Fréttablaðið - 17.08.2006, Qupperneq 78
17. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR58
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 hróss 6 í röð 8 hamfletta 9 stök
11 mjöður 12 kjöt 14 fimur 16 upp-
hrópun 17 geislahjúpur 18 blóm 20
í röð 21 hvæs.
LÓÐRÉTT
1 munnvatnsrennsli 3 ógrynni 4
óglatt 5 andi 7 tala 10 andmæli 13
forsögn 15 glufa 16 heyskaparamboð
19 sjó.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 lofs, 6 lm, 8 flá, 9 ein, 11 öl,
12 flesk, 14 lipur, 16 oj, 17 ára, 18 rós,
20 tu, 21 fnæs.
LÓÐRÉTT: 1 slef, 3 of, 4 flökurt, 5 sál,
7 milljón, 10 nei, 13 spá, 15 rauf, 16
orf, 19 sæ.
„Það var kominn tími á þetta. Þegar
maður er að ferðast fattar maður
hvað maður á mikið af drasli,“ segir
tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindar-
son, sem ætlar að selja fötin sín á
Sirkusmarkaðinum á laugardaginn
kemur. Erpur hefur eytt síðustu
mánuðum í Asíu og segist líta hlut-
ina öðrum augum nú en áður.
„Ég sé það nú að ég á tonn af
fötum. Það mætti eiginlega halda
að ég væri kvenmaður, ég á til
dæmis fleiri skó en kærastan mín,“
segir Erpur sem verður með bás á
markaðnum ásamt Dóra DNA, sem
á líka „slatta“ af fötum að sögn
Erps. Sirkusmarkaðurinn er hald-
inn í portinu á bak við skemmti-
staðinn Sirkus á Klapparstíg og
opnar klukkan ellefu.
Erpur segir að fötin sem hann
verður með til sölu verði ansi fjöl-
breytt, enda hafi hann gengið í
ýmsu í gegnum tíðina. Hann segist
til að mynda hafa grafið upp mikið
úrval af stuttermabolum og nokkra
ónotaða strigaskó svo eitthvað sé
nefnt.
„Svo verð ég með eitthvað af
dóti frá Kína, ég missti mig aðeins í
kaupum á plakötum og fleiru þar.
Ég er jafnvel að spá í að selja ein-
hverjar bækur og fleira. Þetta gæti
orðið mjög forvitnilegt.“ - hdm
Selur fötin sín um helgina
ERPUR EYVINDARSON Á ferðalagi sínu
um Asíu uppgötvaði rapparinn að hann
hefur sankað að sér allt of miklu drasli.
Hann ætlar því að selja föt og fleira á
Sirkusmarkaðinum á laugardaginn.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Talsvert var fjallað um „Stuðmanna-barnið“ Bryndísi Jakobsdóttur í
fjölmiðlum á síðasta ári. Eins og nafnið
gefur til kynna eru foreldrar stúlkunnar
meðlimir hljómsveitarinnar Stuðmanna,
nánar tiltekið þau Jakob Frímann
Magnússon og Ragnhildur Gísladóttir
sem nú er hætt í sveitinni. Bryndís hefur
erft tónlistarhæfileikana frá foreldrum
sínum og hefur síðasta árið unnið
að eigin tónlist. Hún heldur úti eigin
vefsvæði á myspace.com/bryndisofficial
og þar er hægt að hlusta á
þrjú laga hennar. Athygli
vekur að þar kemur
fram að Bryndís hafi
unnið lögin með Mark
nokkrum Ronson. Sá
hefur meðal annars
unnið sér það til
frægðar að vinna
með Christinu
Aguilera og nú
síðast Lily Allen.
Ekki amalegt það.
Fyrirsætan Elísabet Dav-íðsdóttir er stödd á Íslandi um þess-
ar mundir og ætlar að fagna þrítugsaf-
mæli sínu um næstu helgi ásamt vinum
og fjölskyldu. Elísabet hefur verið búsett
í New York í um áratug þar
sem hún hefur starfað
sem fyrirsæta og nú
síðast sem ljósmynd-
ari. Á þessum tíma
hefur Elísabet kynnst
ógrynni af fólki úr
tískubransanum og
má búast við því að
nóg verði af erlend-
um gestum í veislu
Elísabetar.
Stórsöngvarinn Björgvin Halldórs-son syngur með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands á viðhafnartónleikum í
Laugardalshöll hinn 23. september
næstkomandi. Eins og Fréttablaðið
hefur greint frá verður karlakórinn Fóst-
bræður Björgvin til halds og trausts, auk
hljómsveitar og þekktra bakraddasöngv-
ara og gesta. Líklegt er talið að seinna
meir verði upptaka frá tónleikunum
gefin út á DVD-diski. Athygli vekur að í
fréttatilkynningu kemur fram að bakhjarl
tónleika Björgvins er
Alcan í Straumsvík,
en það sé gert í
tilefni af fjörutíu ára
afmæli ÍSAL. Bó
fetar þarna í fótspor
kollegans Bubba
Morthens, en það
var Glitnir sem bauð
upp á tónleika í
tilefni af fimm-
tugsafmæli hans.
- hdm
„Ég á von á því að á milli 20-30
manns taki þátt í keppninni og
garðurinn verður þéttsetinn,
það er ekki spurning,“ segir
Jóhannes Bjarnason, betur
þekktur sem Jói B, sem er
einn skipuleggjenda
Tom Selleck keppninn-
ar. Í Tom Selleck keppn-
inni keppa karlmenn í
skeggvexti og þrjú
flottustu yfirvara-
skegg landsins eru
verðlaunuð. Þetta er
fjórða árið í röð sem
keppnin er haldin á skemmti-
staðnum Sirkus og hefjast
leikar klukkan 20 í kvöld.
