Fréttablaðið - 17.08.2006, Síða 28

Fréttablaðið - 17.08.2006, Síða 28
 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR28 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.446 +0,79% Fjöldi viðskipta: 225 Velta: 23.678 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 64,00 +0,00% ... Alfesca 4,25 +0,71% ... Atlantic Petroleum 555,00 +0,00% ... Atorka 5,80 +0,00% ... Avion 31,90 +0,63% ... Bakkavör 51,00 -0,59% ... Dagsbrún 5,29 -0,56% ... FL Group 16,00 +1,27% ... Glitnir 17,90 +1,71% ... KB banki 717,00 +0,99% ... Landsbankinn 21,80 +0,93% ... Marel 81,00 +0,00% ... Mosaic Fashions 16,90 -0,59% ... Straumur-Burðarás 15,80 +0,64% ... Össur 113,00 +0,44% MESTA HÆKKUN Flaga +4,44% Glitnir +1,71% FL Group +1,27% MESTA LÆKKUN Mosaic -0,56% Bakkavör -0,59% Dagsbrún -0,59% Verri en Svíagrýlan Viðskiptablaðamennirnir hjá Berlingske Tidende, Egil Evert og Ole Mikkelsen, eru ekki í miklum metum hjá íslenskum viðskiptajöfrum, sem reyna að gera garðinn frægan í Danmörku, og verða seint tilnefndir til fálkaorðunnar. Telja Íslendingarnir að þeir félagar dragi undantekningarlaust upp svarta mynd af íslenskum fyrirtækjum og kaupahéðnum og fari rangt með staðreyndir. Er mörgum farið að líða eins og Arngrími lærða áður en hann fékk nóg og gaf út Crymogæa sem svar við níðskrifum erlendra manna um Ísland. Einkum hefur gagnrýni Berlingske beinst að FL Group og finnst forsvarsmönnum FL illa að sér vegið. Þar er ýjað að því að FL Group hafi verið að fikta í hlutabréfasafni sínu seinni hlutann í júní til þess að hækka gengi skráðra hlutabréfa fyrir lok uppgjörstímabils. Eftir það hafi bréfin lækkað. Dótakauphöll og ódýra fjöreggið Á miðvikudaginn greindi blaðið frá uppgjöri FL á fyrstu sex mánuðum ársins. Þar er meðal annars haldið því fram að Sterling sé rekið með bullandi tapi en ekkert minnst á það að norræna lág- gjaldaflugfélagið hafi sýnt hagnað á öðrum ársfjórðungi og mikill einskiptiskostnaður hafi fallið til vegna sameiningar Sterling og Maersk Air. Einnig er því haldið fram að auk Sterling eigi FL Group lággjaldaflugfélagið Icelandair. Það hljómar eitthvað einkennilega í eyrum þeirra Íslendinga sem hafa ferðast á okurprísum með „fjöreggi þjóðarinnar.“ Í lok greinarinnar kemur fram að hlutabréf FL Group hafi hækkað í litlu kauphöllinni í Reykjavík eftir birtingu afkomu- talna. Peningaskápurinn ... Eftir 50 punkta stýri- vaxtahækkun Seðla- bankans standa stýrivextir hér í 13,5 pró- sentum. Bankinn kynnti ákvörðun sína í gær og telur enn þörf á aðhaldi í peningamálum þótt verðbólga hafi reynst eilítið minni en ráð var fyrir gert í síðustu spá bankans. Bankastjórn Seðlabanka Íslands kynnti í gær ákvörðun sína um að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentustig í 13,5 prósent. Vaxta- ákvörðunin í gær var utan hefð- bundinna vaxtaákvörðunardaga ársins, en þörf var talin á að meta aðstæður á ný nú um miðjan ágúst vegna aðstæðna í efnahagslífinu. Stýrivaxtahækkunin er lægri en þrjár síðustu hækkanir sem allar hafa verið upp á 