Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 68
1. september 2006 FÖSTUDAGUR36
menning@frettabladid.is
! Kl. 18.00Sýning á verkum Steinunnar Mart-
einsdóttur verður opnuð í Listasafni
Reykjanesbæjar. Steinunn sýnir
bæði keramikverk og málverk en
tékknesk strengjasveit leikur við
opnun. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 13.00-17.30 og stendur til 15.
október.
> Ekki missa af...
listasýningunni „Guðs útvalda
þjóð“ sem opnar í Kling &
bang á morgun. Hópur ólíkra
listamanna með ólíkar skoðanir
kemur saman og vinnur frjálst út
frá titli sýningarinnar.
opnu húsi í álverinu í Straums-
vík á sunnudaginn. Leiðsagnir
og lúðrasveit, myndlist, leiklist
og sönglist fyrir alla fjölskylduna.
sýningunni Prójekt Patterson
sem opnar í galleríinu Suð-
suðvestur við Hafnargötu 22
og í gömlu sundhöll Keflavíkur
við Framnesveg kl. 17 í dag.
Fjórtán myndlistarmenn og
fimm hljómsveitir taka þátt í
sýningunni.
Nýtt íslenskt leikrit, Afgangar
eftir Agnar Jón Egilsson, verð-
ur frumsýnt kl. 21 í Austurbæ
í kvöld. Verkið fjallar um
samskipti manns og konu
sem standa á þrítugu og fella
hugi saman og gerist verkið
nóttina sem þau kynnast. Í
fréttatilkynningu frá Ísmediu,
framleiðanda verksins, kemur
fram að saga þeirra sé í senn
ljúfsár og beitt en um leið
kunnugleg svo að allir þeir
sem einhvern tíma hafa
staðið í ástarsambandi ættu
að kannast við tilfinningarnar
í verkinu. Það sé síðan undir
áhorfandanum komið að
ákveða hvort senur úr hjóna-
lífi þeirra eru framtíðarsýn,
óskhyggja eða hvort þetta
sé saga hjóna sem horfa til
baka á líf sitt saman.
Verkið er sýnt í nýju sýningar-
rými á efri hæð Austurbæjar
þar sem áður var bíósalur en
hann hefur nú verið gerður
upp og tekur 80-100 manns
í sæti.
Leikendur eru Elma Lísa
Gunnarsdóttir og Stefán
Hallur Stefánsson en tónlist
gerir Hallur Ingólfsson,
lýsingu annast Halldór Örn
Óskarsson en um búninga og
leikmynd sjá Arnheiður Vala
Magnúsdóttir og Ólafur Stef-
ánsson. Höfundurinn, Agnar
Jón Egilsson, er jafnframt
leikstjóri.
Með fortíðina á bakinu
LEIKRITIÐ AFGANGAR Í AUSTURBÆ Ljúfsár og
beitt saga um kunnuglegar tilfinningar.
Íslenski dansflokkurinn sýnir fjög-
ur frumsamin verk á komandi vetri,
tvö eftir íslenska danshöfunda og
tvö eftir þekkta erlenda höfunda.
Starfsárið hefst með sýningu á nýju
verki Ólafar Ingólfsdóttur sem
gerir verk í félagi við tvo áhuga-
verða tónlistarmenn; tónskáldið
Áskel Másson og margverðlaunaða
norska tónlistarkonu að nafni Maja
Ratkje en hún mun flytja tónlistina
á sviðinu með sinni ótrúlegu rödd.
Í október verður einnig frum-
sýnt verkið Flest um fátt eftir Aðal-
heiði Halldórsdóttur og Valgerði
Rúnarsdóttur en verk þeirra er
framhald á vinnu sem þær unnu í
Danssmiðju Íd síðasta vor. Nóvem-
ber verður helgaður fjölskyldunni
en laugardaga þess mánaðar stend-
ur flokkurinn fyrir fjölskyldusýn-
ingum með úrvali af hinu besta úr
vinsælum verkum. Börn yngri en
12 ára fá ókeypis inn á sýningarnar
en þetta framtak mæltist vel fyrir
þegar efnt var til fjölskylduhátíðar
síðasta vetur.
Danshöfundarnir Roberto Olivan
og André Gringras semja tvö verk
fyrir flokkinn sem frumsýnd verða í
febrúar en þeir eru báðir rísandi
stjörnur í evrópsku danslífi og hafa
unnið með mörgum af þekktustu
sviðslistamönnum heims.
Sem fyrr verður einnig boðið
upp á námskeið fyrir unga stráka
sem vilja finna dansarann í sér og
Danssmiðja Íd fyrir unga danshöf-
unda verður haldin þriðja árið í röð
að ógleymdri dansleikhúskeppni
Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska
dansflokksins, 25 tímar, sem fer
fram í júní.
Næstkomandi sunnudag verður
opið hús í Borgarleikhúsinu þar
sem innanbúðarfólk bæði úr dans-
flokknum og Leikfélagi Reykjavík-
ur kynnir dagskrá vetrarins. - khh
Fjögur ný verk
SPENNANDI VETUR FRAMUNDAN Íslenska dansflokkinum bætist liðsauki en Katrín Á. Johnson og Cameron Corbett dansa á ný með hópn-
um í vetur auk Kamils Warchulski sem dansað hefur með flokkum í Þýskalandi og Austurríki undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN