Fréttablaðið - 17.08.2006, Síða 22
17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR22
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Friðlýst svæði á Íslandi í ferkílómetrum.
Heimild: Hagstofa Íslands
1965
6
.7
27
9.
36
1
9.
80
1
55
1975
1985
1995
Herskár armur Hizbollah-
samtakanna hefur fengið
gríðarlega athygli und-
anfarið vegna átaka hans
við Ísrael, sem lauk með
vopnahléi á mánudag. En
samtökin sinna mun víð-
tækara hlutverki en bara
stríðsrekstri gegn Ísrael.
Liðsmenn Hizbollah ganga nú á
milli húsarústa í Suður-Líbanon og
bjóða fólki mat og lyf, auk annarr-
ar aðstoðar.
Athygli vekur að aðstoð þessi
hófst ekki eftir að öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna tókst að
semja um vopnahlé milli Ísraels og
Hizbollah, heldur hafa liðsmenn-
irnir sinnt þessu starfi allan þann
tíma sem sprengjum Ísraelshers
rigndi yfir óbreytta borgara, stór
svæði voru lögð í rúst og brýr og
vegir eyðilagðir, í þeim yfirlýsta
tilgangi að útrýma samtökunum.
Enda er félagsleg þjónusta
samtakanna ein aðalástæðan
fyrir vinsældum þeirra meðal
Líbana, þrátt fyrir að Hizbollah
sé á skrá Evrópusambandsins,
Bandaríkjanna, Bretlands og
fleiri ríkja yfir hryðjuverkasam-
tök.
Uppruni samtakanna
Samtökin Hizbollah voru stofnuð í
Líbanon árið 1982, gagngert til að
reka ísraelska herinn út úr Líban-
on, og fengu þau til þess fjárstuðn-
ing frá Íran. Ísraelar höfðu þá
nýverið ráðist inn í suðurhluta
landsins og í arabaheiminum var
almennt litið á Hizbollah sem and-
spyrnuhreyfingu sem ætti fullan
rétt á sér. Árið 2000 var takmark-
inu náð þegar ísraelskir hermenn
yfirgáfu landið eftir átján ára her-
nám og jókst þá hróður Hizbollah
til muna heima fyrir.
Leiðtogi Hizbollah er Sjeik
Hassan Nasrallah og hann er jafn-
an talinn hugsuðurinn á bak við
vopnaða baráttu samtakanna gegn
Ísrael.
Grasrótarsamtök
Burtséð frá herskáum armi sam-
takanna, þá reka þau fjölmarga
skóla, heilsugæslu og sinna félags-
málum á borð við uppbyggingu á
húsum sem eyðilagst hafa í árás-
um Ísraela. Það eru fyrst og
fremst sjía-múslimar, sem eru
rúmur þriðjungur Líbana, sem
njóta þjónustu Hizbollah.
Hizbollah er fullgildur stjórn-
málaflokkur og sitja fjórtán þing-
menn af 128 á þingi Líbanons fyrir
hönd Hizbollah og tveir ráðherrar
landsins koma úr þeirra röðum.
Einnig gefa samtökin út tímarit
og reka útvarps- og sjónvarps-
stöð.
„Hizbollah eru grasrótarsam-
tök,“ segir Amal Saad Ghorayeb,
stjórnmálafræðiprófessor við
bandaríska háskólann í Líbanon
og sérfræðingur í Hizbollah. „Þau
útvega þjónustu frá vöggu til graf-
ar, þau sjá um allar þínar félags-
legu-, heilsugæslu- og velferðar-
þarfir. Það er einmitt þessi
félagslega þjónusta sem hefur
tryggt Hizbollah sess meðal sjí-
anna.“
Stuðningur við sjía
Líbanskir sjíar eru um 1,2 milljón-
ir, sem gerir þá að fjölmennasta
trúarhóp landsins. Jafnframt eru
þeir fátækasti hópur Líbana, og
hafa þeir löngum kvartað yfir
lélegri félagslegri þjónstu líb-
anskra yfirvalda.
„Þetta er auðvitað ein ástæðan
fyrir þessum harða stuðningi sjía
við (Hizbollah),“ segir Ghorayeb.
