Fréttablaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 17.08.2006, Blaðsíða 54
 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR34 timamot@frettabladid.is Í skólagörðum um alla borg vinnur unga fólkið að því að taka upp græn- meti sem það hefur hlúð að í sumar. Svanhildur Sigfúsdóttir, yfirverkstjóri Skólagarðanna í Reykjavík, segir að starfið í sumar hafi gengið vel miðað við veðrið sem var í byrjun sumars. „Við setjum niður í júní, við byrjum á að setja niður kartöflurnar og setjum svo grænmetið niður og reynum að klára allt fyrir sautjánda júní,“ segir Svanhildur og bætir við að uppskeran líti vel út. „Við ræktum svo rosalega mikið, það er hægt að fá spergilkál, rófur, rauðkál og hvítkál, sellerí og blaðlauk og svo erum við með stein- selju og timían og fjórar tegundir af salati. Við erum með sér kartöflubeð og sumarblóm og þau sá bæði fyrir radís- um og spínati,¿ segir Svanhildur og bætir við að foreldrar og ömmur og afar séu dugleg við að hjálpa til við uppskeruna. Svanhildur segir að örlítið færri krakkar taki þátt í starfi skólagarðanna í ár en í fyrra, en tæplega sexhundruð börn sóttu skólagarðana í sumar í Reykjavík. ¿Þau eru flest í Laugardaln- um, þar er stærsti garðurinn okkar, og svo er það Fossvogurinn og Þorragatan vestur í bæ sem eru stórir líka,“ segir Svanhildur en átta skólagarðar eru starfræktir í Reykjavík. „Það var rosalega mikið auðvitað í skólagörðunum hérna áður fyrr, það hefur reyndar minnkað með árunum örlítið, það er auðvitað orðið svo margt í boði,“ segir Svanhildur. Það er umhverfissvið Reykjavíkurborgar sem heldur utan um starfið og borgin nið- urgreiðir kostnað vegna garðanna. Börn á aldrinum átta til tólf ára hafa aðgang að skólagörðum borgarinnar en eldri borgarar, öryrkjar og leikskólar geta einnig nýtt sér þá. Þá getur almenningur nýtt sér þjónustu garð- anna þar sem eru laus pláss, en þarf að borga aðeins meira en aðrir hópar. Svanhildur segir strákana ekki síður áhugasama en stelpurnar og að heilu fjölskyldurnar komi í garðana ár eftir ár. Signý Bergsdóttir, starfsmaður í skólagörðunum við Þorragötu, segir að sumarið hafi verið fínt en um hundrað krakkar voru þar í sumar. „Það er svo- lítið mikið að gera þegar maður er að setja allt niður með þeim og svo þegar það er búið þá er bara að koma og reita arfa og hugsa svolítið um garðinn, það er náttúrulega fínt því þá geta krakk- arnir bara ráðið því hvenær þau koma,“ segir Signý að lokum. gudrun@frettabladid.is SKÓLAGARÐAR REYKJAVÍKUR: UPPSKERAN HAFIN Öll fjölskyldan hjálpar til UPPSKERA Þetta unga fólk tók upp gómsætt grænmeti í blíðunni á þriðjudag á uppskerudegi í skólagörðunum við Þorragötu í Vesturbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN AFMÆLI Bragi Guð- mundsson er sjötugur, hann verður að heiman. Pétur Arason, listaverkasafnari er 62 ára. JIANG ZEMIN FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1926. „Það verður sífellt erfiðara fyrir stórveldi eða hóp stórþjóða að einoka alþjóðamál og ákveða örlög annarra ríkja.“ Jiang Zemin er fyrrverandi forseti Kína. Frægasta tónlistarhátíð sjöunda áratugs- ins var haldin á búgarði í Bethel í New York-ríki í Bandaríkjunum. Skipuleggjendum gekk illa að finna stað fyrir hátíðina og allt leit út fyrir að hætt yrði við hana en að lokum ákvað Max Yasgur að lána bújörð sína undir hátíðina sem hófst þann fimmtánda ágúst árið 1969 í Sullivan-sýslu. Reiknað var með að um tvöhundruð þúsund gestir kæmu á hátíðina en þeir urðu mun fleiri eða tæp hálf milljón. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda voru fáir miðar seldir því flestir svindluðu sér inn. Á meðal þeirra sem komu fram á hátíðinni voru Santana, Jimi Hendrix, Janis Joplin, Joe Cocker og Crosby, Stills, Nash & Young. Um helgina rigndi eins og hellt væri úr fötu og fljótlega varð svæðið eitt drullusvað. Lítil sem engin aðstaða var fyrir tónleikagesti á svæðinu sem var yfirfullt af fólki. Miðað við aðstæður hagaði fólk sér furðulega vel enda margir í vímu af hassi og öðrum lyfjum. Þrátt fyrir allan fjöldann og allar stórstjörnurnar þá voru skipuleggjendur hátíðarinnar nánast gjaldþrota þegar að henni lauk. Heimildarmynd um hátíðina kom út árið 1970 og sló í gegn í Bandaríkjunum og bjargaði rekstri hátíðarinnar fyrir horn. ÞETTA GERÐIST 17. ÁGÚST 1969 Woodstock-hátíðinnni lýkur 13.00 Baldur Stefánsson, Kópa- vogsbraut 1B, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju. 14.00 Anna Sigríður Jónsdóttir, Ljósavatni, verður jarð- sungin frá Þorgeirskirkju, Ljósavatni. 14.00 Ásdís Ólafsdóttir, Einigrund 4, Akranesi, verður jarð- sungin frá Akraneskirkju. 15.00 Ingimar Ámundason, frá Kambi í Flóa, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kapellu. 15.00 Sæbjörn Jónsson, Laug- arnesvegi 89, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju. ÚTFARIR Elskuleg móðir okkar, tengdmóðir, dóttir og systir Ásta Unnur Jónsdóttir Gullengi 39 lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 14. ágúst s.l. Eyjólfur Guðsteinsson Inga Birna Guðsteinsdóttir Róbert Már Ingvason Jón Ingvarsson Inga Hilmarsdóttir og bræður hinnar látnu. LEGSTEINAR OG FYLGIHLUTIR Í MIKLU ÚRVALI 70 ára afmæli 70 ára verður föstudaginn 18 ágúst Anna Margrét Jónsdóttir frá Neskaupstað. Hún mun taka á móti vinum og vandamönnum Í Hótel Glym Hvalfirði frá kl 17, þann 18 ágúst. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Jón Óskarsson Laufskálum 6, Hellu, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, laugardaginn 12. ágúst. Útförin fer fram frá Oddakirkju á Rangárvöllum föstudaginn 18. ágúst kl. 14.00. Áslaug Jónasdóttir Óskar Jónsson Dóra Sjöfn Stefánsdóttir Ágústa J. Jónsdóttir Hreiðar Hermannsson Anna Jónsdóttir Bjarni Diðrik Sigurðsson Barnabörn. Okkar kæri, Bóas Guðmundur Sigurðsson Bleiksárhíð 10, á Eskifirði, andaðist 9. ágúst síðastliðinn. Útförin fer fram frá Eski- fjarðarkirkju laugardaginn 19. ágúst kl 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Svæðisskrifstofu Austulands. Landsb. 175-15-370117 Edda Kristinsdóttir Bóas K. Bóasson og Sigrún Gunnlaugsdóttir G. Karl Bóasson og Árdís G. Aðalsteinsdóttir Kristján Þ. Bóasson og Sigríður H. Aðalsteinsdóttir Dilja Rannveig Bóasdóttir barnabörn og langafabarn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jósep Birgir Kristinsson Daggarvöllum 4A, Hafnarfirði, áður til heimilis á Hagamel 6 í Skilmannahreppi, lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði fimmtudaginn 10. ágúst. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 18. ágúst kl. 13.00. Margrét Kristín Þórhallsdóttir Þórhallur B. Jósepsson Herdís Ólafsdóttir Karólína K. Jósepsdóttir Gunnar Jónsson Skarphéðinn Jósepsson Stefanía Björnsdóttir Ævar Örn Jósepsson Sigrún Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Baldur Stefánsson Kópavogsbraut 1B, Kópavogi verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag, fimmtudaginn 17. ágúst kl. 13 Margrét Stefánsdóttir Stefán Baldursson Þórunn Sigurðardóttir Þorgeir Baldursson Regína Arngrímsdóttir Vignir Baldursson Þórey Birna Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.