Fréttablaðið - 17.08.2006, Page 72

Fréttablaðið - 17.08.2006, Page 72
 17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR52 FÓTBOLTI Um fjörutíu spænskir fjöl- miðlamenn komu hingað til lands til að fylgjast með vináttulandsleik Íslands og Spánar, en leikurinn var sá fyrsti hjá spænska liðinu síðan það féll úr leik á HM eftir tap fyrir Frökkum í sextán liða úrslitum. El Mundo Deportivo segir í fyrirsögn að leikurinn á Íslandi hafi verið leiðinlegur. Segir í greininni að leikurinn, sem hafi verið furðulegur vináttuleikur, hafi enga þýðingu haft fyrir spænska liðið. „Ekki var verið að byggja liðið upp eftir að hafa dottið úr leik á HM né heldur undir- búa liðið fyrir átökin framundan í undankeppni EM,“ sagði í umfjöllun blaðsins. Heimasíðan As.com sagði dag Raul, sem í leiknum lék sinn hundraðasta landsleik, hafa verið dag leiðinda. „Tostonsson,“ segir í fyrirsögninni en Toston þýðir leið- indi og endingin á orðinu er sú sama og á öllum íslensku landsliðsmönn- unum sem léku leikinn gegn Spáni. Spaáni tókst ekki að skora gegn veiku liði Íslands. Þetta var versti leikur liðsins undir stjórn Luis. Landsliðið varð sér til skammar enn á ný. Raul mun ekki segja barna- börnunum frá sínum hundraðasta landsleik, né heldur nokkrum öðrum manni. Þeir hundrað stuðningsmenn Spánar sem mættu á leikinn áttu meira skilið en þennan leiðindaleik gegn Íslandi. Liði sem í sínum síðasta leik tapaði 2-0 fyrir Trínidad og Tób- agó,“ segir í greininni. El Diario Mundial tók í svipaðan streng og sagði það spænska liðinu til skammar að hafa ekki náð að skora gegn smáliði Íslands. Íþróttablaðið Have sagði að Spán- verjarnir hafi furðað sig á hversu harkalegir íslensku landsliðsmenn- irnir voru og bætti við að leikurinn hafi verið sá versti í stjórnartíð Aragones, sem hefur stýrt spænska liðinu undanfarin tvö ár. Marca segir í fyrirsögn að leikur- inn hafi verið „kjánalegasti leikur sumarsins“ og veltir fyrir sér rétt- mæti þess að Luis Aragones hafi haldið áfram sem landsliðsþjálfari Spánar eftir gengi liðsins á HM í sumar. Leikurinn gegn Íslandi hafi síst verið til að bæta fyrir þann árangur. Allir fjölmiðlar eru sammála um að hápunktur leiksins hafi verið sú staðreynd að um hafi verið að ræða 100. landsleik fyrir- liðans Raul Gonzalez. En margir segja að leikurinn sjálfur hafi skemmt þann fagnað. eirikur.asgeirsson@frettabladid.is SPÆNSKA PRESSAN Ræðir hér við Jose Antonio Reyes eftir leikinn í Laugardalnum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Leiðindi á Laugardalsvelli Spænskir fjölmiðlar voru ekki hrifnir af leik Íslands og Spánar á Laugardals- velli í fyrrakvöld. Segja þeir að leikurinn hafi verið hreint út sagt leiðinlegur og úrslit hans ekki til fyrirmyndar fyrir spænska landsliðið. FÓTBOLTI Luis Aragones, landsliðs- þjálfari Spánar, var vitanlega ekki sáttur við að ná aðeins markalausu jafntefli gegn Íslendingum á Laugardalsvelli í fyrrakvöld, en í samtali við spænska fjölmiðla- menn eftir leikinn viðurkenndi hann að frammistaða spænska liðsins hafi sennilega verið sú versta undir hans stjórn. „Jú, þetta er væntanlega versti leikur liðsins síðan ég tók við því,“ sagði hann, spurður um hvort leikurinn hafi þjónað einhverjum tilgangi fyrir landslið Spánar. „En ég bjóst við þessu af nokkrum ástæðum. Leikmenn eru enn að komast á fullt skrið með sínum liðum og okkur skorti margt í okkar leik, svo sem hraða og þraut- seigju. Þar fyrir utan voru leik- menn mjög þreyttir.