Samtökin standa fyrir ýmiss
konar félagslegri þjónustu og
bjóða meðal annars fátækum og
fötluðum upp á aðstoð við nám og
heilsugæslu. Þá veita þau fjöl-
skyldum Hizbollah-liða sem farast
í átökum við Ísrael aðstoð, standa
fyrir sorphirðu og vatnsveitu í
Suður- og Austur-Líbanon, og reka
meðal annars tólf skóla, fimm
sjúkrahús og fjórtán heilsugæslur
víðs vegar um landið.
Meðan á stríðinu stóð beindi
Ísraelsher árásum sínum meðal
annars að höfuðstöðvum þessarar
félagslegu þjónustu Hizbollah og
skutu á bæði skóla og sjúkrahús.
Stuðningur sjíanna
Stuðningur sjía við Hizbollah
hefur síður en svo dvínað meðan á
átökunum við Ísraelsher stóð.
„Hizbollah er fólkið og fólkið
er Hizbollah,“ segir Hussein
Ayoub, 56 ára gamall fyrrverandi
vígamaður samtakanna, sem hafa
greitt fyrir nám barna hans og
hjartaaðgerð sem hann gekkst
undir fyrir örfáum árum. Hann
talaði við fréttamann AP-frétta-
stofunnar í skóla í Beirút þar sem
hann bjó ásamt fjölskyldu sinni
og öðru flóttafólki, eftir að Ísrael-
ar lögðu heimili hans í rúst í upp-
hafi átakanna.
„Ég er tilbúinn að fórna lífi
mínu fyrir samtökin,“ sagði
Ayoub.
Félagsleg ábyrgð Hizbollah
Vinsældir skráskiptastaðalsins BitTorrent hafa
aukist gríðarlega á Íslandi undanfarna mánuði,
eða allt síðan internetþjónustur hófu að bjóða
upp á ókeypis niðurhal erlendis frá.
Hvað er BitTorrent?
BitTorrent er skráskiptastaðall sem hannaður
er til að dreifa stórum skrám yfir net á borð við
internetið á þann hátt að álagið dreifist sem
mest. Ólíkt hefðbundnu niðurhali, þar sem
notandi sækir skrá frá einum vefþjóni, virkar
BitTorrent þannig að notandinn sækir skrána
frá öðrum sem eru að sækja skrána, ásamt því
sem hann sendir hluta af skránni til annarra.
Hvernig virkar BitTorrent?
Sá sem upphaflega dreifir skrá með BitTorrent
byrjar að senda hluta hennar til ákveðins fjölda
notenda. Þegar hver þeirra notenda er kominn
með hluta af skránni byrjar hann að senda þá
hluta sem hann er kominn með til enn fleiri
notenda. Á meðan heldur hann áfram að ná í
skrána frá þeim sem dreifði henni upphaflega.
Þannig gengur þetta koll af kolli þar til allir eru
komnir með skrána. Með þessu móti dreifist
álagið á marga notendur í stað eins vefþjóns.
Er BitTorrent ólöglegt?
BitTorrent er eingöngu staðall sem lýsir hvernig
skrá er send yfir net, og getur því ekki verið
ólöglegur sem slíkur. Hins vegar er mjög
algengt að skrám á borð við höfundarréttar-
varðar bíómyndir, tónlist og tölvuleiki sé dreift
með BitTorrent, þar sem það hentar einstaklega
vel til að dreifa stórum skrám til mikils fjölda
notenda á stuttum tíma. Því hefur BitTorrent
fengið nokkuð slæmt orð á sig í netheiminum,
en hafa verður í huga að ekki er við flutn-
ingsmátann að sakast þó hann sé stundum
notaður til að flytja ólöglega hluti.
FBL-GREINING: BITTORRENT
Álaginu dreift á fjölmarga notendur
FRÉTTASKÝRING
SIGRÚN MARÍA KRISINSDÓTTIR
smk@frettabladid.is
9.
35
3
2005
SJEIK HASSAN NASRALLAH Fjölmörgum myndum af leiðtoga Hizbollah-samtakanna hefur verið komið fyrir víða um Beirút og bera þær
vitnisburð um áframhaldandi stuðning Líbana við Nasrallah. Hizbollah-samtökin aðstoða fólk við að endurbyggja hús sem sprengjur
Ísraelshers lögðu í rúst í átökunum þar undanfarið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tölvuskjár með ólöglegum niðurhalsforritum í
gangi.
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