Fréttablaðið - 17.08.2006, Qupperneq 12
12 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
INDJÁNI DANSAR Narragansett-indjánarnir
í Bandaríkjunum dönsuðu þjóðdansa við
upphaf fundar ættflokkanna sem haldinn
er um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LONDON, AP Fyrir lokuðum dóm-
salsdyrum útskýrðu breskir sak-
sóknarar í gær ákvörðun yfirvalda
um að halda 22 manns enn í gæslu-
varðhaldi án ákæru. Mennirnir
voru flestir handteknir í síðustu
viku, grunaðir um að hafa lagt á
ráðin um stórfelld hryðjuverk í
háloftunum. Talið er að þeir hafi
ætlað sér að sprengja allt að tíu
flugvélar í loft upp með því að
smygla sprengiefni í fljótandi
formi um borð í vélarnar.
Lögregla heldur áfram að gera
húsleit á heimilum og í fyrirtækj-
um víðs vegar um Bretland í
áframhaldandi rannsókn á mál-
inu.
Einn maður til viðbótar var
handtekinn á þriðjudag, en alls
hafa 24 manns verið handteknir í
Bretlandi í tengslum við málið og
sautján í Pakistan. Samkvæmt
nýjum hryðjuverkavarnalögum
geta bresk yfirvöld haldið grunuð-
um í gæsluvarðhaldi í allt að 28
daga án ákæru, en mál hvers og
eins fer reglulega fyrir dómara á
þeim tíma.
John Reid, innanríkisráðherra
Bretlands, viðurkenndi í gær að
margir hinna handteknu yrðu lík-
lega ekki ákærðir fyrir alvarlega
glæpi, en hann sagði sönnunar-
gögnum fara fjölgandi sem bentu
til þess að veruleg hryðjuverk
hefðu verið í bígerð.
Flugumferð færðist nær eðli-
legu horfi í gær. Sögðu talsmenn
British Airways að níutíu prósent
flugs félagsins væri nú komið í
samt lag og að búast mætti við að
allt flug færi eftir áætlun á morg-
un.
Þó höfðu flugyfirvöld auknar
áhyggjur af öryggi, eftir að upp-
víst varð að tólf ára drengur komst
eftirlitslaus um borð í flugvél á
Gatwick flugvellinum á þriðjudag,
án vegabréfs, flugmiða eða brott-
fararspjalds. Flugþjónar tóku eftir
honum áður en vélin fór af stað og
var honum fylgt úr vélinni.
Sex innanríkisráðherrar Evr-
ópusambandsríkja hittust í Lond-
on í gær til að ræða hættuna á
hryðjuverkum í háloftunum.
Fundinn sóttu ráðherrar Bret-
lands, Finnlands, Frakklands,
Þýskalands, Portúgals og Slóven-
íu, en Finnar sitja nú í forsæti
ESB, og fjögur síðasttöldu löndin
munu gegna því á árunum 2007 og
2008.
Á fundi sínum samþykktu ráð-
herrarnir frekari milliríkjasam-
vinnu gegn hryðjuverkum, svo
sem samnýtingu á upplýsingum
um farþega og samræmingu
öryggisviðbúnaðar.
„Þegar við stöndum frammi
fyrir ógninni um fjöldamorð, þá
verðum við að sætta okkur við að
réttur einstaklingsins verði tak-
markaður af sameiginlegum rétti
okkar til öryggis og þeirrar vernd-
ar á lífi og limum sem landsmenn
krefjast,“ sagði Reid.
smk@frettabladid.is
Meintir hryðjuverka-
menn áfram í haldi
Breskir saksóknarar réttlættu fyrir dómara í gær fangelsun 24 manna, sem sitja
inni án ákæru en eru grunaðir um að hafa skipulagt stórfelld hryðjuverk. Umferð
um breska flugvelli er að komast í samt lag, en öryggisgæsla er enn afar ströng.
HERT GÆSLA Vopnaðir lögregluþjónar gæta Downing-strætis í London, en öryggisgæsla
hefur verið hert til muna bæði á breskum flugvöllum sem og um alla höfuðborgina, eftir
að yfirvöld komu í veg fyrir meint hryðjuverk í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HRAÐAKSTUR Framkvæmdastjóri
Avis og Budget bílaleiganna hefur
óskað eftir því við Ríkislögreglu-
stjóra að ökumenn sem eru teknir
fyrir of hraðan akstur á bílaleigu-
bílum verði sviptir bifreiðinni og
tafarlaust verði haft samband við
bílaleiguna. „Ég hef engan áhuga
á að menn séu í ofsaakstri á bílun-
um okkar. Við viljum vinna mjög
vel með lögreglunni og óskum
þess að svona brjálæðingar séu
teknir úr umferð á stundinni og
bifreiðin tekin af þeim,“ segir
Hjálmar Pétursson, framkvæmda-
stjóri Avis og Budget.
Bréf Alp, sem rekur Avis og
Budget, til Ríkislögreglustjóra
sem sent var í gær kemur í kjölfar
umræðu um að fjöldi erlendra
ferðamanna hafi keyrt vel yfir
hámarkshraða í sumar.
„Við látum leigutaka fá hrúgu af
bæklingum og starfsfólk okkar er
þjálfað í að vara þá við hættunum
en þeir hlusta bara ekki. Við erum
líka að vinna heilmikið forvarnar-
efni með Sjóvá,“ segir Axel. Hann
telur að merkingum sé víða ábóta-
vant og segir að bílaleigur hafi
margoft beint þeim tilmælum til
Vegagerðarinnar að setja upp
betri merkingar á vegum. „Stærstu
bílaleigurnar eru með samtals
nálægt fimm þúsund bíla á hverj-
um degi í umferð og miðað við
þennan fjölda erlendra ökumanna
verður að leggja meira í merking-
ar fyrir þetta fólk,“ segir Axel
Árnason. - rsg
Forsvarsmenn Avis og Budget:
Ósáttir við hraðakstur
SKÓLAMÁL Ríkisstjórnin mun á
haustþingi leggja fram lagafrum-
varp um Hólaskóla sem staðfestir
stöðu skólans sem háskóla í lögum,
en frá því í apríl 2003 hefur Hóla-
skóli getað útskrifað nemendur
með háskólagráður. „Okkar
háskólatign var staðfest með
reglugerð árið 2003 en ekki form-
lega í lögum. En með lögunum
mun þetta taka á sig nýjan blæ,“
segir Skúli Skúlason, rektor
Háskólans á Hólum.
Fyrstu háskólagráðurnar verða
veittar í vor þegar nemendur
útskrifast með B.A.-próf í ferða-
málafræði.
„Svo erum við að undirbúa B.S.
í hestafræðum og B.Ed. í reið-
kennslu, í samstarfi við Landbún-
aðarháskólann á Hvanneyri,“
segir Skúli, en einnig mun skólinn
geta boðið upp á B.S. nám í fiska-
líffræði. - rsg
Ríkisstjórnin mun í haust leggja fram frumvarp:
Hólaskóli verður háskóli
HÓLAR Lagafrumvarpið er í raun formsatriði því reglugerð frá 2003 staðfesti skólann sem
háskóla.
FRÆÐSLA Geðhjálp hefur opnað
nýja vefsíðu þar sem aðgengileg-
ar eru ýmsar gagnlegar upplýs-
ingar fyrir geðfatlaða og aðstand-
endur þeirra. Á vefsíðunni er safn
greina og rannsókna um málefni
geðfatlaðra auk uplýsinga um ráð-
stefnur og fundi sem tengjast
málaflokknum. Vefurinn hefur
fengið vottun um að standast kröf-
ur um aðgengi fyrir heyrnarlausa,
sjónskerta og hreyfihamlaða.
Engar reglur eru í gildi hér-
lendis um aðgengi að vefsíðum en
víða er komið í lög að heimasíður
opinberra stofnana og fyrirtækja
eigi að vera aðgengilegar notend-
um, óháð fötlun eða getu. - öhö
Geðhjálp opnar upplýsingavef:
Betra aðgengi
að upplýsingum
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA