Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.08.2006, Qupperneq 73

Fréttablaðið - 17.08.2006, Qupperneq 73
FIMMTUDAGUR 17. ágúst 2006 53 FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Ármann Smári Björnsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara FH. Ármann hefur vakið athygli erlendis og hefur heyrst af áhuga Molde og Brann í Noregi en hvorugt lið hefur þó gert FH tilboð í leik- manninn enn sem komið er. „Gamli samningurinn átti að renna út í lok tímabilsins og ákvað ég því að gera þriggja ára samn- ing við FH,“ sagði Ármann Smári við Fréttablaðið í gær. „Nú er bara að sjá hvað gerist og hvort þetta muni fæla lið frá mér. Það verður þá bara þannig. Ég vildi halda tryggð við FH og ekki fara frá því í haust án greiðslu.“ Ármann Smári hefur heyrt af áhuga erlendra liða en þar við situr. „Ég þori ekkert að segja um hvað gerist í framtíðinni. Það verður bara að fá að koma í ljós.“ Ármann Smári var valinn í A- landslið karla í fyrsta sinn nú í mánuðinum og fékk að spreyta sig í nokkrar mínútur gegn Spánverj- um á Laugardalsvellinum í fyrra- dag. „Það var gaman að koma inn á enda mikil upplifun. Það var heldur ekki slæmt að vinna einn skallabolta,“ sagði hann og hló. „Ég sá þó ekki gegn hverjum.“ Annar leikmaður í Landsbanka- deildinni, Blikinn Marel Baldvins- son, hefur verið orðaður við Molde í Noregi en liðið gerði Breiðabliki tilboð í hann fyrr í vikunni. Einar Kristján Jónsson, formaður Breiðabliks, sagði félagið ekki hafa svarað tilboðinu og ætlaði að bíða fram yfir helgi en á sunnudag mætir Breiðablik liði KR. Nái Breiðablik þremur stigum úr þeim leik eru allar líkur á því að Marel sé á leiðinni út hið fyrsta. - esá ÁRMANN SMÁRI Á LANDSLIÐSÆFINGU Hér ásamt Ívari Ingimarssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Ármann Smári Björnsson framlengdi samning sinn við FH: Nýr þriggja ára samningur við FH FÓTBOLTI Pascal Chimbonda á þá ósk heitasta að verða seldur frá Wigan til Tottenham. En þrátt fyrir það virðast liðin eiga töluvert með að ná í land. Nýlega neitaði Paul Jewell, framkvæmdarstjóri Wigan, boði Tottenham í leikmanninn og sagði að öllum boðum undir 6 millj- ónum punda yrði hafnað. Í kjölfar- ið bárust fréttir af því að Totten- ham hafi lagt inn nýtt tilboð í leikmanninn en ummæli eins tals- manns Tottenham í gær tóku af allan vafa um það. „Við höfum ekki endurnýjað áhuga okkar á Chimb- onda og höfum ekki lagt inn nýtt tilboð,“ sagði talsmaðurinn. Sam- kvæmt því er engu líkara en að Tottenham sé að gefast upp. - dsd Pascal Chimbonda: Tottenham að missa áhugann PASCAL CHIMBONDA Vill ólmur fara til Tottenham. Er hér í baráttu við Heiðar Helguson. NORDIC PHOTOS/GETTY HNEFALEIKAR Floyd Mayweather mun berjast gegn WBC-meistar- anum Carlos Baldomir í Las Vegas 4. nóvember nk. Mayweather er ósigraður í 36 bardögum á sínum ferli og þar af hafa 24 þeirra endað með rothöggi á meðan Baldomir hefur unnið 43 bardaga og tapað 9 á sínum ferli. Baldomir er þó alls ekkert lamb að leika við og hefur t.d. unnið bæði Zab Judah og Art- uro Gatti á þessu ári. Goðsögnin Oscar de la Hoya hefur látið hafa það eftir sér að hann vilji berjast við Mayweather áður en hann líkur ferli sínum á næsta ári. - dsd Floyd Mayweather: Berst gegn Baldomir FLOYD MAYWEATHER Sést hér fagna sigri gegn Zab Judah í apríl sl. NORDIC PHOTOS/GETTY
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.