Fréttablaðið - 17.08.2006, Qupperneq 60
bio@frettabladid.is
17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR40
Ævintýramyndin Five Children &
It fjallar um fimm börn sem finna
furðudýrið Psammead á leynilegri
strönd við villu frænda síns. Börn-
in eru að sjálfsögðu himinlifandi
með þennan fund sem á eftir að
lífga upp á tilveruna á þessum ein-
angraða stað. Psammead er nefni-
lega þeim hæfileikum gæddur að
geta uppfyllt eina ósk á hverjum
degi sem endist þangað til sól fer
að setjast. Fljótlega uppgötva
börnin fimm að það er ekki alveg
jafn auðvelt að upphugsa skemmti-
legar óskir á hverjum degi og
galdrar eru vandmeðfarnir þótt
spennandi séu.
Það eru þeir Eddie Izzard (talar
fyrir dýrið) og Kenneth Brannagah
sem fara fyrir leikhópnum en þeir
eru fyrir löngu orðnir kunnir af
verkum sínum, Izzard sem
skemmtikraftur og Brannagah
sem einhver fremsti Shakespeare-
leikari Breta. Leikstjóri er John
Stephenson en hann gerði sjón-
varpsmyndina Animal Farm þar
sem stórstjörnur á borð við Kels-
ey Grammer, Ian Holm og Peter
Ustinov töluðu fyrir dýrin.
Furðudýr frá fornöld
PSAMMEAD OG BÖRNIN FIMM Furðudýrið,
sem börnin fimm finna á leynilegri strönd
við hús frænda síns, á heldur betur eftir að
lífga upp á tilveruna.
Kvikmyndin Snakes on Plane
hefur á einhvern undarlegan hátt
orðið að netsmelli sem hefur skil-
að sér í eftirvæntingu meðal kvik-
myndahúsagesta.
Myndin segir frá hjólreiða-
kappanum Sean Jones sem er að
hjóla úti í hinni gullfallegu nátt-
úru Hawaií. Sér til mikillar skelf-
ingar verður hann vitni að því
þegar glæpamaðurinn Eddie Kim
drepur saksóknara sem hafði hann
undir smásjánni. Jones er því
orðið mjög mikilvægt vitni í stóru
sakamáli og þarf að komast frá
eldfjallaeyjunni til Los Angeles.
Það er einmitt þá sem FBI-lög-
reglumaðurinn Neville Flynn
kemur til skjalanna en hann er
sérfræðingur í að vernda vitni
fyrir glæpamönnum sem hugsa
þeim þegjandi þörfina. Flynn
hefur þegar bjargað Jones frá
fyrsta morðtilræðinu og hyggst
koma honum í heilu lagi til Engla-
borgarinnar. Eddie Kim kemst þó
að því með hvaða flugvél Jones og
Flynn fljúga og með hjálp mafíu
sinnar kemur glæpamaðurinn
snákum fyrir í flugvélinni en þeir
eiga eftir að valda miklum usla í
háloftunum.
Samuel L. Jackson leikur lög-
reglumanninn Neville Jones en
ferill þessa fína leikara hefur
verið mikil rússíbanareið, góðar
myndir í bland við algjöran hryll-
ing. Ef marka má listann yfir
næstu kvikmyndir Jacksons, sem
birtur er á imdb.com, er ljóst að
ekki verður nein breyting þar á.
Leikstjóri Snakes on Plane er
David Ellis en hann var áður
áhættuleikari í Hollywood og
hefur komið að flest öllu því sem
snertir kvikmyndagerð. Hann
gerði síðast hina ágætu Cellular.
Snákahræðsla í háloftunum
SNAKES ON PLANE Samuel L. Jackson leikur FBI-manninn Neville Flynn sem þarf að bjarga
mikilvægu vitni frá morðtilraun um borð í flugvél.
Kvikmyndaleikstjórinn Eli Roth er
væntanlegur til landsins í haust í
þeim erindagjörðum að taka hér
upp hluta framhaldsmyndarinnr
Hostel 2. Tökur fara væntanlega
fram í október og nóvember en
leikstjórinn er mikill Íslandsvinur
enda dvaldi hann hér sem ungling-
ur við útreiðar og sveitastörf. True
North-kvikmyndafyrirtækið leitar
nú að fólki fyrir þessar tökur og
fara prufur fram á sunnudaginn en
fyrirtækið mun aðstoða tökuliðið
þegar það kemur hingað til lands.
Myndin Hostel sló eftirminni-
lega í gegn í fyrra þrátt fyrir allan
hryllinginn. Þrjú hlutverk af stærri
gerðinni verða væntanlega skipuð
Íslendingum og samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins er verið að
leita að gullfallegri fyrir-
sætu, mafíuforingja auk
konu á aldrinum þrjátíu
til fjörtíu ára sem er
nokkuð sterkbyggð og
ljóshærð.
Eins og margir muna
lék Eyþór Guðjónsson
nokkuð stórt hlutverk í
fyrstu Hostel-myndinni
og ferðaðist um víðan
völl til að kynna myndina. Má
því reikna með að fjöldi Íslendinga
geri sér vonir um að feta í fótspor
hans og ætli sér að taka þátt í fram-
haldi af einhverri óhugnalegustu
hrollvekju allra tíma. -fgg
Roth leitar að mafíuforingja
og fyrirsætu fyrir Hostel 2
HOSTEL Myndin gekk fram af mörgum en naut mikilla vinsælda hjá aðdáendum
hrollvekjunnar.
ELI ROTH Er
mikill aðdá-
andi Íslands og
kemur hingað
í haust til að
taka upp hluta
af framhalds-
myndinni Hostel 2.
Eftirlætiskvikmynd: „Það er Dekalog eftir
Krzysztof Kieslowski en þetta eru reyndar
tíu myndir. Mér finnst viðfangsefnið,
boðorðin tíu, mjög spennandi en þarna
dansar leikstjórinn á línunni og bilið
á milli heimildarmyndar og leikinnar
myndar er á gráu svæði.
Eftirlætisatriði: Atriðið þegar
faðirinn uppgötvar að það hefur
orðið slys og strákurinn hans
er horfinn í fyrstu Dekalog-
myndinni. Magnað atriði.
Uppáhaldsleikstjóri:
Krysztof Kieslowski er í
miklu uppáhaldi auk
Miu Derren sem gerði
tilraunakenndar kvikmyndir á fjórða og
fimmta áratugnum í Hollywood.
Mesta hetja hvíta tjaldsins: Mesta
hetjan er úr kvikmyndinni Fire sem er í
leikstjórn Deepa Mehta en persónan heitir
Radha og er leikin af Shabana Asmi. Stór-
kostleg persóna og ótrúleg túlkun
hjá leikkonunni.
Versti skúrkurinn: Íþrótta-
þjálfarinn í kvikmyndinni
Mysterious Skin eða Dularfull
snerting.
Hvaða persóna fer mest í
taugarnar á þér? Foreldr-
arnir í dönsku kvikmynd-
inni Festen. Mér leið hreinlega eins og
ég væri komin í íslenskt fjölskyldu-
boð.
Ef þú fengir að velja þér mynd,
leikstjóra og leikara, um hvað
yrði hún og hverjir væru hinir
heppnu? Mig hefur alltaf dreymt
um að endurgera Möltufálkann
með Sirrý og Kristjáni Franklín
Magnús í aðalhlutverkum. Að
öllum líkindum myndi ég hins
vegar gera kvikmynd um innrás
Ísraela í Líbanon, Mira Nair yrði leik-
stjóri og Uma Thurman og George
Clooney í aðalhlutverkum auk James
Gandolfini sem ísraelskur herforingi
og Omar Shariff.
KVIKMYNDANJÖRÐURINN HRAFNHILDUR GUNNARSDÓTTIR KVIKMYNDALEIKSTJÓRI
Vill sjá Sirrý í endurgerð Möltufálkans
9. HVER VINNUR.
FRUMSÝND 18. ÁGÚST
SENDU SMS SKEYTIÐ
JA FLW Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UN
NIÐ!
VINNINGAR ERU:
BÍÓMIÐAR FYRIR TVO
• DVD MYNDIR
VARNINGUR TENGDUR
MYNDINNI
OG MARGT FLEIRA
V
in
n
in
ga
r
ve
rð
a
af
h
en
di
r
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t
er
tu
k
om
in
n
í
S
M
S
kl
ú
bb
.
99
k
r/
sk
ey
ti
ð.
„Pabbi er mín fyrirmynd!“
Foreldrar eru bestir í forvörnum
Reykjavíkurborg
Þjónustu- og rekstrarsvið
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
BS
3
37
04
0
8/
20
06
Son, we live in a world that
has walls, and those walls
have to be guarded by men
with guns. Whose gonna do
it? You? You, Lt. Weinburg?
Jack Nicholson æsir sig upp við Kevin Pollack
í kvikmyndinni A Few Good Men. Stórleikur
Nicholson stendur upp úr og lyftir myndinni upp
yfir meðalmennskuna.