Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 8
 1. september 2006 FÖSTUDAGUR FLUGSLYS Þeir Arnar Már Magnús- son og Sigurberg Magnús Sigurðs- son, 21 árs, sluppu með skrámur eftir að lítil eins hreyfils flugvél hrapaði með þá og flugkennara þeirra innanborðs í Oxford-skíri í Englandi í fyrradag. Þetta var þeirra fyrsti verklegi flugtími. Það þykir kraftaverki líkast að þeir skyldu ekki slasast, því vélin er talin gjörónýt. Svo virðist sem flugmótor vélar- innar, sem var af gerðinni Piper Warrior, hafi gefið sig stuttu eftir flugtak. Þegar það gerðist var flugvélin í um tuttugu metra hæð. „Flugkenn- arinn okkar brást hárrétt við og það er honum að þakka að við erum enn á lífi í dag,“ segir Arnar Már, annar tvímenninganna. Hann segir þá félaga hafa fyllst skelfingu og þeir hafi óttast um líf sitt. Flugkennarinn lenti vélinni um leið og vélarbilunin gerði vart við sig og reyndi að stöðva flugvélina. Þrátt fyrir að hafa náð að draga verulega úr hraða hennar fór hún brautina á enda og í gegnum lim- gerði og grindverk við brautarend- ann, með þeim afleiðingum að hún sporðreistist og staðnæmdist á hvolfi á vegi sem liggur hjá flug- brautinni. „Þegar við náðum áttum vorum við á hvolfi og fundum mikla bensín- lykt, enda frussaðist bensín út úr vélinni og á veginn,“ segir Arnar Már. „Flugkennarinn náði að losa okkur og við flýttum okkur út úr vélinni eins og við gátum, enda mikil eldhætta á ferð.“ Arnar Már segir þá félaga í upp- námi eftir atburðinn. Þeir séu þó staðráðnir í að láta atvikið ekki hafa áhrif á sig en þeir stunda nám við Oxford Aviation Training flug- skólann sem hafði umsjón með umræddri vél. „Við fengum áfalla- hjálp strax eftir atvikið frá mönn- um frá skólanum sem eru þjálfaðir í að tala við menn sem hafa lent í svona lífsreynslu,“ segir Arnar Már. „Við eigum að fara í flug strax á morgun með sama flugkennaran- um til að ná skrekknum úr okkur.“ aegir@frettabladid.is Vorum vissir um að við myndum deyja Tveir íslenskir flugnemar voru hætt komnir þegar eins hreyfils flugvél hrap- aði til jarðar með þá innanborðs í Oxford-skíri í Englandi í fyrradag. Þeir segja mikla skelfingu hafa gripið um sig. Mótor vélarinnar gaf sig stuttu eftir flugtak. BROTLENTU Í FYRSTA VERKLEGA FLUGTÍMANUM FRÁ SLYSSTAÐ Mikill viðbúnaður slökkviliðs var á slysstað vegna eldhættu. Flugvélin er talin gjörónýt eftir slysið. MYND/OXFORDSHIRE NEWS SLUPPU MEÐ SKREKKINN Hér má sjá þá félaga, Arnar Má til vinstri og Sigurberg Magnús til hægri sitt hvorum megin við flugkennara sinn, skömmu eftir slysið. Þeir segja rétt viðbrögð kennarans hafi bjargað lífi þeirra. MYNDIR/OXFORDSHIRE NEWS SLÖKKVILIÐ AÐ STÖRFUM Þrjátíu slökkviliðsmenn tóku þátt í aðgerðum eftir slysið. STOKKHÓLMUR, AP Fulltrúar sextíu landa mættust í Stokkhólmi í gær til ráðstefnu sem Jan Eliasson, utan- ríkisráðherra Svíþjóðar, bauð til. Ræddar voru nánustu framtíðarhorfur Líbanons, þörfin á neyðaraðstoð og allsherjar flutningabann Ísraelsmanna, sem einangrar landið og tor- veldar alla aðstoð. Einnig var klasasprengj- unotkun Ísraelsmanna gagnrýnd. Fouad Saniora, forsætisráðherra Líbanons, sagði afleiðingar stríðsins þær „að fimmtán ára þróun hefði verið þurrkuð út á nokkrum dögum“ og að kostnaður við endurreisn landsins hlypi á milljörðum doll- ara. Aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna, Mark Malloch Brown, hvatti Ísraelsmenn til að aflétta ferða- og flutningabanninu samstundis. Hann líkti flutningabanni á neyðaraðstoð við „öndunarvél þar sem stigið er á loftleiðsluna“. Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði að heimurinn ætti að sameinast um þau skilaboð til Líbana að þeir stæðu ekki einir. „Stríð er kannski bisniss sumra, en frið- ur verður ætíð sameiginleg skylda okkar allra,“ sagði Persson. - kóþ Forsætisráðherra Líbanons um herferð Ísraela: Fimmtán ár voru þurrkuð út SINIORA OG PERSSON, FORSÆT- ISRÁÐHERRAR LÍBANONS OG SVÍÞJÓÐAR Fulltrúar sextíu landa mættust í Stokkhólmi í gær til að ræða 34,5 milljarða króna neyðaraðstoð til Líbanons. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Þegar taka þarf til nesti í skólann á hverjum degi skiptir miklu að það sé hollt og gott án þess að verða leiðigjarnt. Notaðu gæðaáleggið frá SS til að gera nestið fjölbreytt og gott. Flatbrauð og SS hangiálegg er sígilt og sívinsælt í nestisboxið. Þú þekkir SS álegg á gulu umbúðunum. Hangiálegg frá SS – á flatbrauð, sívinsælt í nestisboxið F í t o n / S Í A F I 0 1 7 4 7 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.