“ Aragones sagði sína menn hafa reynt hvað þeir gátu til að skora í síðari hálfleik. „Íslendingar lok- uðu svæðunum mjög vel og staðfestu að það verður mjög erfitt að mæta þessum liðum frá Norðurlöndunum í undankeppn- inni,“ sagði Aragones, en Spánn er í riðli með Íslandi, Danmörku og Svíþjóð í undankeppni EM 2008. „Þetta verða mjög erfiðir leikir.“ Aragones var því næst spurður af hverju hann hafi ekki notað alla varamenn sína í leiknum, rétt eins og Eyjólfur Sverrisson gerði í íslenska liðinu. Sér í lagi af hverju Borja Oubina fékk ekki að spreyta sig í sínum fyrsta landsleik. „Þetta var ekki eina tækifæri Oubina með landsliðinu. Hann fær fleiri leiki. Ég vildi frekar freista þess að skora með þá menn sem voru inni á vellinum. Svo vildi ég heldur ekki setja Xabi Alonso inn á þar sem hann átti við smávægi- leg meiðsli að stríða. Ég er líkleg- ast ánægðastur með að Raul lék sinn hundraðasta landsleik, hann átti það sannarlega skilið að ná þessum merka áfanga.“ - esá XABI ALONSO Spilaði ekkert í leiknum gegn Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Luis Aragones var ekki ánægður með sína menn: Versta frammistaða liðs- ins í minni stjórnartíð FÓTBOLTI Landsliðsfyrirliði Spánar, Madrídingurinn Raul Gonzalez, sagði í samtali við spænska fjöl- miðla eftir leikinn gegn Íslandi í fyrrakvöld að hann væri stoltur af 100 landsleikjum sínum fyrir Spán. „Ég var mjög hamingjusamur og stoltur,“ sagði kappinn. „Það er mjög mikilvægt fyrir mig að hafa náð þessum áfanga. Það var synd að úrslit leiksins hafi ekki verið betri en þetta var erfitt fyrir okkur.“ - esá Landsliðsfyrirliðinn Raul: Stoltur af 100 leikjum RAUL Fyrirliði Spánverjanna í strangri gæslu Arnars Þórs Viðarssonar og Kára Árnasonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Fernando Torres, leik- maður Atletico Madrid á Spáni, meiddist lítillega í leik Íslands og Spánar á Laugardalsvelli í fyrra- kvöld. Hann snerist á ökkla í fyrri hálfleik en hélt engu að síður áfram. „Þetta voru aðeins smávægileg meiðsli og útlitið er gott,“ sagði læknir spænska liðsins. Joaquin kenndi sér einnig meins eftir leikinn. „Hann fékk högg á hnéð og varð var við smá óstöðugleika í hnénu,“ sagði læknirinn. Hann bætti því þó við að þar væri einnig um smávægi- leg meiðsli að ræða og að hann yrði fljótur að ná sér. - esá Fernando Torres: Meiddist lítil- lega á ökkla KOMU INN Á Í HÁLFLEIK Jose Antonio Reyes kom inn á fyrir Torres í hálfleik, á sama tíma og Joaquin. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI Tæpar þrjár milljónir sjón- varpsáhorfenda á Spáni fylgdust með leik Íslands og Spánar í sjón- varpi en leikurinn fór fram á Laug- ardalsvelli í fyrrakvöld. Meðaláhorf var um 2.786.000 manns en sam- kvæmt mælingu á Spáni horfðu flestir á leikinn undir lok fyrri hálf- leiks, er um þrjár og hálf milljón manna stilltu inn á leikinn. Ísland-Spánn: Þrjár milljónir horfðu á Spáni FÓTBOLTI Lawrie Sanchez, lands- liðsþjálfari Norður-Írlands, segir það vera draum sinn að fara með liðið í úrslitakeppni EM 2008. Fyrsti leikur liðsins í undankeppn- inni verður gegn Íslandi á Windsor Park þann 2. september. „Ef ég trúi ekki að þetta gæti gerst gerir liðið það ekki heldur,“ sagði Sanchez. „Ég mun segja leikmönn- unum að markmiðið sé að komast áfram.“ - esá Landsliðsþjálfari Norður-Íra: Ætlar sér sigur gegn Íslandi Á næstunni: 26. ágúst: Breiðin, Akranesi 02. september: Hlégarður, Mosfellsbær Föstudag: Bolungarvík Menningarnótt: Nasa, Reykjavík Um helgina: ��������� ��� ásamt saxó fónleikara! Munið tónleika Sálarinnar og Gospelkórs Reykjavíkur í Laugardalshöll 15. september. www.salinhansjonsmins.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.