Fréttablaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 17. ágúst 2006 5
Ákveðin tískukynslóð karl-
manna virðist vera að fæðast
eða réttara sagt að endurfæð-
ast.
Alþjóðavæðingin hefur gert
meira en bara að opna viðskipta-
markaði heimsins og dæla pen-
ingum út um allt. Hún hefur gert
það að verkum að ungir og nýrík-
ir karlmenn hafa orðið að nánast
nýrri stétt. Þessi stétt manna
virðist líka hafa meiri áhuga á
tísku en þeir sem eldri eru en þó
kemur ekkert annað til greina
hjá þessari nýju stétt en að fötin
sem hún klæðist séu fáguð út í
gegn.
Tískuvöruframleiðendur hafa
því í meira mæli einbeitt sér að
þessum markaðshópi og þegar
kemur að fáguðum klæðnaði
fyrir karlmenn kemur fátt annað
upp í hugann en jakkaföt. Snið
jakkafata hafa tekið örum breyt-
ingum að undanförnu og eins og
svo margt annað í tískuheimin-
um. Núna er leitað til fortíðar
eftir svölum sniðum. Ítölsk snið
frá 6. áratugnum hafa sem dæmi
verið mjög vinsæl og eru þá gerð-
ar kröfur um að fötin séu vel
sniðin og þau mega alls ekki vera
of víð. Rendur og mildir litir virð-
ast eiga góðan hljómgrunn hjá
hönnuðunum.
Það virðist því æ algengara að
karlmenn klæðist jakkafötum
dags daglega en ekki eingöngu á
hátíðum og er þar hin nýríka kyn-
slóð ungra karlmanna í algjörri
sérstöðu. Það má því ugglaust
halda því fram að nú hafi mynd-
ast ný tískukynslóð jakkafata-
karla. steinthor@frettabladid.is
Ný tískukynslóð?
Fátt er eins fágað og flott jakkaföt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Veitir húðinni
ljóma
AQUATEINTÉ ER NÝJA
RAKAGEFANDI KREMIÐ
FRÁ BIOTHERM.
Fimm dropar af kreminu
eru settir á andlitið og því
dreift frá miðju andlitsins
og jafnað. Kremið gefur
raka í 24 klukkustundir og
dregur fram náttúrulegan
húðlit. Það endurlífgar einnig og veitir
húðinni ljóma og verndar húðina fyrir
UV-geislum.
Kremið er ilmefnalaust og gefur matta
áferð og hægt er að fá það í þremur
litum sem ættu að henta öllum.
Bjartur sumar-
ilmur
TOUCH OF SUN ER
ANNAR ILMUR Í LACOSTE
ENERGY LÍNUNNI.
Nýi kvennailmurinn frá
Lacoste, Touch of Sun, er
frískandi og bjartur sum-
arilmur sem eingöngu er
framleiddur í takmörkuðu
upplagi.
Touch of Sun er annar
ilmurinn í Lacoste Energy
línunni en hinn er Lacoste
Touch of Pink, sem er þegar kominn
á lista yfir tíu mestu gæðailmvötn fyrir
konur og er nú vinsælasti ilmurinn frá
Lacoste.
Touch of Sun er hannaður með sum-
arið í huga og topptónar eru ferskir
tónar sítrustrés með vatnskenndum
tónum greipávaxta. Í miðtónum er
rósin og jasmína og grunntónarnir
einkennast af við, moskus, ilmhampi
og sandelviði.
Þétt og froðu-
kennd áferð
MAGIE MATTE ER NÝR FARÐI FRÁ
LANCOME.
Farðinn Magie Matte
frá Lancome gefur
þétta og froðukennda
áferð sem rennur
auðveldlega á húðinni
og umbreytist í púður.
Í farðanum er flau-
elskennt gel sem gerir
formúluna þétta og auðvelda í notkun
og Silicone Elastomer púður sem sér
til þess að froðan er afar létt.
Elastomer púður hylur ójöfnur og
dregur úr gljáa en örperlur í farðanum
sjá fyrir ljóma í lokin. Gott er að nota
förðunarbursta með farðanum því
þá er auðveldara að bera hann á og
áferðin verður jafnari. - lkg
snyrtivörur }
ÚTSALA
ÚTSALA
KRINGLAN // SMÁRALIND // KEFLAVÍK
S.588 5777 // S.544 4646 // S.421 6899
FULLAR BÚÐIR AF
NÝJUM VÖRUM