Tíminn - 01.06.1978, Síða 15
Fimmtudagur 1. júni 1978
15
Orlofshúsin á Vestfjöðum:
Tilkynning A.S.V. vegna
blaðaskrifa
Fyrir nokkru birtist hér i
blaöinu grein Kristins Snæ-
lands um málefni orlofshúsa
Alþýðusambands Vest-
fjaröa. t greininni var m.a.
vikiö aö tilkynningu sem
A.S.V. sendi frá sér vegna
skrifa Kristins. Þessi til-
kynning hefur borizt blað-
inu, og birtist hún hér til
skýringar á ummælum
Kristins i sföustu grein hans
um málið.
Á þingi A.S.V. i növember 1977
uröu miklar umræöur eins og
vænta mátti um byggingu orlofs-
húsa sambandsins i Vatnsfiröi.
Þar var endurkjörin Orlofsnefnd-
in sú sem áður hafi starfað, með
þeim breytingum þó að Pétur Sig-
urðsson var gerður að aðalmanni
i nefndinni i stað Karvels Pálma-
sonar sem aftur tók sæti hans sem
varamanns.
Vegna greinar Kristins Snæ-
lands i Timanum 15. apr. sl. send-
um við frá okkur þessa tilkynn-
ingu þvi greinin er full af mis-
skilningi, ágizkunum og algjörri
vanþekkingu á stofnum nefndar-
innar, eða skrifuð i þeim tilgangi
aðná sér niðri á einum eða öðrum
af þeim mönnum, sem starfað
hafa i orlofsnefndinni og þá lik-
legast vegna mála sem eru
verkalýðsfélögunum á Vestfjörö-
um óviðkomandi.
Stöðvun á byggingu orlofshúsa
okkar i Vatnsfirði á Baröaströnd
á sl. hausti og þau leiðinda mála-
ferli sem þvi fylgdi, voru or-
lofsnefndinni sem öðrum meðlim-
um verkalýðsfélaganna mikil
vonbrigði. Framkvæmdir þó
núna hafnar á ný og allar vonir aö
þeim ljúki á komandi hausti.
Orlofsnefnd A.S.V. sem séð
hefur um framkvæmdir allar,
hefur nú siðustu vikur heimsótt
verkalýðsfélögin, sem þátt taka i
framkvæmdunum i Vatnsfirði,
þar hefur staða þessara mála
verið skýrð fyrir stjórnum fé-
laganna og reikningar lagðir
fram. A fundum þessum hafa
gerðir Orlofsnefndarinnar verið
staöfestar og henni falið að ljúka
verkinu. Þarna voru réttum aðil-
um gefnar þær upplysingar sem
máli skipta og umræður um mál-
in farið þar fram sem þær áttu
heima, og teljum við hæpiö, að
umræður i pólitiskum dagblöðum
sé heppilegur vettvangur I máli
þessu.
í grein Kristins Snælands i
Tlmanum eru settar fram ýmsar
fullyrðingar um slæm vinnu-
brögð, fjármálaóreiðu, ávisana-
misferli og annað verra i störfum
Orlofsnefndarinnar og sér I lagi
formanns hennar Hendriks Taus-
ens. Við viljum hér á eftir I fáein-
um linum leiðrétta helztu firrurn-
ar sem fram koma I greininni.
1. Allir samningar við verktaka
fyrir hönd Orlofsnefndar hafa
veriö gerðir i fullu samráði
allra nefndarmanna, þó for-
maður nefndarinnar hafi und-
irritað þá einn fyrir hennar
hönd.
2. Formaður Orlofsnefndarinnar
Hendrik Tausen var ráðinn til
starfa sem framkvæmdastjóri I
fjóra mánuði s.l. sumar. Fyrir
það starf sem var erilsamt og
vanþakklátt var honum greidd-
ar kr. 752.889.00 og er þar inni-
falin öll eftir- og helgidaga-
vinna.
3. Allur akstur orlofsnefndar-
manna á eigin bifreiðum og I
þágu nefndarinnar er greiddur
skv. reglum rikisstarfsmanna
og var á sl. sumri kr. 37.00 á ek-
inn kilómeter.
4. Við byggingu 12 orlofshúsa á
vegum A.S.V. i Vatnsfirði, sem
nú er unnið að og hófst með
samningagerð haustið 1976,
hefur Pétur Sigurðsson á skrif-
stofu sambandsins á Isafiröi
séð um öll fjármál fram-
kvæmdanna og hann einn haft
„prókúru” fyrir nefndina.
Jafnframt hefur allt bókhald
annazt Bókhaldsskrifstofa G.
Kjartanssonar Isafiröi. Þó
fjárhagur framkvæmdanna
hafi ekki alltaf verið rúmur,
hafa aldrei verið gefnar út inni-
stæðulausar ávisanir á reikn-
inga nefndarinnar. Vonandi
gerir Kristinn Snæland sér ljóst
hvað alvarleg aðdróttun hans i
þessu efni er.
5. Viðskipti nefndarinnar við
Hótel Flókalund hafa verið
skýrð fyrir stjórnum verka-
lýðsfélaganna, sem og annað
sem viðkemur framkvæmdun-
um öllum fram til þessa dags.
Ekkier nokkurleið að eltast við
allar fullyrðingar Kristins Snæ-
lands um ráðleysi og getuleysi
Orlofsnefndar i störfum henn-
ar, séu þær á rökum reistar eru
allir nefndarmenn samsekir og
samábyrgir. Þar hlíta nefndar-
menn dómi sinna umbjóðenda i
verkalýðsfélögunum en ekki
annarra.
