Tíminn - 01.06.1978, Síða 14
14
Fimmtudagur 1. júni 1978
í dag
Fimmtudagur 1. júní 1978
Lögregla og slökkviliö
Reykjavik: Lögreglan
simi 11166, slökk viliöiö og
sjúkrabifreið, simi 11100
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkviliðið og sjúkra-
bifreið simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan
simi 51166, slökkvilið simi
51100, sjúkrabifreið simi 51100.
>-------------------------
Bilanatilkynningar
■-
Vatnsveitubilanir simi 86577.
Sfmabilanir simi 05.
Biianavakt borgarstofnana.
Sími: 27311 svarar alla virka
daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8
árdegis og á helgidögum er
svarað allan sólarhringinn.
Rafmagn: i Reykjavik og
Kópavogi i sima 18230. I
Hafnarfirði i sima 51336.
Hitaveitubilanir: kvörtunum
verður veitt móttaka i sim-
svaraþjónustu borgarstarfs-
manna 27311.
Heilsugæzla
_________________________
Slysavarðstofan: Simi 81200,
eftir skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100,
Hafnarfjörður, simi 51100.
Ilafnarfjörður — Garðabær:
Nætur- og helgidagagæzla:
Upplýsingar á Slökkvistöð-
inni, simi 51100.
Læknar:
Reykjavik — Kópavogur.
Dagvakt: Ki. 08:00-17:00
mánud.-föstudags, ef ekki
næst i heimilislækni, simi
11510.
Kvöld, nætur og helgidaga
varzla apóteka i Reykjavik
vikuna 26. mai til 1. júni er i
Borgar Apóteki og Reykjavik-
ur Apðteki. Það apðtek sem
fy rr er nefnt annast eitt vörzlu
á sunnudögum, helgidögum og
almennum fridögum.
Hafnarbúðir.
Heimsóknartimi kl. 14-17 og
19-20.
Heimsóknartimar á Landa-
kotsspitala: Mánudaga til
föstud. kl. 18.30 til 19.30.
Laugardag og sunnudag kl. 15
tíl 16. Barnadeild alla daga frá
kl. 15 tíl 17.
Kópavogs Apðtek er opið öll
kvöld til kl. 7 nema laugar-
daga er opið kl. 9-12 og
sunnudaga er lokað.
Félagslíf
Kvenféiag Laugarnessókna r
Munið skemmtiferðina að
Gullfossiog Geysi laugardag-
inn 3. júni. Þátttaka tilkynnist
i sima 37058 (Erla) eða 82469
(Anna).
i
Vorfagnaður Nemendasam-
bends Menntaskóla Akur-
eyrar verður að Hótel Sögu
föstudaginn 2. júni og hefst
með borðhaldi kl. 19.30.
Aðgöngumiðar verða seldir að
Hótel Sögu miðvikudaginn 31.
mai og miövikudaginn 1. júni
kl. 17 til 19 báða dagana, fjöl-
mennum.
Eldri borgarar Seltjarnar-
nesi:
Kvenfélagið Seltjörn minnir á
boð félagsins til Grindavikur
næstkomandi laugardag. Vin-
samlega tilkynnið þátttöku
fyrir miðvikudagskvöld til
Þóru i sima 19684, Báru sima
23624 og Ernu sima 13981.
2.-4. júni kl. 20.00
1. Þórsmörk. Gist i
sæluhúsinu. Farnar
gönguferðir um Mörkina.
2. Mýrdalur-Dyrhólaey.Gist i
húsi. Farið verður um
Mýrdalinn-Heiðardalinn-
Dyrhólaey-Reynishverfi og
viðar.
Nánari upplýsingar og
farmiðasala á skrifstofunni.
Feröafélag lslands.
Miðvikudagur 31.5. kl. 20.00.
Esjuhlíðar (Steinaleit).
Róleg kvöldganga.
Verð kr. 1000 gr. v/bilinn.
Farið frá Umferðamiðstöðinni
að austanverðu.
1.-4. júni.
Vestmannaeyjar. Eyjarnar
skoðaðar á landi og af sjó.
Farið með Herjólfi. Farar-
stjóri: Þórunn Þórðardóttir,
Nánari upplýsingar á skrif-
stofunni.
Ferðafélag tslands.
2772
Lóðrétt
Lárétt
1) Tala 6) Hlemmur 7)
Lita 9) Keyrði 10) Matháki 11)
Tónn 12) Greinir 13) Togaði
15) Heftina.
