Fréttablaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 10
10 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
FANGELSISMÁL Sex manns af þeim
tuttugu sem sitja í gæsluvarðhaldi
eru útlendingar. Ekki er hægt að
senda þá til síns heima fyrr en
búið er að dæma í þeirra málum.
Jafnvel þá er ekki víst að þeir
verði látnir afplána erlendis þar
sem samninga þess efnis vantar
milli Íslands og margra landa, sér
í lagi Eystrasaltslandanna.
Fangelsismálastofnun þurfti í
fyrradag að synja þremur beiðn-
um um gæsluvarðhald vegna
plássleysis. Mönnunum sem áttu
að fara í gæsluvarðhald var sleppt
fyrir vikið.
Erlendur S. Baldursson,
afbrotafræðingur hjá Fangelsis-
málastofnun, segir alvarlegt mál
að gæsluvarðhaldsbeiðni sé synj-
að. „Þeir sem sitja í gæsluvarð-
haldi eru flestir þar vegna fíkni-
efnabrota en einnig vegna
ofbeldisbrota. Ástandið hefur
verið bærilegt um árin en upp á
síðkastið hafa komið upp ansi
mörg mál á tiltölulega stuttum
tíma. Við höfum verið dugleg við
að finna nýjar leiðir við afplánun
dóma en þegar um er að ræða
gæsluvarðhald geta menn ekki
verið úti í bæ,“ segir hann.
„Stór hluti þeirra sem nú sitja í
gæsluvarðhaldi eru útlendingar,
og margir þeirra frá Litháen. Það
er ekki hægt að senda þessa menn
heim til sín fyrr en það er búið að
dæma þá því brotið kemur upp
hér í íslenskri lögsögu. Ástæðan
fyrir því að útlendingar eru ekki
oftar sendir til síns heima til að
afplána er sú að það eru ekki til
samningar milli þessara landa.“
Hann segir vandamálið ekki
leysast fyrr en fangelsisplássum
fjölgi. „Auðvitað eru til fangaklef-
ar á lögreglustöðvum en það getur
aldrei orðið lausn. Þegar þú færð
sjö í mat allt í einu geturðu bankað
upp á hjá nágrannanum og fengið
lánaðar pylsur en þú gerir það
ekki á hverju kvöldi. Þá verðurðu
að stækka eldhúsið og kaupa fleiri
pylsur.“
Fulltrúar Samfylkingar í alls-
herjarnefnd Alþingis hafa óskað
eftir fundi hið fyrsta í nefndinni.
Tilefnið er að ræða það ófremdar-
ástand sem upp er komið í fang-
elsismálum þjóðarinnar. Vilja full-
trúar Samfylkingar ræða það
alvarlega ástand sem skapast
hefur, meðal annars vegna
aðgerðaleysis dómsmálaráðherra.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Samfylkingunni.
salvar@frettabladid.is
Þriðjungur í varð-
haldi útlendingar
Tuttugu manns sitja nú í gæsluvarðhaldi, þar af sex útlendingar. Ekki er hægt að
senda þá heim til sín fyrr en dæmt hefur verið í málum þeirra. Jafnvel þá er sjald-
gæft að erlendir fangar séu sendir til síns heima vegna þess að samninga vantar.
HEGNINGARHÚSIÐ Afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun segir vandamálið ekki leys-
ast fyrr en fangelsisplássum fjölgi. Fulltrúar Samfylkingar í allsherjarnefnd hafa óskað eftir
fundi í nefndinni vegna ástandsins í fangelsismálum.
MÓTMÆLAGANGA Á SÝRLANDI Um tvö
þúsund sýrlensk börn tóku þátt í mót-
mælagöngu um helgina gegn „drápum
Ísraelshers á börnum í Líbanon“.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NÁM Elín Thorarensen, fram-
kvæmdastjóri Heimilis og skóla,
segir óréttmætt að kenna heimil-
um alfarið um agaleysi í skólum
og agaleysi alfarið um slæman
námsárangur íslenskra barna.