Undanfarnar vikur og mán-
uði hefur mátt merkja það að
keppnin standi fyrir
dyrum því stöðugt fleiri
menn ganga nú um göt-
urnar með mottur í and-
litinu. Hárgreiðslu-
maðurinn Jón Atli
Helgason tekur þátt í
keppninni en hann
hefur síðustu ár fengið
það verkefni að snyrta
skegg margra þátttak-
enda fyrir keppnina.
Svo verður þó ekki í ár
enda eru menn nú reynsl-
unni ríkari: „Það eru engir
nýburar sem taka þátt núna held-
ur vanir menn sem kunna að
snyrta skegg sitt sjálfir,“ segir
Jón Atli.
Dómnefnd Tom Selleck-keppn-
innar er jafnan skipuð þjóðþekkt-
um einstaklingum í bland við fag-
fólk. Að þessu sinni eru í
dómnefndinni þau
Björgvin Halldórsson
söngvari, Ragnhild-
ur Gísladóttir söng-
kona, Svavar Örn
Svavarsson hárgreiðslumaður og
Ragnar Páll Steinsson bassaleik-
ari, sem sjálfur hefur sigrað í
keppninni einu sinni. Jón Atli Jón-
asson rithöfundur verður kynnir í
kvöld og tónlistarmenn-
irnir Davíð Þór og Helgi
Svavar úr Flís leika
undir á meðan á
keppninni stendur.
Skráningareyðu-
blöð fyrir þá sem
vilja taka þátt
liggja frammi
á Sirkus allt
fram til
klukkan
19 í
kvöld.
-hdm
Flottustu yfirvaraskegg landsins verðlaunuð
TVEIR REYNDIR Jói B,
einn skipuleggjend-
anna, og Maggi
legó sem sigraði í
fyrra. Þeir verða
báðir með í ár.
JÓN ATLI Þarf ekki að snyrta
skegg keppenda í ár, enda
eru þeir flestir reynsluboltar
og kunna að snyrta eigið
skegg.
opið alla laugardaga 11-14
Stór humar, túnfiskur
og úrval fiskrétta á grillið
HRÓSIÐ FÆR
...Íslenska landliðið í knattspyrnu
fyrir að gefa ekkert eftir og ná
markalausu jafntefli gegn stórliði
Spánverja á Laugardalsvelli.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 8
1. Ósk Vilhjálmsdóttir.
2. Flundra.
3. Ásdís Rán Gunnarsdóttir.
Sögulegar sættir urðu á Fiskideg-
inum mikla á Dalvík um síðustu
helgi þegar Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur og Bjarki
Elíasson, fyrrverand yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, grófu
stríðsöxina. Eins og margir muna
elduðu þeir grátt silfur saman um
árabil þegar Ragnar mótmælti af
miklum móð
stríðsrekstri
Bandaríkjanna í
Víetnam og veru
NATO hér á
landi en það kom
í hlut Bjarka að
reyna að sjá til
þess að mótmælin
færu vel
fram. Það
kom þó fyrir
að upp úr
sauð á milli
mótmæl-
enda og
lög-
reglu.
„Ég
var í miklum gleðskap á veitinga-
húsinu Sogni en Bjarki var stadd-
ur í íbúð á hæðinni fyrir ofan.
Frænka hans sá mig og dró mig
upp til Bjarka sem sat á verönd-
inni og fylgdist með,“ segir Ragn-
ar um aðdraganda þessara sögu-
legu sætta. „Við sátum þar dágóða
stund og ræddumst við. Við erum
sveitungar og það er enginn kali á
milli okkar. Ég held að hann hafi
haft gaman af þessu spjalli og við
skildum sem vinir.“
Á árunum 1967-70 var fjöld-
inn allur af mótmælaaðgerð-
um hér á landi til að mót-
mæla stríðsrekstri
Bandaríkjanna í Víet-
nam og Atlantshafs-
bandalaginu. Mótmælin náðu
hámarki á Þorláksmessu árið 1968
þegar lögreglan meinaði mótmæl-
endum að ganga upp að banda-
ríska sendiráðinu og upp úr sauð.
Ragnar var einn af þeim sem
þótti ganga hvað vasklegast fram
í mótmælunum á þessum árum og
sömu sögu er að segja af Birnu
Þórðardóttur blaðamanni.
Þegar Ragnar var að kveðja
Bjarka spurði yfirlögregluþjónn-
inn fyrrverandi: „Er Birna
líka farin að róast.“ Ragn-
ar þvertók fyrir það og
svaraði að bragði: „Hún
færist öll í aukana.“ Þá
brosti Bjarki.
Ragnar segir að það
hafi verið indælt að
hitta yfirlög-
regluþjóninn
fyrrverandi. „Ég
held að honum
hafi líka þótt
ágætt að hitta
mig.“
kristjan@frettabladid.is
RAGNAR STEFÁNSSON OG BJARKI ELÍASSON: HITTUST Á FISKIDEGINUM MIKLA
Grófu stríðsöxina á Dalvík
BJARKI ELÍASSON
OG RAGNAR
STEFÁNSSON
Hittust á
Fiskideginum
mikla á Dalvík
og urðu mestu
mátar.
MÓTMÆLI Það er ekki nýtt að lögreglu og mótmælendum lendi saman. Herstöðvaandstæðingar gengu oft vasklega fram á árum áður
þegar Ragnar og Bjarki elduðu grátt silfur saman og þá tók lögregla þá engum vettlingatökum.