Lóðrétt
1) Slög 2) Eins 3) Amen 4) Röð
5) Alsberra 8) Svif 9) Strákur
13) 501 14) Bókstafi
Ráðning á gátu No. 2771
Lárétt
1) Handsal 6) Áar 7) FG 9) Ós
10) Tafsamt 11) Of 12) Ar 13)
Mal 15) Ljórinn
1) Hoftoll 2) Ná 3) Danspar 4)
SR 5) Listræn 8) Gaf 9) Óma
13) Mó 14) LI
ZML~WZ
u mp
krossgáta dagsins
Fimmtud. 1/6 kl. 20
Strompahellar, stórkostleg
náttúrundur i nágr. Reykja-
vikur. Hafið góð ljós með.
Fararstjóri Einar Þ.
Guðjohnsen. Verð 1500 kr. fritt
f. börn m. fullorðnum. Farið
frá BSÍ, bensinsölu.
Föstud. 2/6 kl. 20
Þórsmörk, tjaldað i skjól-
góðum skógi i Stóraenda.
Vinnuferð að hluta. Fararstj.
Jón I Bjarnason. Farseðlar á ■
skrifst. Lækjarg. 6a simi
14606.
Frá Arnesingafélaginu i
ReykjavíkFarið verður i hina
árlegu gróðursetningarferð að
Ashildarmýri laugardaginn 3.
júni n.k. Lagt verður af stað
frá Búnaðarbankahúsinu við
Hlemm kl. 13.00. Stjórnin.
>—1--------------------
Tilkynningar
•
Dregið hefur verið i
happdrætti Hestamanna-
félagsins Gusts i Kópavogi.
Eftirtalin númer komu upp:
4421 hestur. 3418 utanlands-
ferð. Grafikmynd, 3667. 4463,
3413, 3099, 2571 og 698 beisli.
Frá Mæðrastyrksnefnd.
Sumardvöl að Flúðum fyrir
efnalitlar mæður verður
mánudaginn 12. júni. Hafið
samband i sima 14349 þriðju-
daga og föstudaga milli kl. 2
og 4.
/•---------------------N
Siglingar
_______________________
JOKULFELL er i írhus. DIS-
ARFELL losar á Norður-
landshöfnum. HELGAFELL
losará Akureyri. MÆLIFELL
fer væntanlega i dag frá Siglu-
firði til Rauma og Leningrad.
SKAFTAFELL fór i .gær frá
Þingeyri til Gloucester og
Halifax. HVASSAFELL fer i
dag frá Reykjavik til Horna-
fjarðar. STAPAFELL fer i
dag frá Reykjavik til Norður-
landshafna. LITLAFELL er i
Hirtshals.
Afmæli
1 dag , 1. júni, verður Nellý
Pétursdóttir húsfreyja á
Miðhúsum i Alftaneshreppi, 75
ára. Hún tekur á móti gestum i
Rjúpufelli 26.
Árnað heilla
Nýlega voru gefin saman I
hjónaband I Selfosskirkju af
séra Sigurði Sigurðarsyni
ungfrú Anna S. Arnadóttir og
hr. Kristján Einarsson. Heim-
ili þeirra er að Vatnsholti,
Villingaholtshreppi. (Ljós-
myndastofa Suðurlands, Sel-
fossi).
virða vandlega fyrir sér, það sem þar var til sýnis. En hún hélt leiö-
ar sinnar án þess að vita til þess, að hún hefði séð neitt.
Hvað hugsaði hún um? Þrælatök götulffsins og llfsins I fátækra-
hverfunum — aö hún gat valiö á milli þess að láta saurgast af mönn-
um eða skit og skorkvikindum. Hvað sá hún? Gömlu konurnar I fá-
tækrahverfunum — þessar óhamingjusömu manneskjur, sem búnar
voru að fórna heilsu sinni og fegurö — skriðandi i göturennunum,
dansandi i kránum, sofandi á beru gólfinu i ógeöslegum skúmaskot-
um, þar sem lúsin og óværan ætlaði þær lifandi að éta og mýsnar
hlupu yfir þær.
Henni datt ekki i hug að véfengja dóm Brents. Brent hlaut að hafa
komizt að raun um, að hún var gersneydd öllum leiklistarhæfileik-
um — þvi aö hefði hann ekki boöið henni starf við eitthvert leikhús,
ef hann hefði fundið neista hjá henni? Og ef hún var gersneydd öll-
um hæfileikum I þá átt — ja, hvað gat hún þá gert? Hvað gat hún
gert? Þannig hraktist hugur hennar frá einu til annars jafn stefnu-
laus og hún sjálf. Og aldrei fyrr hafði hin sorgbliða angurværð
augna hennar verið jafn átakanleg og nú.
