námu
framkvæmdir þar 18.0% af
heildarframkvæmdunum, eða á
Grundartanga að viðbættum al-
mennum höfnum samtals 76.7%. í
landshöfnunum þremur, Kefla-
vik — Njarövik, Rifi og Þorláks-
höfn, námu framkvæmdir 174.0
millj.kr. eða 8.0%, og i Reykja-
vikurhöfn, sem heyrir undir al-
mennu hafnalögin, en nýtur ekki
fjárveitinga úr rikissjóði, 328.0
millj.kr. eða 15.1%. Loks urðu
framkvæmdir i ferjuhöfnum 6.0
millj.kr.
Almennar
hafnir
Sé litiö á almennu hafnirnar
sérstaklega, en eins og ég sagði
áöan námu framkvæmdir við þær
tæplega 1.279 millj.kr., kemur i
ljós, að framkvæmdir þar eru
jafnari en oft áður og minna ber á
sérstökum stórframkvæmdum.
Þó hafa Akranes og Vopnafjörður
þarna nokkra sérstööu, en á
Akranesi urðu framkvæmdir fyr-
ir 151.1 millj.kr. og á Vopnafirði
125.0 millj.kr. Siðan kemur stórt
stökk niöur i þriðju stærstu fram-
kvæmdina, á Þingeyri, sem nam
72.3 millj.kr. A Akureyri urðu
framkvæmdir 72.1 millj.kr. og
siðan er fimmta stærsta fram-
kvæmdin, i Sandgerði, rétt ofan
við 52 millj.kr. A sex stööum uröu
framkvæmdir á bilinu 40-50
millj.kr. eða samtals 264.1
millj.kr. A þeim ellefu stöðum,
sem hér hafa verið nefndir og eru
með framkvæmdir ofan viö 40
millj.kr., var rétt tæpur helming-
ur framkvæmdamagnsins. Hinn
helmingurinn skiptist svo á 44
staði, þar af eru 12 staðir á bilinu
20-40 millj.kr., 15 staðir með
framkvæmdir milli 2.0-20.0
millj.kr. og loks 17 staðir, em eru
meö framkvæmdir innan viö 2.0
millj.kr., en þar er undan-
tekningarlaust um að ræða verk-
lok eða kostnað viö mælingar eða
aðrar rannsóknir.
Til þeirra framkvæmda, sem
hér greinir, voru á fjárlögum
siðasta árs veittar 931.6 millj.kr.
til framkvæmda i almennum
höfnum, auk 150.0 millj.kr. til
Grundartangahafnar. Til lands-
hafna voru veittar 195.0 millj.kr
og til ferjuhafna 17.0 millj.kr.
Fjárveitingar úr rikissjóöi til
hafnargerða voru þannig i heild
1.293.6 millj.kr.
Hafnarbóta-
sjóður
Er þá rétt að fara næst nokkr-
um oröum um Hafnabótasjóð, en
auk þess sem rikissjóður veitir
bein, óafturkræf framlög til
hafnargeröa, er um aö ræða beina
fjárveitingu til Hafnabótasjóðs,
sem nam á siðasta ári 111.8
millj.kr. Sjóðurinn veitir siðan
lán eða styrki til almennra
hafnargerða til að fjármagna
hluta af heimaframlagi viðkom-
andi hafnarsjóða. Samkvæmt 19.
gr. hafnalaga veitir sjóðurinn i
fyrsta lagi hafnarsjóðum lán til
framkvæmda gegn rikisábyrgð. I
öðru lagi er honum heimilt að
styrkja endurbætur á hafnar-
mannvirkjum, sem skemmzt
hafa af völdum náttúruhamfara
eða öðrum óviðráðanlegum or-
sökum. 1 þriðja lagi er honum
heimilt að veita styrk til nýrra
hafnarframkvæmda, sem nemi
allt að 15% umfram rikisframlag
af heildarframkvæmdakostnaði,
til staða sem eiga við fjárhags-
örðugleika að etja vegna dýrra
hafnarmannvirkja, fólksfæðar
eða annarra gildra orsaka. Loks
er honum i fjórða lagi heimilt að
veita hafnarsjóöum lán út á
væntanleg rikisframlög. A sið-
asta ári voru veitt úr sjóðnum föst
lán samtals að fjárhæð 202.0
millj.kr. til 31 hafnar. Styrkir til
framkvæmda samkvæmt áður-
greindri heimild i hafnalögunum
urðu 44.7 millj.kr. til 9 staða. Hef-
ur nú undanfarin tvö ár veriö far-
ið meira inn á þá braut að nota
þessa heimild og er það von min,
aö á þann hátt megi koma i veg
fyrir eða að minnsta kosti minnka
þá erfiðleika, sem ýmsir hafnar-
sjóðir hafa átt i með endur-
greiöslur lána. önnur megin-
regla, sem höfð var i huga viö út-
hlutun fjár úr Hafnabótasjóöi,
var að lán til einstakra hafnar-
sjóða færu ekki yfir 15% fram-
kvæmdarkostnaðar, þannig aö
þeir sæju sjálfir um fjáröflun fyr-
ir 10%. Útkoman hefur lika oröið
sú, að lán og styrkir nema sam-
tals 266.7 millj.kr. af tæplega 350
millj.kr. heimahluta, sem þó er
nokkuð meira en að heimahlutinn
hafi veriö fjármagnaöur að 3/5
hlutum úr Hafnabótasjóði.
Bráðabirgðalán úr Hafnabóta-
sjóði uröu á árinu 90 millj.kr. til
fjögurra staða og var þar yfirleitt
um að ræða lán, sem urðu til
vegna óhjákvæmilegra fram-
kvæmda umfrám f járlög og verða
greidd að verulegu leyti til
Hafnabótasjóðs aftur á þessu ári,
þar sem yfirleitt var um að ræða
hrein rikisframlög.
Til þess að geta staðið undir
lánveitingum sinum tók Hafna-
bótasjóður, eins og stundum áður,
bráðabirgðalán hjá Atvinnu-
leysistryggingasjóði siðari hluta
ársins, að upphæð 120 millj.kr.
Þetta lán hefur þegar verið
endurgreitt.
Nýi Grettir
reynist vel
Unnið var að þvi með góðum
árangri á siðasta ári að bæta
tækjakost Hafnamálastofnunar-
innar til dýpkunar hafna, en
Gretti, hinu gamla grafskipi
stofnunarinnar, var lagt á árinu
1976, enda ekki hagkvæmt að gera
hann út lengur. 1 þvi skyni að afl-
að yrði nýs graftækis voru á fjár-
lögum ársins 1977 veittar 30
millj.kr. til kaupa á nýjum tækj-
um. Varð niðurstaðan sú, eftir
rækilega könnun, að keyptur var
hingað gröfuprammi, sem norsk-
ur aðili hafði þróaö. Var gerður
samningur við hann um smiði
sliks pramma strax i ársbyrjun
1977 og jafnframt var boðin út
smíði tveggja efnisflutninga-
pramma og samið um smiði
þeirra við lægstbjóðanda, Vél-
smiðjuna Stál á Seyðisfirði. Hinn
nýi gröfuprammi, sem einnig
hlaut nafnið Grettir, kom til
landsins seinni hluta júnimánað-
^ar og var settur i hann hér sér-
stakur gröfubúnaöur.
Nýi Grettir reynísí mjög vel viö
þau störf, sem honum eru ætluð
og má segja að tilkoma hans þýði
nánast byltingu i dýpkunarmál-
um hafna hér á landi. Hann var
viö gröft i fimm höfnum á land-
inu, en mest verk innti hann af
hendi á Skagaströnd.
Hákur, dæluprammi Hafna-
málastofnunarinnar, var á árinu
við dælingu i fimm höfnum og
reyndist sem áður ágætlega.
Líkan-
tilraunir
Likantilraunir Hafnamála-
stofnunarinnar, sem nú eru i
leiguhúsnæði við Funahöfða i
Reykjavik, hófust þar i april 1977
meö þvi að byggt var likan af
Vopnafjarðarhöfn. Lokið var við
þessar likantilraunir i lok júli og
var stefna og lega nýja hafnar-
garðsins á Vopnafirði ákveðin á
grundvelli þeirra niðurstaðna,
sem likantilraunin gaf. Siðar á
árinu var byggt likan af Akranes-
höfn og var enn unnið aö þeirri
likantilraun um áramót.
Hafnafram-
kvæmdir
s.l. f jögur ár
Nú þegar komið er að lokum
yfirstandandi kjörtimabils þykir
mér hlýða að gefa i stórum drátt-
um yfirlit yfir það fjármagn sem
varið hefur verið til hafnargerða
á undanförnum fjórum árum, þ.e.
árunum 1974 til og með 1977.
