Fréttablaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 17. ágúst 2006 7
Í versluninni Kokku á
Laugaveginum fæst
kúla sem kemur sér
vel í eldhúsinu.
Kúlan eftir Marý er úr
keramiki og er með
götum sem hægt er að
stinga í sleifum og öðrum
áhöldum. Kúlan fæst með mis-
munandi mörgum götum og getur
verið með allt frá þremur götum
upp í að vera þakin þeim. Kúlan
fæst í svörtu og hvítu og sómir sér
vel í hvaða eldhúsi sem er.
Á vef HP húsgagna eru gefin
góð ráð um umhirðu og viðhald
leðurs. Þau eru svohljóðandi:
■ Forðast skal
að hafa leður-
húsgögn í
mikilli sól og
hita, til að
komast hjá
ofþornun og
upplitun.
■ Leðurhús-
gögnum skal
halda hreinum.
■ Við þvott skal eingöngu nota
þar til gerðan hreinsivökva eða
volgt vatn með sápuspónum.
■ Aldrei skal nota sápu með upp-
lausnarefnum, bensín, þynni eða
önnur sterk efni.
■ Notið heldur ekki skó-
áburð, bón
eða
húsgagna-
áburð.
■ Nauðsyn-
legt er að
bera leðurá-
burð á hús-
gögnin tvisv-
ar til fjórum
sinnum á ári.
■ Rétt umhirða og góð
umgengni heldur leðrinu fal-
legu, mjúku og notalegu og
eykur líftíma þess um mörg ár.
Rétt umhirða leðurs eyk-
ur líftíma leðurhúsgagna
Kúlan til sölu í
Kokku
Kúlan getur komið sér vel í eldhúsinu.
Lífræn hönnun
Túlípanastóll finnska hönnuðarins
Eero Saarinen er fyrir löngu orðinn
hluti af hönnunarsögunni. Stóllinn
varð til árið 1940 þegar Nútíma-
listasafnið í New York efndi til
hönnunarsamkeppni undir
heitinu „lífræn hönnun
húsbúnaðar“. Saarinen
og túlípanastóllinn
sigruðu í keppninni en
stóllinn
fór þó
ekki í
fram-
leiðslu
fyrr en á sjötta
áratugnum. Hann
er búinn til úr trefja-
plasti og minnir
í senn á
vínglas á
fæti og
túlípana.
Þótt Saarinen hafi verið afkastamikill
húsgagnahönnuður var hann fyrst
og fremst arkikekt. Ýmsar bygging-
ar halda nafni hans á lofti, meðal
annars TWA byggingin á Kennedy
flugvellinum í New York.
stóllinn }
Túlípana-
stóllinn er
gerður úr
trefjaplasti.
Í versluninni Mirale fást mis-
langir glerstjakar fyrir spritt-
kertin sem hægt er að skreyta
að vild.
Stjakar fyrir sprittkerti sem
rúma allt frá einu kerti uppí tíu
eru í versluninni Mirale á Grens-
ásvegi 8. Þeir eru í glerhólki sem
hægt er að skreyta ef vilji er
fyrir hendi. Þannig breyta þeir
um svip og gaman getur verið að
skipta út silkiblómum eða öðru
litfögru skrauti eftir tilefnum og
árstíðum.
Ljósaraðir
Stjakarnir fara vel á borði.
Aðhald í rafmagnsnotkun skil-
ar sér í budduna.
Raforkuverð hefur hækkað tölu-
vert á undanförnum misserum og
því rétt að nota öll tiltæk ráð til að
minnka rafmagnsnotkun heimilis-
ins.
Hæfilegt hitastig í ísskápnum
er 4-5 gráður. Rafmagnsnotkun
eykst um fjögur prósent fyrir
hvert stig sem hitinn er lækkaður.
Gætið þess að loftræsting sé nægj-
anleg á bak við kæliskápinn. Léleg
loftræsting getur valdið allt að tíu
prósenta meiri rafmagnsnotkun.
Orkusparn-
aður
Svona hegðun er ekki til þess fallin að
minnka rafmagnsnotkun ísskápsins.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES