Tíminn - 17.05.1978, Síða 28
FÆRIBANDAREIMAR
í METRATAU
LANDVÉLAR HF.
Smiðjuvegi 66. Sími:76600.
tTfmÍW Miðvikudagur 17. maí 1978 62. árgangur 100. tölublað
Dj úpborunin á Reyðarfirði
verður framkvæmd í sumar
Bornum skipað út í Bandaríkj unum í dag
SJ — Nú er afráöið að Ur þvi
verður að borað verður niður á
tveggja km dýpi og náð upp
heilum borkjarna i þvi skyni aö
kanna gerð jarðskorpunnar
austur á Reyðarfirði i sumar. A
tlmabili leit út fyrir að ekki yrði
af djúpborun þessari og rann-
sóknum henni tengd vegna
verkfallsaðgerða. Nú hefur hins
vegar rætztúrmálum. Bor.sem
flytja átti sjóleiðis frá Kanada
hingað, var fluttur á flutninga-
bifreið til Bandarikjanna og
verður væntanlega skipaö um
borð f skip Eimskipafélags Is-
lands i Portsmouth Virginiu i
dag og kemur til Reykjavikur
29. mai.
Ingvar Birgir Friðleifsson hjá
Orkustofnun sagði Timanum að
sennilega hæfist borun i fyrstu
vikunni i júni. Borun þessi og
rannsókn verða unnar i sam-
vinnu ýmíssa þjóða og leggja Is-
lendingar, Kanadamenn, Bret-
ar og Bandarikjamenn mest
fram af kostnaðinum, sem er
áætlaður 60-100 milljónir Isl. kr.
Jafnframt þvi aö kanna jarð-
skorpuna hefur Orkustofnun
áhuga á aö komast eftir þvi
hvort jarðhiti finnist á Austur-
landi. Borað verður á mótum
Stuðlaár og Fagradalsár. Starf-
ið eystra tekur um fjóra mán-
uði. Að jafnaði verða 15 menn á
Reyðarfirði, islenzkir og er-
lendir, og hafa þeir aðsetur i
húsnæði Sildarverksmiðja rikis-
ins. Fyrstu erlendu visinda-
mennirnir eru væntanlegir um
mánaðamótin. Búizt er við að
heldur fleiri verði við rann-
sóknirnar i júli og ágUst.
Fjölmenni fylgdist með hvltasunnukappreiðum Fáks, sem fram fóru
s.l. mánudag, og háðu þar margir gæðingar harða keppni. Myndin er af
sigurvegaranum I 800 metra stökki, Þjálfa, sem hljóp vegalengdina á
63.1 sek. Nánar verður skýrt frá kappreiðunum iblaðinu siðar.
Kyrrt á Kópaskeri
KEJ — Engar jarðskjálfta-
hræringar voru á Kópaskeri i
gærdag, tjáði blaðinu Friðrik J.
Jónsson oddviti þar, en þó væri
kviði i sumum, einkum börnum
og einstaka fullorðnum. Nokkur
jarðskjálf tahrina hefur gengið yf-
ir á Kópaskeri hvitasunnudagana
ogþráttfyrir að skjálftarnir væru
ekki ýkja sterkir voru upptök
þeirra svo skammt undan kaup-
túninu að menn urðu allóþyrmi-
lega varir viö þá. Sagði Friörik að
hár hvinur sem iðulega heyrðist
hefði gert mönnum bilt við og þá
hefðu áhrif skjálftanna oft verið
með þeim hætti eins og verið væri
að sprengja rétt við hús manna.
Flugmenn hjá Loftleiðum:
Vilja fá hreyfingu á
samningaviðrædur
JB — A fundi i Félagi Loftleiða-
flugmanna, sem haldinn var i
fýrrakvöld, var samþykkt að
veita stjórn félagsins og
trúnaðarmannaráöi heimild til
verkfallsboöunar, en samningar
félagsins hafa verið lausir frá þvi
i október á sl. ári og tólf fundir
hafa verið haldnir með
samninganefndum Félags Loft-
leiðaflugmanna og Flugleiða.
Heimildin er ekki timasett.
Að sögn Skúla Guöjónssonar,
formanns F.L., er heimildin til
verkfallsboðunar fengin til að
leggja áherzlu á að samningum
verði hraðað. Hvort þeir hygðust
notfæra sér þessa heimild sagði
hann koma i ljós eftir frekari
fundi þeirra með samninganefnd
Flugleiða. Sagði Skúli, að um það
hefði verið rætt siðast er aðilar
ræddust við, að Flugleiðir kveddu
þá til fundar næst, en þeir hefðu
ekkert látið i sér heyra enn, en
hann vonaði að það yrði á næst-
unni.
