Tíminn - 24.05.1978, Side 15
Miðvikudagur 24. mai 1978
15
Vorkappreiðar Fáks
— veðbanki starfræktur
Kás — A laugardaginn kemur
verða haldnar vorkappreiðar
hestamannafélagsins Fáks að
Víðivöllum. Þegar hafa 100 hestar
verið skráðir til leiks, og hafa
aldrei fleiri skeiðhestar verið
skráðir nokkurn tima i sögu fé-
lagsins. Þar má nefna Fannar
Harðar G. Albertssonar, Vafa,
Erlings Sigurðssonar og hina
þekktu skeiðhesta Þorgeirs i
Gufunesi, og verður hann sér-
staklega heiðraður fyrir góða
þátttöku í gegnum árin.
í 350 metra stökki má telja hin-
ar landsþekktu hlaupahryssur
Loku og Glóu svo og Islands-
Grána, ættaðan úr Rangárvalla-
sýslu.
I 800 metra stökki keppa 18
hestar. Þar má nefna Smára úr
Rangárvallasýslu, Þrótt Ragnars
Tómassonar, Jerimias Baldurs
Oddssonar, Hvell Ragnars
Björgvinssonar að ógleymdum
Þjálfa Sveins K. Sveinssonar, auk
margra annarra.
Veðbanki verður starfræktur á
kappreiðunum, en að þeim lokn-
um verður dregið i happdrætti
Fáks.
Byrjað á Beráttelsen om Sa;m á næstunni:
Kvikmynd um
efni Hrafnkels
Höfundur og leikstjóri koma
hingað í sumar til að vinna að
gerð hennar
sögu
Byrjað verðui- að kvik-
mynda sögu tíins þekkta
sænska skálds, Per Olaf Sund-
mans, BerSttelsen om Sam,
sem byggð er á sögu Hrafn-
kels Freysgoða, isumar. Og af
þvi tilefni munu höfundur og
leikstjóri koma hingað til
lands i sumar til að vinna að
gerð myndarinnar.
Það er þýzka kvikmynda-
fyrirtækið Ziegler i Vestur-
Berlin sem stendur að gerð
myndarinnar en leikstjóri er
Peter Stein, sem er einn
margra upprennandi manna i
þýzkri kvikmyndagerð um
þessar mundir. Enskt tal
verður með myndinni og er
það gert með alþjóðamarkað i
huga. Aætlað er að ljúka við
myndina næsta sumar.
Nokkrar af gjöfum Lionsklúbbsins Týs til Kjarvalshússins á
Seitjarnarnesi.
Þjálfunar- og athugunarstarf-
seminni berast góðar gjafir
Félagar úr Lionsklúbbnum Tý
hafa verið sérstaklega artarlegir
við Kjarvalshúsið á Seltjarnar-
nesi, þar sem rekin er marghátt-
uð þjálfunar- og athugunarstarf-
semi fyrir forskólabörn, sem
þarfnast athugunar vegna frá-
vika i þroska. Sérstaklega hafa
þeir styrkt Leikfangasafnið, sem
lánar valin leikföng og bækur
heim til barna með frávik frá
eðlilegum þroska.
Hafa Lionsmenn i Tý lagt vinnu
i frágang og viðhald á leikvelli og
gefið peningagjafir til kaupa á
þjálfunartækjum og góðum leik-
föngum. Ennfremur hafa þeir
gefið kvikmyndatökuvél og kvik-
myndasýningarvél.
Á sl. ári sýndu þeir félagar enn
stórhug sinn, er þeir afhentu
deildinni kr. 500.000.00 er varið
skyldi til kaupa á kennslu- og
þjálfunartækjum, m.a. sérhæfð
málörvunarverkefni, tæki til
sjúkraþjálfunar, segulband og fl.
Er starfsfólkið við Kjarvalshúsið
að vonum mjög þakklátt fyrir.
Orkubú Vestf jarða:
Stærsti óvissuþátturinn
er verð raforkunnar
Ólafur Þórðarson.
Kás — Það má segja að fram-
kvæmdaáætlunin liggi fyrir, en
hún er sú að auðvelda dreifingu
raforku strax og byggðalinan
kemst á frá Mjólkárvirkjun.
Jafnframt eru i athugun ýmisleg-
ar framkvæmdir varðandi jarð-
varmaveitu, sagði ólafur Þórðar-
son, skólastjóri á Suðureyri, en
hann sat aðalfund Orkubús Vest-
fjarða sem haldinn var fyrir
skömmu og starfrækt hefur verið
frá áramótum. Sagði Ólafur að
ekki hefðu nein stórtiðindi skeð á
fundinum, málin væru að komast
af stað.
