Fréttablaðið - 17.08.2006, Side 38
17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR8
Það er að ýmsu að huga þegar
herbergin eru máluð – hér eru
nokkur góð ráð.
■ Hlýir litir minnka rými og gera
þau eins og orðið ber með sér, hlý-
legri. Sem dæmi um hlýja liti eru
rauður og appelsínugulur og hlýir
gulir litir.
■ Hlýr litur á loftinu
lækkar það og gefur
herberginu notalegan
blæ.
■ Best er að halda jafnvægi
í herbergi sem málað er í skær-
um litum með ljósum teppum
eða ljósum gólfum.
■ Kaldir litir stækka herbergi og
eru því tilvaldir í litlum íbúðum.
Hvítur og blár eru dæmi um kalda
liti og grár sömuleiðis.
■ Málaðu alla fleti í sama lit.
Lágt loft virkar hærra ef það er
málað í ljósari lit en veggirnir.
■ Stór húsgögn virðast minni ef
þau eru máluð í sama lit og vegg-
irnir.
■ Hafðu gólfið dökkt og vegg-
ina ljósa – gólfið virðist stærra
fyrir vikið.
■ Notaðu dekksta litinn á
gólfinu til þess að láta það
virka stærra og hafðu þann ljós-
asta efst. Þannig stækkar þú rýmið
mjög mikið. Sömuleiðis minnkar
þú það ef þú snýrð þessu við og
notar ljósasta litinn á gólfið en
þann dekksta efst. Þá minnkar
rýmið.
■ Veggur fyrir enda á löngum
gangi virðist nær ef hann er mál-
aður í dökkum lit.
■ Ef það er ílangt herbergi á heim-
ili þínu sem þú vilt láta virka fer-
kantaðra þá er sniðugt að mála
mjórri veggina í dekkri lit en
hina.
Láttu litina hjálpa þér þegar heimilið er málað
Litaval getur skipt höfuðmáli þegar heimilið
er málað. LJÓSMYND NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Skrifstofusniglar
og -froskar
Í IÐU, BÓKA- OG GJAFAVERSLUN
LÆKJARGÖTU 2A, FÁST SKEMMTI-
LEGAR SKRIFSTOFUVÖRUR SEM
HENTA VEL Í VINNUNA.
Suma daga kemur maður litlu í
verk í vinnunni vegna andleysis og
býst við að góðlátlegar athuga-
semdir yfirmannsins muni
á hverri stundu breytist í
háðsglósur, þar sem
afkastageta manns er
dregin í efa.
Við svoleiðis kring-
umstæður getur
verið tilvalið að fá sér
smá göngutúr í góðu
veðri, til að endur-
heimta fyrri orku. En
þar sem það hentar
kannski ekki alltaf að
bregða sér frá, getur líka
verið sniðugt að breyta
aðeins til á skrifstofunni til
að hressa upp á umhverf-
ið og ná sér aftur á strik.
- rve
Hnatt-
líkan á
1.995 kr.
Það er ekki
verra að hafa
draumadísina
framan á
minnisbók.
Twiggy-minn-
isbók kostar
896 kr.
Allt er vænt
sem er
grænt.
Fairy-tail kort sem viðtakandi
getur notað sem óróa, 990 kr.
Hvernig væri að breyta út af vananum
og senda viðskiptavinum litrík bréf í
stað tölvupósts. Þetta skemmtilega
Dots og jots bréfasett kostar 2.395 kr.
Heftari í froskalíki.
Hérna hefur hugmyndin um
slímuga snigla verið útfærð
á skemmtilegan hátt.
Ertu gjarn á að
týna pennum
og blýöntum?
Pennastandur
með þremur
pennum á
1.295 kr.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
S
IG
U
R
Ð
SS
O
N