Eins og áöur segir hafa verið
haldnir 12 samningafundir, en að
sögn Skúla hefur litiö þokazt i
samningsátt á þeim. Að visu
sagði hann nokkuð hafa hreyfzt i
sumum málum, en i öðrum, sem
kannski hvað brýnust þættu, hefði
ekkertgerzt. Eru þetta mál eins
og t.d. i sambandi við leiguflug,
orlof, Air Bahama og starfs-
Þórsmörk:
ESE — Aðfaranótt hvitasunnu-
dags valt Land Rover jeppabif-
reið með fimm mönnum innan-
borðs i Markarfljóti og leikur
grunur á að ökumaður bifreiöar-
innar hafi verið ölvaður.
Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli hafði fólkinu, sem i bifreið-
inni var, tveim stUlkum og þrem
piltum, tekiztað komastUt úr bif-
aldurslista. Þetta siöasttalda er
varðandi sameiningu Félags
Loftleiðaflugmanna og Félags
Flugmanna Flugfélagsins. Hafa
Loftleiðaflugmenn verið harðir i
Framhald á bls. 23
reiðinni og ná landi þegar lög-
reglan kom þar að, en bifreiöina
hafði þá rekið þó nokkuð niður
eftir fljótinu. Þetta gerðist á
eyrunum vestur af Húsadal og
töldu lögreglumenn það mestu
vildi að ekki hlauzt stórslys af.
Ekki voru meiðsli mikil á mönn-
um, en þó varð að kveðja til flug-
Framhald á bls. 23
Bíl hvolfdi í
Markarfljóti
— slæm umgengni um Mörkina
um hvítasunnuna
Ég er hlynntur öllum
friðunaradgerðum
— segir Þorleifur Þorleifsson skipstjóri á Höfrungi
III, aflahæsta netabátnum
GV — Ég er hlynntur öllum
fiðunaraðgerðum og þvi að regl-
ur séu fyrir takmörkunum á
netaveiðum og tel að ráðstafan-
ir eigi að gera i þessum málum.
I þessu máli á hreppapólitik
ekki aö ráða og sjómenn inn-
byröis veröa að koma sér sam-
an um þessi mál. Ef ekki, þá
verða aðrir að taka af skariö
með þetta, eins og raunin var i
þorskveiðibanninu. Þá fram-
kvæmd er ég mjög ánægður
með ekki sizt fyrir það, að þá
var eitt látið yfir alla ganga,
sagði Þorleifur Þorleifsson
skipstjóri á Höfrungi III frá
Þorlákshöfn, sem var aflahæsti
netabáturinn á þessari vertið.
Þorleifur sagði, að brögð
heföu verið að þvi að 150 neta
reglan hefði ekki verið haldin
áður fyrr, en eftir að eftirlit
hefði verið aukið og hert, væru
reglurnar haldnar. Væri þaö til
mikilla bóta, og kæmi það ekki
sizt fram i þvi að hráefni er nú
betra.
Höfrungur III við bryggju I Þorlákshöfn
Um vertiðina almennt sagði
Þorleifur, að fiskurinn i vetur
hefði verið jafnbetri, ef miðað
er við siðastliðiöár, en það hefði
einkennt vertiðina I vetur hve
tiðarfarið var slæmt. Aflinn og
fiskgengd á vertiðinni væri
svipuð og i fyrra.
Skipstjóri og skipshöfn á Höfrungi III frá Þorlákshöfn, aflahesta
bát vetrarvertiðarinnar. Talið frá vinstri: Þorleifur Þorlelfsson
skipstjóri, Þórður Pálmason stýrimaður, Bjarnþór Valdimarsson
stýrimaður, Guðmundur Jónasson vélstjóri, Siguröur óiafsson vél-
stjóri. Aftari röö f.v.: Grétar Feiixson, Hörður Magnússon, Gylfi
Ingólfsson, Jón H. Jónsson, Niels Kristjánsson og Jón G. Gislason. A
myndina vantar Ragnar Bjarnason.
!Þrír aflahæstu bátar á vetr-
arvertíð frá Þorlákshöfn
P.Þ.-Sandhóli 16. mai ’78.
Vetrarvertið lauk i Þorláks-
höfn 15. mai, en þá er hinn rétti
lokadagur, er útrunninn er
ráðningartími sjómanna. Afla-
hæsti netabáta var Höfrungur
III með 1033 lestir, og er hann
aflahæstur yfir landið annað ár-
iö i' röð, en i fyrra fékk hann 1016
tonn, og er eini báturinn sem fer
yfir eittþús.lestir. Skipstjórier
Þorleifur Þorleifsson.
Heildarafli 15. mai var: Báta-
fiskur 11,934 tonn, togarafiskur
1,064 tonn, róörar voru 1332,
Framhald á bls. 23