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambands Íslands, sagði aga-
mál sérstaklega aðkallandi, í við-
tali við Fréttablaðið í fyrradag.
„Það eru alltaf örfáir einstakl-
ingar sem hegða sér illa og í flest-
um tilfellum eru þetta börn með
geðræn vandamál,“ segir Elín.
„Kerfið er bara að bregðast þess-
um börnum. Ef foreldrar geta ekki
agað börnin, hvað á þá að gera?
Það hlýtur að vera skólinn sem á
að grípa inn í. Námsráðgjafar og
skólahjúkrunarfræðingar á vegum
skólanna eiga að geta hjálpað til.“
„Auðvitað þarf aukið samstarf
heimilis og skóla, því skólinn verð-
ur að opna dyr sínar fyrir foreldr-
um,“ segir Elín.
„Það hefur sýnt sig að bara lít-
ill hluti hegðar sér illa og það eru
að miklu leyti drengir á lands-
byggðinni sem draga niður meðal-
talið. Það er ekki mælanlegur
munur á kynjunum á höfuðborg-
arsvæðinu og það þarf að skoða
hvað það er sem veldur því að
þessum drengjum er ekki rótt í
skóla. Áhugi þeirra er ekki nægur
og það bitnar á árangri. Við verð-
um að komast að því hvernig skól-
inn á að koma til móts við þá, því
þeir falla brott bæði eftir grunn-
skóla og menntaskóla,“ segir
Elín. - sgj
Elín Thorarensen segir agavandamál nemenda ekki alfarið á ábyrgð heimilanna:
Skoða þarf ástæður agaleysis
ELÍN THORARENSEN Elín telur nauðsynlegt að foreldrar geti auðveldlega unnið með skól-
unum í agamálum.
MEXÍKÓ, AP Til nokkurra ryskinga
kom þegar sló í brýnu milli stuðn-
ingsmanna López Obradors og lög-
reglumanna við þinghús Mex-
íkóborgar á þriðjudaginn var.
Mótmælendurnir reyndu að setja
upp búðir við þinghúsið en óeirða-
lögreglan kom í veg fyrir það. Um
átta mótmælendur særðust en
meðal þeirra voru tveir þingmenn
stjórnarandstöðunnar.
„Hér er umsátursástand því
lögin hafa verið brotin, en ekki af
okkur, heldur af stofnunum ríkis-
ins,“ sagði Aleida Alvarez, þing-
kona PRD-flokks Obradors, en
hún tók þátt í mótmælunum.
Aðgerðir lögreglunnar náðust á
myndband, þar sem hún lamdi á
nokkrum þingmönnum stjórnar-
andstöðunnar þegar mótmælend-
ur ruddu sér leið gegnum varnar-
vegg lögreglunnar. Eftir það
byrjuðu mótmælendur að kasta
steinum í lögreglumennina, sem
dreifðu þá mannfjöldanum með
táragasi.
Þingmennirnir hafa kvartað
undan framkomu lögreglunnar og
halda því fram að ástandið í land-
inu sé mun verra en áður, að því er
snertir lýðréttindi borgara.
Obrador tapaði forsetakosning-
unum sem fóru fram í júlí.
Yfirkjörstjórn landsins hefur end-
urtalið um 9 prósent atkvæða en
Obrador krefst endurtalningar
hvers og eins atkvæðis. Calderón,
þeim sem hlaut kosningu, hótar
hann „umsátursástandi“ svo árum
skipti; að honum verði ekki vært
utan skrifstofu sinnar. - kóþ
Mótmæli vegna forsetakosninganna í Mexíkó sem fóru fram í júlí halda áfram:
Átök við þinghúsið í Mexíkóborg
HEITT Í KOLUNUM Stuðningskona Obradors æpir að lögreglumönnum. Hún ásamt hundr-
uðum annarra slóst við lögregluna fyrir utan þinghúsið í Mexíkóborg. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
���������� ����������
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��