6. Við viljum að endingu taka
fram að orlofsnefndin eöa ein-
stakir menn I henni,hljóta að
áskilja sér allan rétt til þess aö
láta Kristin Snæland standa
við áburð sinn um saknæmar
aögerðir nefndarinnar eða ein-
stakra nefndarmanna á þeim
vettvangi sem slik mál eiga
heima.
Að endingu vilja undirritaöir
orlofsnefndarmenn taka fram að
samstarf i nefndinni hefur verið
eins og bezt varð á kosið þrátt
fyrir fjarlægð nefndarmanna
hvaö búsetu varðar en nefndar-
menn eru frá Bolungarvik, Isa- |
firði, Fiateyri og Patreksfiröi. ,
Jafnframt viljum við hvetja fólk I i
verkalýðsfélögunum að leita sér ,
upplýsinga um þessi mál hjá
stjó’rn sins félags ef þvi leikur for ;
vitni á að vita eitthvað sem þeim (
er hulið i þessu mikla hags-
munamáli okkar allra i verka-
lýðsfélögunum.
Gert 22. april 1978
1 Orlofsnefnd Alþýðu-
sambands Vestfjaröa
Pétur Sigurðsson (sign.)
Hjörleifur Guðmundsson (sign).
Hörður Snorrason varan.maður
(sign).
Ársrit Sögufélags ísfirðinga
Nýlega er kominn út 21. ár-
gangur ársrit Sögufélags Isfirð-
inga. Af efni þess má ma ,a nefna:
Dr. Kristján Eldjárn skrifar
um listaverk séra Hjalta Þor-
steinssonar i Vatnsfjarðarkirkju.
Lýður B. Björnson birtir hér
framhald af ritgerð sinni um salt-
vinnslu á Vestfjörðum og salt-
verkið i Reykjanesi við Djúp.
Bárður Jakobsson á grein um
landnám i Bolungarvik og eitt og
annað af þeim slóðum. Jens
Hólmgeirsson skrifar um osta-
gerðarmanninn Jón A. Guð-
mundsson frá Þorfinnsstööum og
Ostagerðarfélag Onfirðinga. Jó-
hann Gunnar Ölafsson bætir við
fyrrí frásögn sina um kirkjustóla
úr Hraunskirkju i Keldudal.
Gunnar Guðmundsson frá Hofi
skrifar um Hof i Dýrafiröi og
fornar grafir i Dýrafirði og Jó-
Doktors-
vörn
Laugardaginn 3. júni n.k. fer
fram doktorsvörn við læknadeild
Háskóla íslands. Mun Olafur
Jensson læknir þá verja ritgerð
sina „Studiés on Four Hereditary
Blood Disorders in lceland” fyrir
doktorsnafnbót i læknisfræði.
Andmælendur af hálfu lækna-
deildar verða prófessor dr. med.
Kare Berg frá Háskólanum i Osló
og prófessor dr. med. John Ed-
wards frá Háskólanum i
Birmingham.
Doktorsvörnin fer fram i
hátfðarsal háskólans og hefst kl. 2
e.h. öllum er heimill aðgangur.
hannes Daviösson ritar um Vill-
ingadalshjónin á Ingjaldssandi og
um kornmyllur. Tómas Helgason
á jiarna grein um ræktunarstörf i
Hnffsdal 1883-84. Myndir eru I rit-
inu af listaverkum sér Hjalta i
Vatnsfirði og einnig af hvalveiði-
stöðvunum i Framnesi og á Sól-
bakka. Margt annað efni og fleiri
myndir eru i þessu hefti ársrits-
ins.
Fyrsti árgangur þessa rits hef-
ur lengi verið ófáanlegur, en hef-
ur nú verið ljósprentaður i litlu
upplagi. Nauðsynlegt er þvi fyrir
þá sem vantar þetta hefti að
panta það sem fyrst frá Sögu-
félagi Isfirðinga.
oiiin
Þjónusta
Sendiöokkur (I ábyrgð) þá skartgripi sem þér
þurfiö að láta gera við, ásamt smálýsingu á
því sem gera þarf, heimilisfangi og síma-
númeri. Aðaflokinni viðgerð, sem verður inn-
an 5 daga f rá sendingu, sendum við ykkur við-
gerðina í póstkröfu. Allar viðgerðir eru verð-
lagðar eftir viðgerðaskrá Félags isl. gull-
smiða.
Stækkum og minnkum hringi (sendum mál-
spjöld), gerum við armbönd, nælur, hálsmen,
þræðum perlufestar.
Gyllum. Hreinsum.
Sendum einnig i póstkröfu allar gerðir skart-
gripa.
Fljót, góð og örugg þjónusta. Hringið og leitið
upplýsinga.
GULL HÖLLIN
Verzlunarhöllin — Laugaveg 26
101 Reykjavik
Símar (91) 1-50-07 & 1-77-42
8REIÐHOLT
KÓPAVOGUR
Látið kunnáttumennina smyrja bílinn á smur-
stödinni ykkar
SMURSTÖÐ ESSO
Stórahjalla 2, Kópavogi
Snjólfur Fanndal
............ • - " ' ^
SÍMI
43430
Selfoss og nágrenni \
múrþéttingar, sprunguviðgerðir ■
Margra ára reynsla
Kjartan Halldórsson
Sími 3863
ATLAS &
YOKOHAMA
hjólbarðar
Hagstætt verð
Véladeild
Sambandsins
BORGARTÚNI 29
SÍMAR 16740 OG 38900
—
Móöir min og tengdamóðir
Guðrún Lýðsdóttir,
Tjörn, Biskupstungum
verður jarðsungin laugardaginn 3. júni. Athöfnin fer fram
iSkálholti kl. 2e.h. Jarðsett verður aö Torfastööum. Blóm
vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hinnar
látnu er bent á liknarstofnanir.
Erna Jensdóttir,