Miðað viö verðlag hvers árs hefur
á timabilinu verið varið 4.222
millj. kr. til almennra hafnar-
gerða, 1.856 millj. kr. til lands-
hafna og 564 millj. kr. til hinna
sérstöku hafnargerða á Grundar-
tanga og i Karlsey. Fram-
kvæmdir I almennum höfnum
skiptast þannig i grófum dráttum
og er þá reiknað út frá verðlagi
hvers árs að um 20% fram-
kvæmdafjárins hefur farið i
Reykjaneskjördæmi og munar
þar auðvitað mest um fram-
kvæmdirnar I Grindavik. Til
Austurlands fer örlitiö minna eða
19.3%. 17.6% i Norðurlandskjör-
dæmi eystra.14.6% i Vesturlands-
kjördæmi.12.9% i Vestfjarðakjör-
dæmi.10.1% i Norðurland vestra
og loks 5.1% i Suðurlandskjör-
dæmi. Sé framkvæmdum við
landshafnir bætt viö almennar
framkvæmdir sem er eðlilegt að
gera verða þessi hlutföll nokkuð
önnur. Heildarframkvæmdar-
kostnaðurinn verður þá 6.078
millj. kr. Þar af er Suöurlands-
kjördæmi meö 27.8%, Reykjanes-
kjördæmi með 17.7%, Austur-
landskjördæmi með 13.4%,
Norðurland eystra með 12.2%,
Vesturlandskjördæmi 12.0%,
Vestfirðir með 8.9% og loks
Norðurland vestra með 7.9%.
Sé litið á framkvæmdir undan-
farinna fjögurra ára i ljósi verð-
lags eins og það er orðiö i dag,
breytast framkvæmdatöiurnar að
sjálfsögðu verulega. Þeir 6.1 mill-
jarður kr. sem framkvæmdir
námu i almennum höfnum og
landshöfnum á timabilinu yrðu þá
um 13.5 milljarðar kr. og um 14.4
milljarðar kr. i höfnunum i Karls-
ey og Grundartanga meðtöldum.
Stórfelldar
framkvæmdir
i Grindavík
og
Þorlákshöfn
Það hefur þvi þegar á heildina
er litið verið varið verulegu f jár-
magni til hafnargerða á Islandi
þessi fjögur ár og verulegur
árangur náðst i framkvæmdum
og nægir þar að benda á hinar
stórfelldu framkvæmdir i
Grindavik og Þorlákshöfn.
Hafnirnar voru i upphafi þessa
timabils á margan hátt vanbúnar
að taka á móti þeirri endurnýjun
skipaflotans sem þá var að eiga
sér stað með fleiri og stærri fiski-
skipum sem kröfðust betri að-
stöðu i höfnunum. Ég tel að á
þessum fjórum árum hafi tekizt
að allverulegu leyti að laga
hafnirnar að þessum nýju að-
stæðum. Þvi er þó ekki fyrir aö
synja að ýmislegt er enn ógert
enda eru hafnirnar ekki aðeins
grundvöllur undir atvinnulífi fjöl-
margra en fámennra byggðar-
laga i kringum landiö heldur
einnig þýðingarmikil samgöngu-
tæki. Þær eru frumskilyrði þess
að hægt sé að halda uppi búsetu á
fjölmörgum stöðum hér á landi og
þvi áhugamál hvers og eins á
þessum stöðum að staðið sé sem
bezt að þessum málum. Þar sem
hafnirnar eru að landshöfnunum
undanskildum eign viðkomandi
sveitarfélaga og ríkisframlagiö
er óafturkræft er það ljóst að það
verður um leið bæði hagsmuna-
mál og áhugamál ibúanna i
viðkomandi sveitarfélögum
hvernig höfnin er rekin og
hvernig staðið er þar að nýjum
framkvæmdum. Þaðerþvi mikils
virði að sem mest og bezt sam-
starf sé milli hafnarsjóðanna
annars vegar og Hafnamála-
stofnunar og samgönguráðu-
neytis hins vegar. Mynduðu
hafnirnar fyrir nokkrum árum
Hafnasamband sveitarfélaga til
að koma fram fyrir þeirra hönd
og starfa að sameiginlegum
áhugamálum þeirra. Hefur
árangur af starfi sambandsins
orðið eins og bezt verður á kosið.
Til þess að auka og bæta þetta
samstarf eins og unnt væri
skipaði ég i ársbyrjun 1975, með-
fram fyrir óskir hafnasambands-
ins, sérstaka samstarfsnefnd að
hafnamálum,sem I eiga sæti einn
fulltrúi frá sambandinu.einn full-
trúi úr samgönguráðuneytinu og
fulltrúi skipaður af ráöherra, auk
tveggja varamanna sem mæta
skulu á fundum nefndarinnar við
og við.
Hafnarmálastjóri situr auk
þess alla fundi nefndarinnar.
Tel ég ótvirætt að störf
nefndarinnar hafi stuðlað að
bættu samstarfi og skilningi milli
þeirra óliku aðila sem aö hafnar-
gerðum standa.
Halldór E. Sigurösson samgönguráöherra heldur stutta rcöu á slöasta þingflokksfundi Framsóknar-
flokksins á nýafstöönu þingi. Timamynd: Róbert.