En jafnvel þótt henni væri það ekki Ijóst sjálfri, var mjög
þýðingarmikil! munur á þessu örvæntingarkasti og öðrum andleg-
um áföllum, sem fylgt höfðu ósigrum hennar eða stuðlað að þeim.
Áður hafði lamandi dómur örlaganna bannað henni allar bjargir. t
þetta skipti var kjarkur hennar óbugaður, þrek ólamaö. Hún var
ekki lengur barn. Hún var óhrædd og einráöin i að brjóta sér ein-
hverja braut — og hún skyidi ekki hafna aftur I eymd og volæði
skuggahverfanna.
Á öllu reiki sinu hafði hún — ekki vitandi vits, heldur ósjálfrétt —
forðazt hin gömlu heimkynni sin. Það var alveg sama, þótt hún væri
hvorki I fylgd með Spenser né Sperry En einn daginn varð henni
reikað venju fremur langt vestur á bóginn. Hún nam staðar viö ein-
hvern bókabúðarglugga, sem á leið hennar varð, og starði á kápu-
siðurnar á bókunum, sem þar voru á boðstólum. En er hún stóð við
einn gluggann, varð hún þess vör, að tveir menn komu, sinn úr
hvorri áttinni, og staðnæmdust hjá henni. Hún ætlaði að halda leiöar
sinnar. En annar maðurinn stöðvaði hana. Hún leit framan i inn i
hlakkandi, illileg augu. Þetta var griðarstór maður, með mikiö
svart yfirskegg og varir eins og hnefaleikamaður. Bros hans
breikkaöi enn.
— Mér sýndist þetta vera þú, sagði hann. — Gaman að sjá þig aft-
ur!
Hún þekkti nú, aö þetta var lögregluþjónn, sem áöur fyrr hafði
verið einn af vikapiltum Fridda Palmers. Hún hörfaði aftur á bak,
og hinn maðurinn — hún vissi undir eins, aö hann myndi lika vera
lögregluþjónn — var nú kominn viö hliðina á þeim svartskeggjaða.
Báðir mennirnir ráku upp hlátur.
— Við höfum lengi verið að svipast eftir þér, sagði hinn. — Viö
þekkjum kunningja þinn, sem er meira en ólmur að hitta þig.
Súsanna leit á þá til skiptis. Hún var föl en róleg I fasi, þótt hjarta
hennar berðist ótt og titt. Löng og bitur reynsla hafði kennt henni að
hræðast lögregluþjóna. Hún sneri við, án þess að mæla orð frá vör-
um, og lagöi af stað austur eftir.
— Ja, hvað eigum viö aö gera, Pétur? sagði Svartskeggur viö fé-
laga sinn. — Ég hélt, að hún væri allt of elskuleg til þess að haga sér
svona við gamlan kunningja. Viö verðum að taka hana með okkur?
Það er sjálfsagt, sagði Pétur. — Þá getum við verið vissir um, að
hún kemst I hendurnar á F.P.
Svartskeggur hló og þreif I handlegginn á henni. — Þú kemur meö
okkur af fúsum vilja, sagði hann. — Þú sýnir ekki neinn mótþróa.
Þú hefur alltaf verið siðprúð og kurteis stúlka.
Hún kippti aö sér hendinni. — Ég er gift kona — og bý hjá mannin-
um minum.
Svartskeggur rak upp hlátur. — Heyrirðu það, Pétur. Það veröa
þokkalegar fréttir, sem maðurinn þinn fær. Komdu nú! Skýrslur
lögreglunnar vitna gegn þér. Allir munu skilja, aö þú hefur lent aft-
ur út á gatnla refilstigu.
— Ég er á leiö heim til mannsins mins, sagöi hún rólega. — Þið
gerið svo vel aö láta mig I friði.
Pétur var á báðum áttum, en Svartskeggur var ófrýnilegur á svip
og einbeittur. — Ef þú þykist vera heiðarleg kona, hers vegna
varstu þá að reyna að tæla okkur? Komdu nú — eða viltu, að við
Pétur tökum þig með valdi?
Sjáðu, þetta er MINN bolli Oe
Það má enginn drekka úr honum
nema Snati og kisi.
DENNI
DÆMALAUSI