Stærsta óvissuþátturinn varð-
andi reksturinn sagði hann vera
verð raforkunnar sem fengist frá
Mjólká hvort hún fengist á heild-
söluverði eða hvort lagt yrði á
lengdargjaid. Hið eina sem
ákveðið væri i þessu sambandi er,
að Rafmagnsveitur rikisins sjá
um uppsetningu linunnar, aðrir
þættir væru ekki komnir á hreint.
Þarna væri um hreint skipulags-
mál að ræða sem heyrði undir
rikisvaldið, þar sem þessi mál
væru yfirleitt ekki komin á fast
plan. En i reynd væri þetta aðal-
atriðið varðandi rekstur Orku-
búsins, hvort gengi eða ekki.
Þá sagði Ólafur, að samþykkt
hefði verið á fundinum, að endur-
skoða reglugerð þá sem gefin
heföi verið út um Orkubúið, en
ekkert samráð hefði verið haft við
þau sveitarfélög sem aðilar eru
að þvi. Var stjórninni faliö að
annast þá endurskoðun, en hún
var öll endurkosin á fundinum.
Aö lokum sagði ólafur, að eftir
væri að ganga frá endanlegu
samkomulagi um eignaraðild,
þar sem ekki hefðu öll sveitarfé-
lögin á svæðinu gerzt stofnaðilar.
Trúlega reyndi á þann þátt máls-
ins á þessu ári. Það væri nauð-
synlegt að sami aöilinn færi með
framkvæmd raforkumála og
jarðvarmaveitu á Vestfjörðum,
þannig að orkan nýttist á sem
hagkvæmastan hátt.
Nýtt verð á humri
Samkomulag hefur nú náöst I
Verðlagsráði um eftirfarandi lág-
marksverð á ferskum og slitnum
humri á humarvertið 1978:
1. fl. óbrotinn humarhali, 25 gr.
og yfir: 1.700 kr. hvert kg.
2. fl. óbrotinn humarhali, 10 gr.
að 25 gr. og brotinn humarhali 10
gr. og yfir: kr. 820 hvert kg.
Verðflokkun þessi byggist á
gæðaflokkun Framleiðslueftirlits
sjávarafurða og er verðið miðað
við að seljandi afhendi humarinn
á flutningstæki við hliö veiðiskips.
Aðalfundur Lögmannafélagsins
Aðalfundur Lögmannafélags
íslands var haldinn fyrir
skömmu. Formaður félagsins,
Guðjón Steingrimsson hrl., flutti
skýrslu stjórnar. Rakti hann störf
stjórnar og nefnda félagsins.
Kom fram hjá Guðjóni, að sem
fyrr hefði veruleg vinna veriö
lögð i að leysa ágreiningsefni
milli lögmanna og umbjóðenda
þeirra, en gat þess jafnframt, að
slikum málum hefði farið fækk-
andi. Þá hefðu stjórn félagsins
borizt allmörg lagafrumvörp til
umsagnar og gerði formaður
einkum grein fyrir frumvarpi um
hlutafélög og öðru um gjald-
þrotaskipti.
Formaður félagsins var endur-
kjörinn Guðjón Steingrimsson, en
aðrir i stjórn eru Hákon Árnason
varaform., Jón E. Ragnarsson
meðstjórnandi, Stefán Pálsson
ritari og Skarphéðinn Þórisson
gjaldkeri.
Stjórn Lögmannafélags tslands, frá vinstri að telja: Jón E. Ragnars-
son, meðstjórnandi, Hákon Árnason varaform. Guðjón Steingrfmsson
formaður, Stefán Pálsson og Skarphéðin Þórisson gjaldk^ri.
Aukinn
útflutn-
ingur
hrossa
Útflutningur. hrossa hjá
Búvörudeild Sambandsins hefur
aukiztnokkuðþaðsem af er þessu
ári samanborið við sama árstima
i fyrra að þvi er kemur fram i
fréttabréfi Sambandsins. Frá ára
mótum til mánaðamóta april máí
hafa verið fluttir út 195 hestar að
verðmæti 67 milljónir króna, en á
sama tima i fyrra voru hins vegar
seldir 139 hestar úr landi að verð-
mæti 30 milljónir króna og er þaö
veruleg aukning bæði hvað te'kur
til fjölda hestanna og verðs.
Eftirspurn eftir islenzkum hest-
um er þvi ótvirætt meiri núna i ár
en oft áður og gætir þess ekki
hvað sizt i Þýzkalandi en einnig á
hinum Norðurlöndunum.
Þá hefur verið unnið talsvertað
þvi á vegum Búvörudeildar að
byggja upp markað fyrir islenzka
hesta i Ameriku og eru góðar
horfur á þvi að þar verði hægt aö
afla traustra viðskiptasambanda
á þessu sviði.