Fréttablaðið - 17.08.2006, Qupperneq 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
33
62
07
/2
00
6
Viðskiptavinir í Og1 greiða ekkert fyrir takmarkalausa notkun milli
allra heimasíma innanlands.
Heimili sem eru með allt hjá Og Vodafone, GSM, Heimasíma og Internet geta skráð sig í Og1.
Auðvelt að skipta.
Það er ekkert mál að skipta um símafyrirtæki eða almennt að skrá sig í Og1. Hringdu núna í
1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is og skráðu þig og þína.
Mánaðargjald heimasíma er 1.390 kr.
Og Vodafone hefur leitt samkeppni á íslenska fjarskiptamarkaðnum og fært neytendum betri
þjónustu og lækkað verð.
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar
og skráningu í Og1.
BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag
����������
����������
Eitt sem mér hefur alltaf þótt vanta meira af hér á landi eru
villt dýr. Mér finnst að við hefðum
mátt vera duglegri við að flytja
inn alls konar dýr og reyna að
aðlaga þau íslenskum aðstæðum.
Ég skil ekki alveg hvað mælir gegn
því. Á undanförnum áratugum
hafa verið fluttar til landsins
margar nýjar tegundir af plöntum
og trjám. Einnig hafa verið rækt-
uð upp afbrigði sem henta íslensk-
um aðstæðum. Nú er til dæmis
hægt að fá íslensk eplatré. Og ég
veit ekki betur en þetta sé bara hið
besta mál og aðeins til prýði.
AF hverju er ekki hægt að flytja
inn dýr líka? Einu sinni var gerð
tilraun með villt sauðnaut á Snæ-
fellsnesi. Þau drápust víst út af
klaufaskap. Því ekki að reyna
aftur? Og í leiðinni mætti sleppa
nokkrum fjallageitum. Hreindýr
voru flutt hingað á átjándu öld og
pluma sig vel. Það amast enginn
við þeim lengur. Ekki éta þau gras-
ið frá rollunum.
ÉG myndi vilja sjá fullt af nýjum
dýrum boðin velkomin til landsins.
Ég vil sjá íkorna í skógunum sem
spretta upp um allt land. Ég vil
heyra froska kvaka í lækjum. (Úr
því þeir geta lifað í Noregi þá
hljóta þeir að geta lifað hér). Ég vil
sjá kanínur og héra og uglur. Þá
fengju refirnir eitthvað annað að
elta en bara lömb. Mér finnst að
það mætti líka prófa að sleppa
nokkrum dádýrum á Hallorms-
stað. Sakar ekki að prófa? Eða elgi.
Prófa að vera með tvö pör. Ég
myndi líka vilja prófa að sleppa
nokkrum norskum gaupum. Auð-
vitað þyrfti að aðstoða dýrin fyrstu
árin, eftir getu, og sjá til hvernig
þau pluma sig. Það mætti meira að
segja gelda þau svo þau fjölgi sér
ekki.
ÞEGAR á að prófa eitthvað nýtt
heyrast alltaf efasemdarraddirnar
sem segja að það þýði ekki neitt og
gangi aldrei og ef það gangi þá
gangi það illa og benda á dæmi um
það og allt sem ber að óttast. Er
þetta ekki bara hluti af einhverri
úreltri einangrunarstefnu, heim-
óttarlegheitum og þjóðernisremb-
ingi? Er ekki landið að opnast? Er
eitthvað að óttast?
VILLT dýr myndu prýða landið
með tilveru sinni og auka áhuga
ferðamanna á að koma hingað.
Þetta myndi líka auka tækifæri til
skotveiði og færa okkur miklar
tekjur. Þetta væri atvinnuskap-
andi fyrir fólk úti á landi.
ÞAÐ er enginn eyland, ekki einu
sinni Ísland.
Dýralíf