0,75 pró- sentustig. Davíð Oddsson, seðlabanka- stjóri, sagði þegar ákvörðunin var kynnt að þrátt fyrir að verðbólga væri aðeins undir síðustu spá bankans væri óhjákvæmilegt að hækka vexti, enda sæjust ekki ótvíræðar vísbendingar um lækk- un verðbólgunnar. Þórarinn Pét- ursson, staðgengill aðalhagfræð- ings bankans, segir enda eiga eftir að koma í ljós hvort horfur hafi batnað, eða hvort verðbólgutoppn- um hafi einfaldlega seinkað. Davíð segir bankann þó sjá jákvæðar vís- bendingar og vísað þar meðal ann- ars til aðgerða stjórnvalda til að slá á þenslu. „Bankinn er samt ekki á þessari stundu að tilkynna að vaxtahækkunarferlinu sé lokið. Við tilkynnum það þegar það er tímabært og þar er það ekki ennþá,“ segir hann. Davíð sagði jafnframt að Seðla- bankinn gæti að stærstum hluta tekið undir með skýrslum frá bæði OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðn- um sem kynntar voru í síðustu viku, en í þeim var talin þörf á ströngu aðhaldi í peningamálum enn um sinn og háum vöxtum. Í þeim skýrslum báðum var einnig vikið að stöðu Íbúðalánasjóðs og hann sagður steinn í götu vaxta- stefnu Seðlabankans. Davíð sagði ríða á að ríkisstjórnin fylgdi yfir- lýstri stefnu um að eyða óvissu um málefni sjóðsins. „Þeim yfirlýs- ingum hefur ekki verið fylgt nægi- lega fast eftir. Við sjáum að ekki gengur upp að hafa kerfið með þeim hætti sem það er núna. Menn verða að finna á þessu flöt og því fyrr því betra,“ segir hann og kveður það vera veikleikamerki í efnahags- og hagstjórn hverfi menn frá fyrirætlunum um að breyta sjóðnum. „Líka í því ljósi að matsfyrirtæki hafa lagt yfirlýs- ingar ríkisvaldsins til grundvallar í greiningum sínum á öryggi fjár- málakerfisins og mati á stöðu Íslands.“ Hækkunin er í samræmi við spár greiningardeilda bankanna sem gerðu ráð fyrir 50 til 75 pró- sentustiga hækkun. Eftir að bank- inn tilkynnti um hækkun sína í gær styrktist gengi krónunnar um 1,3 prósent. Þá lækkaði ávöxtunar- krafa nokkuð bæði á verðtryggð- um og óverðtryggðum bréfum í viðskiptum gærdagsins og hluta- bréf hækkuðu í verði. „Seðlabanki Íslands mun fylgj- ast grannt með vísbendingum um breytingar á horfum í efnahags- málum,“ segir Davíð, en næst end- urskoðar bankinn stýrivexti sína 14. september. „Sú næsta þar á eftir verður birt fimmtudaginn annan nóvember næstkomandi samhliða útgáfu næsta heftis Pen- ingamála.“ olikr@frettabladid.is FRÁ KYNNINGU SEÐLABANKANS Í GÆR Ingimundur Friðriksson og Davíð Oddsson seðlabankastjórar sjást hér með Þórarni Péturssyni, staðgengli aðalhagfræðings Seðla- bankans. Þeir fóru í gær yfir rökstuðning vaxtaákvörðunar bankans og svöruðu spurningum fjölmiðla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vextir hækkaðir í 13,5 prósent ASÍ og Samtök atvinnulífsins gagn- rýndu í gær ákvörðun Seðlabank- ans hækkun stýrivaxta. „Við teljum að Seðlabankinn hefði ekki átt að hækka stýrivexti núna. Þeir eru þegar orðnir mjög háir og ýmis teikn á lofti um að það hægi á verðbólguhraðanum, segir Ólafur Darri Andrason,“ aðalhag- fræðingur ASÍ. Segir hann að skyn- samlegra hefði verið að bíða og sjá hvort þörf væri fyrir frekari hækk- anir. Þegar hafi verið gripið til aðgerða til að ná verðbólgunni niður og næstum megi fullyrða að næstu mælingar gefi til kynna að verðbólga lækki. ASÍ bendir jafnframt á að áhrif stýrivaxtahækkana komi inn á einu og hálfu til tveimur árum. Því sé hætta á að þessi hækkun muni að fullu skila sér inn í hagkerfið á sama tíma og búast megi samdrætti í efnahagslífinu. Það að keyra upp stýrivexti í lok hagvaxtarskeiðsins á þennan hátt geti valdið því að lending hagkerfisins verði harka- legri en hún hefði ella verið. - hhs Vaxtahækkun nú gagnrýnd ÓLAFUR DARRI ANDRASON Aðalhagfræð- ingur ASÍ segir ljóst að verðbólga muni fara ört lækkandi. Dagsbrún tapaði rúmum 1,5 milljarði króna á fyrri hluta árs- ins, þar af 1,3 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Tap félags- ins á síðasta ársfjórðungi er margfalt meira en markaðsaðilar reiknuðu með. Spáðu þeir að nið- urstaðan yrði á bilinu -101 til 328 milljónir króna. Gunnar Smári Egilsson, for- stjóri Dagsbrúnar, segir í tilkynn- ingu að afkoma félagsins eigi að vera betri en niðurstöðurnar sýna. Verkefni á seinni hluta árs verði að vinna að kostnaðarþátt- um. Uppgjörið markast af miklum fjármagnsgjöldum, vegna geng- islækkunar krónunnar, verð- bólguskots, hækkun skulda vegna nýrra fjárfestinga og hækkandi vaxta. Alls námu þau 2,4 milljörðum. Tekjur samstæðunnar námu 20,2 milljörðum króna á fyrri hluta árs og jukust um 188 pró- sent milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 1,9 milljarðar króna á tímabilinu. Eignir Dagsbrúnar námu 91,6 milljörðum króna um mitt ár og hafði eiginfjárhlutfall lækkað úr 38,4 prósentum um áramót í 19,3 prósent þann 30. júní. Hafði efna- hagsreikningur félagsins fjór- faldast frá byrjun árs meðal ann- ars vegna yfirtöku á Kögun. Dagsbrún er eigandi 365 prentmiðla sem er útgefandi Fréttablaðsins. - eþa Dagsbrún tapar 1,5 milljarði á árinu Uppgjörið langt undir spám. Eignir fjórfaldast. AFKOMA DAGSBRÚNAR Á ÖÐRUM ÁRSFJÓRÐUNGI OG SPÁR MARK- AÐSAÐILA* Tap Dagsbrúnar -1.327 Spá Glitnis -101 Spá KB banka 328 Spá Landsbankans -60 Meðaltalsspá 56 * Í milljónum króna MARKAÐSPUNKTAR... Margrét Jónsdóttir, stjórnarmaður í Marel hf., hefur keypt fimmtíu þúsund hluti í félaginu á genginu 81. Andvirði viðskiptanna er rúmar fjórar milljónir króna. Velta á skuldabréfamarkaði nam 13,8 milljörðum króna gær og ávöxtunarkrafa flestra skuldabréfa lækkaði þrátt fyrir stýrivaxtahækk- un. Í Vegvísi Landsbankans segir að trú innlendra og erlendra aðila á íslenskt efnahagslíf hafi aukist. Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 11,5 prósent á öðrum ársfjórð- ungi og mælist 118,8 stig. Hefur vísitalan hækkað um tæp átján prósent síðastliðið ár. MIKIÐ TAP HJÁ DAGSBRÚN Þórdís Sigurð- ardóttir stjórnarformaður og Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, á aðalfundi félagsins fyrr á árinu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.