Tíminn - 13.07.1978, Síða 7
Fimmtudagur 13. júll 1978
7
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrímur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Slmi
86300. ,
Kvöldsímar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verð i iausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á
mánuði. . ...
Blaðaprent h.f.
Hræðsla sigurvegaranna
Komið er nokkuð á þriðju viku siðan rikisstjórn-
in sagði af sér og stjórnarmyndunarviðræður
hófust, en litið bólar þó enn á nýrri rikisstjórn. Það
skortir þó ekki á, að miklar viðræður hafa farið
fram, bæði formlegar og óformlegar. Þrátt fyrir
þær eru menn þó ekki miklu nær um það, sem
framundan er.
Það, sem athyglisverðast hefur komið fram við
þessar viðræður, er eins konar hræðsla sigurveg-
aranna við sigrana. Bæði Alþýðubandalagið og
Alþýðuflokkurinn hlutu meira fylgi en foringjar
þessara flokka áttu von á, einkum þó foringjar
Alþýðuflokksins. Benedikt Gröndal játaði það
opinberlega, að hann hefði alls ekki átt von á slikri
fylgisaukningu flokksins og raun varð á, og mun
engan undra það. Það er skiljanlegt metnaðarmál
foringja beggja flokkanna, að þessir sigrar þeirra
verði meira en stundarsigrar og þeim takist þvi að
halda a.m.k. þvi fylgi, sem þeir hlutu nú.Það er hér
sem ótti þeirra eða hræðsla kemur til sögunnar.
Foringjar beggja óttast, að þeir hafi unnið svo
mikla sigra með óeðlilegum hætti, að þeir hljóti að
tapa i næstu kosningum, nema haldið sé alveg
sérstaklega vel á spilunum. Þvi hefur hugsun
þeirra ekki snúizt fyrst og fremst um það, sem
þarf að gera vegna hagsmuna þjóðarinnar og
atvinnuöryggis almennings, heldur hitt hvaða
stjórnarsamstarf sé vænlegast til að koma i veg
fyrir fylgistap þeirra i næstu kosningum. Áætlanir
þeirra og ráðagerðir hafa fyrst og fremst miðast
við þetta, en efnahagsmál og önnur þjóðmál lent á
hakanum.
Eðlilegasta framhald kosningaúrslitanna er
það, að sigurvegararnir tveir taki höndum saman
og reyni að standa við kosningaloforðin.
Framsóknarflokkurinn hefur heitið þeim hlutleysi
sinu til þess. Báða sigurvegarana virðist skorta
kjark til að mynda stjórn saman. Þeir þykjast sjá
fram á, að þeim muni takast illa að efna kosninga-
loforðin og ósigur biði þeirra þvi i næstu kosning-
um.
Alþýðubandalagið teflir nú þannig, að það vilji
helzt vinstri stjórn. Ýmsir leiðtogar
Alþýðuflokksins óttast, að Sjálfstæðisflokkurinn
fengi þá aðstöðu i stjórnarandstöðu til að ná aftur
þvi fylgi, sem hann missti nú til Alþýðuflokksins.
Þeir eru þvi ófúsir til slikrar stjórnarþátttöku.
Alþýðuflokkurinn kýs heldur svokallaða nýsköp-
unarstjórn, en Alþýðubandalagið óttast hana, þvi
að það komi þá til með að missa fylgi til
Framsóknarflokksins og Samtakanna, sem yrðu
þá utan stjórnar. Þannig er það ótti sigurvegar-
anna á vixl, sem stendur i vegi vinstri stjórnar og
nýsköpunarstjórnar.
Ef litið er á málefnalegar ástæður einar, væri
samstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins
einna eðlilegust, þegar minnihlutastjórn sigurveg-
aranna sleppir, þvi að skoðanalega ber Sjálf-
stæðisflokknum og Alþýðuflokknum litið á milli.
Þóttforustumenn Alþýðuflokksins vilji af skoðana-
íegum ástæðum helzt slika stjórn, eru þeir ragir
við þátttöku i henni. Þeir óttast, að Alþýðubanda-
lagið og Framsóknarflokkurinn reyti þá fylgi af
Alþýðuflokknum.
Þannig eru það raunverulega hinir miklu sigrar
Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins, sem
standa nú mest i vegi stjómarmyndunar, þótt
furðulegt sé. Báðir flokkarnir óttast, að þeim hald-
ist illa á sigrinum og þora þvi i hvoruga löppina að
stiga vegna ótta við hrakfarir i næstu kosningum.
Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Beinast réttarhöld í
Moskvu gegn Carter?
Réttarhöld stöðva ekki mannréttindabaráttu
Kona Shcharansky, Avital, kom til Parlsar á sunnudaginn og hyggst afla stuðnings viö mann sinn
ÞAÐ hefur aö sjálfsögöu ekki
fariö fram hjá fréttaskýrend-
um, aö réttarhöldin gegn
andófsmönnunum tveim,
Anatoly Shcharansky og
Alexander Ginzburg, skuli
hafin um llkt leyti og utan-
rikisráöherrar Sovétrikjanna
og Bandarikjanna hittast I
Genf til aö halda áfram
viöræöum um takmörkun
kjarnorkuvígbúnaöar. Margir
vestrænir fréttaskýrendur
telja þetta ekki neina tilviljun,
heldur hafi rikisstjórn Sovét-
rikjanna látiö þetta tvennt
haldast i hendur af ásettu
ráöi. Einkum gildi þetta þó um
réttarhöldin gegn
Shcharansky, þvi aö hann er
ekki aöeins ákæröur fyrir
áróöur gegn Sovetrikjunum,
heldur einnig fyrir njósnir i
þágu Bandarikjanna, enda
þótt Carter forseti hafi lýst
yfir þvi, aö sá áburöur sé meö
öllu rangur. Þess vegna hafa
sumir fréttaskýrendur komizt
svo aö oröi, aö rétttarhöldun-
um gegn Shcharansky sé
alveg eins mikiö beint gegn
Carter og Shcharansky.
Ef rússneskir dómstólar
komast aö þeirri niöurstööu,
aö Shcharansky sé sekur um
njósnir, má búast viö því aö
hann fái þungan dóm.
Ginzburg er ekki sakaöur um
njósnir, heldur aðeins fyrir
áróöur gegn Sovétrikjunum,
eins og þaö er oröaö. Hann
mun þvi sennilega sleppa meö
léttari dóm en Shcharansky,
nema sá siöarnefndi veröi
sýknaður af njósnaákærunni.
HIN mikla og eölilega
mótmælabylgja, sem risiö
hefur vestantjalds vegna
réttarhaldanna gegn þeim
Shcharansky og Ginzburg,
virðistekki hafa minnstuáhrif
á sovézku valdhafana. Þeir
viröast láta þaö einu gilda,
þótt slökunarstefnunni sé
þannig stefnt i hætiu. Frétta-
ritari The Christian Science
Monitor, David K. Willis, segir
aö draga megi af þessu þá
ályktun, aö rússnesku vald-
hafarnir taki eftirfarandi at-
riöi fram yfir slökunarstefn-
una:
í fyrsta lagi veröi þaö gert
ljóst þegnum Sovétrikjanna —
og raunar þegnum annarra
austantjaldslanda — , að
pólitiskir andófsmenn veröi
meðhöndlaðir sem svikarar,
er öryggi Sovétrikjanna- stafi
hætta af.
I ööru lagi veröi Bandaríkj-
unum og öðrum vestrænum
rikjum stefnt fyrir eins konar
rétt til aö sýna, aö þau noti
andófsmenn til aö vinna gegn
Sovétrikjunum.
tþriðja lagi að sýna i verki,
svo aö ekki veröi um villzt, aö
Sovétstjórnin láti gagnrýni ut-
an frá ekki hafa minnstu áhrif
Ginzburg og Shcharansky
á, hvernig hún stjórnar
innanlands.
t þeim tilgangi aö gera þetta
ljóst séu réttarhöldin gegn
Shcharansky sett á sviö og
virtist ætlunin aö gera þau aö
einhverjum sögulegustu
réttarhöldum i Sovétrlkjunum
um langt árabil. Shcharansky
var tekinnfastur 15. marz 1977
og hefur veriö I haldi siöan.
Hann var strax sakaöur um aö
hafa látiö starfsmönnum
bandarisku leyniþjónustunnar
I té visindaleg og hernaöarleg
leyndarmál, enþví hefur veriö
mótmælt af bandarískum
stjörnvöldum. A blaöamanna-
fundi, sem Carter hélt I júni
1977, kvað hann sig fullvissan
um, að Shcharansky hefði ekki
haft nein skipti viö bandarisku
leyniþjónustuna. Vegna þess-
arar yfirlýsingar Carters,
hafa sumir fréttaskýrendur
komizt svo að oröi, aö réttar-
höldin gegn Shcharansky séu
einnig réttarhöld gegn Carter.
Ginzburg hefur ekki verið
ásakaöur fyrir njósnir. Auk
svokallaðs áróöurs gegn
Sovétrikjunum, er honum gef-
iö aö sök, aö hann hafi tekið
móti fé frá Solzhenitsyn og
ráðstafað þvi til styrktar
andófsmönnum. Báðir eru
Shcharansky og Ginzburg
Gyöingar og hafa stutt
málstaö Gyöinga, sem hafa
viljað fara frá Sovétrikjunum
til Israel, en ekki fengiö leyfi
til þess. Sjálfum var
Shcharansky neitaö um slikt
leyfi 1973. A þessu ári hafa
fleiri Gyöingar fengiö aö flytj-
ast frá Sovétrikjunum en um
talsvert skeiö áöur og hefur
þaö þótt merki um, aö Sovét-
menn vildu draga úr spenn-
unni. Nú er óttazt, að dregið
verði úr leyfum Gyöinga til
brottflutnings.
VEGNA réttarhaldanna er
þess sem gerist á fundi þeirra
Vance og Grómiko, beöiö meö
meiri eftirvæntineu en ella.
Um skeiö létu Carter og þó
einkum Brzezinski, ráðunaut-
ur hans, i þaö skina, aö þaö
gæti haft áhrif á afvopnunar-
viöræöurnar, ef Sovétmenn
héldu áfram aö beita andófs-
menn höröu. Þvi var strax
mótmælt af ýmsum
bandariskum stjórnarand-
stæðingum,m.a. Kissinger, aö
afvopnunarmálum og
mannréttindamálum yröi
blandaö saman. Vance utan-
rikisráöherra virtist sömu
skoðunar og Carter viröist nú
þaö einnig. Hann gerir nú þaö
tvennt i einu, aö senda Vance
til viöræöna viö Gromiko, en
halda jafnframtuppi gagnrýni
á réttarhöldin gegn andófs-
mönnunum.
Sumir fréttaskýrendur
halda þvi fram, aö Sovétmenn
efni til umræddra réttarhalda
meö mikum auglýsingasvip tíl
aðsýna, aö mannréttindasókn
Carters sé misheppnuö og hafi
engan árangur boriö. Slik
gagnrýni hefur fengiö aukinn
byr vegna ræöu, sem Kissing-
er hélt nýlega i Argentinu, en
þar gagnrýndi hann starfsað-
feröir Carters á sviöi
mannréttindamála. Betra
væri aö tala minna, en vinna
að þessum málum meö hægö-
inni, eins og hann og Ford
heföu gert. Vitanlega veröa
starfshættir i þessum efnum
alltaf umdeildir. Hitt er
ótvirætt, aö Carter hefur meö
mannréttindabaráttu sinni
beint aukinni athygli aö þess-
um málum og tvimælalaust
gert gagn á þann hátt. En
staöa Bandarikjanna er erfiö
vegna þess, aö margir
bandamenn þeirra eru sekir i
þessu efni, og Bandarikin
verðaaðuna þvi. En þaö bætir
ekki málstað Sovétmanna.
Enginréttarhöldmunu megna
aö draga úr mannréttinda-
baráttunni, heldur munu þau
miklu frekar veröa til aö efla
hana.
Þ.Þ.