Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.08.2006, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 17.08.2006, Qupperneq 64
 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR44 Bandaríski leikarinn Bruno Kirby lést á mánudaginn, aðeins 57 ára að aldri, eftir harða baráttu við hvít- blæði. Eiginkona hans, Lynn Sellers, tilkynnti fjölmiðlum um þetta í gær. „Við erum djúpt snortin yfir þeim stuðningi sem við höfum fengið frá aðdáendum Brunos og samstarfs- fólki hans,“ sagði hún. „Andi hans mun lifa um ókomna tíð, ekki ein- göngu í þeim kvikmyndum og sjón- varpsþáttum sem Bruno lék í heldur einnig í hjörtum fólksins sem hann heillaði svo oft,“ bætti hún við. Kirby er flestum kunnur fyrir hlutverk sitt sem besti vinur Harrys í kvikmyndinni When Harry Met Sally auk hlutverksins í City Slick- ers en í þeim báðum lék hann við hlið vinar síns, Billys Crystal. Kirby er fæddur í New York og þrátt fyrir velgengni í gamanmyndum lagði hann einnig fyrir sig leik í dramat- ískum hlutverkum og lék í kvik- myndum á borð við The Godfather II, Donnie Brasco og Good Morning, Vietnam. Kirby er af mikilli leikaraætt í Hollywood og lék faðir hans, Bruce, meðal annars í Crash, sem fékk Ósk- arsverðlaunin fyrir bestu myndina. Þá er bróðir hans leiklistarkennari og starfaði við gerð ævintýramynd- arinnar um Narníu sem sýnd var við miklar vinsældir um jólin. Bruno Kirby látinn úr hvítblæði Í GUÐFÖÐURNUM Þrátt fyrir að hafa einbeitt sér að mestu að gamanleik þá lék Kirby meðal annars í Godfather II og Good Morning, Vietnam. FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES Föstudaginn 18. ágúst munu Dj. Curver og Kiki-Ow halda þriðja 90´s partý sumarsins á Bar 11. Fyrri kvöld hafa vakið mikla lukku gesta og komust færri að en vildu. Kvöldin einkennast af lögum og fatnaði frá tíunda áratugnum en flestir muna nú eftir lögunum „It´s my life“ með Dr Alban og „I´m the Scatman“ með Scatman John, en þau lög ásamt mörgum fleiri munu óma um barinn á. Kvöldið á föstu- daginn verður með þeirri nýbreytni að það eru verðlaun í boði fyrir besta 90´s búninginn. Fólk er því eindregið hvatt til að mæta með broskalla, flautur, hvíta hanska, smekkbuxum og annað sem kemur frá tíunda áratugnum en allt lítur út fyrir að fatnaður og lög frá þessu tímabili sé að ryðja sér rúms í nútímanum. Broskarlar á ‘90 kvöldi Fyrir tæpum tíu árum sló einleikur Bjarna Hauks Þórssonar, Hellisbúinn, í gegn á fjölum Íslensku óp- erunnar. Í byrjun næsta árs snýr Bjarni Haukur aftur með nýtt leikrit sem sett verður upp í Iðnó. Leikritið ber heitið Pabbinn og fjallar um hvernig foreldrahlut- verkin hafa breyst á síðastliðnum þrjátíu árum. Þegar Fréttablaðið náði tali af Bjarna Hauk sat hann rólegur inni í klippiherbergi og var að skoða tökur frá sjónvarps- þættinum KF Nörd sem hefur göngu sína á Sýn í lok mánaðarins en Bjarni er einmitt leikstjóri þáttanna. „Pabbinn verður settur upp í byrjun janúar en þetta eru hugleiðingar mínar um breytt hlutverk foreldranna,“ útskýrir Bjarni en sem fyrr verður hann einn á sviðinu. „Ég mun aðallega beina sjónum mínum að því hvern- ig föðurhlutverkið hefur breyst á þessum þrjátíu árum en þetta hefur aldrei áður verið tekið fyrir á þennan hátt,“ bætir hann við. Að sögn Bjarna er þetta ekki ósvipað því sem var í gangi í Hell- isbúanum en hann hefur gengið með þetta í maganum í tæp þrjú ár. „Ég hef verið að leikstýra und- anfarin en fannst núna vera rétta augnablikið,“ segir Bjarni en hann varð sjálfur pabbi í fyrsta skipti fyrir þremur árum og fá áhorf- endur eflaust innsýn inn í hvernig Bjarna hefur tekist upp á þessum þremur árum. Hundrað þúsund Íslendingar lögðu leið sína í Íslensku óperuna á árunum 1998 til 2001 en það er algjört met í íslensku leikhúslífi. Sýningin hefur síðan þá farið sig- urför um heiminn og má reikna með að einhverjir verði forvitnir hvernig „hellisbúanum“ Bjarna hefur gengið að verða pabbi. Hellisbúinn Bjarni snýr aftur BJARNI HAUKUR ÞÓRSSON Mun stíga á svið í fyrsta sinn síðan að Hellisbúinn sló í gegn fyrir tíu árum og deila með Íslendingum hugleiðingum sínum um föðurhlutverkið. HELLISBÚINN Leikritið hefur farið sigurför um Norðurlöndin og verður forvitnilegt að sjá hvernig „hellisbúanum“ gengur með föðurhlutverkið. Orgelkvartettinn Apparat, Tra- bant, Unsound og plötusnúðarnir Margeir og Alfons X koma fram á tónlistarhátíð í Kaupmannahöfn um helgina. Um er að ræða hátíð- ina Public Service í miðborg Kaup- mannahafnar og fara Íslending- arnir út á vegum Iceland Airwaves. Í tilkynningu frá Iceland Airwaves kemur fram að tilgangur þessa sé að kynna íslensku tónlistarhátíð- ina og íslenska tónlist fyrir frænd- um vorum Dönum. Airwaves stendur líka að sér- stöku kvöldi á skemmtistaðnum Vega í Kaupmannahöfn hinn 1. september næstkomandi. Þar koma fram íslenska hljómsveitin Jeff Who? og tónlistarmaðurinn Eberg auk áðurnefndra plötu- snúða. Vega er þekktur tónleika- staður í Kaupmannahöfn en þar leika þekkt alþjóðleg nöfn gjarnan þegar Danmörk er sótt heim. Þriðji hluti íslensku innrásar- innar er svo tónleikar Hudson Wayne í lok mánaðarins. Hljóm- sveitin spilar á Loppen í Kristjan- íu 30. ágúst. Daðrað við Danmörku TRABANT Spilar á danskri tónlistarhátíð um helgina. JEFF WHO? Býður Dönum upp á diskórokk sitt í september. BROSKARLAR Voru áberandi á níunda áratugnum. DJ CURVER OG DJ KIKI-OW Standa fyrir 90´s kvöldi á Bar 11 á föstudagskvöldið þar sem tónlist og fatnaður frá tíunda áratugnum mun ráða ríkjum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.