Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 86
 1. september 2006 FÖSTUDAGUR54 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Það vantar: Starfsfólk í sal. - Kvöldvinna Kokk - Dag- og kvöldvinna Góð Laun í boði Banthai Uppl. 896 3536 LÁRÉTT 2 fjarskiptatæki 6 klukka 8 mæliein- ing 9 til sauma 11 í röð 12 helgi- myndir 14 þíða 16 rás 17 þangað til 18 niður 20 ryk 21 ögn. LÓÐRÉTT 1 mánuður 3 í röð 4 dýr 5 angan 7 röndóttur 10 hrós 13 spil 15 sjúk- dómur 16 espa 19 tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2 sími, 6 úr, 8 júl, 9 nál, 11 lm, 12 íkona, 14 afísa, 16 æð, 17 uns, 18 suð, 20 im, 21 arða. LÓÐRÉTT: 1 júní, 3 íj, 4 múlasni, 5 ilm, 7 rákaður, 10 lof, 13 níu, 15 asmi, 16 æsa, 19 ðð. FRÉTTIR AF FÓLKI Lífið leikur við Bubba Morthens en síðast þegar af honum fréttist var hann í fimmtugsafmæli tengda- föður síns, Hafsteins Jónssonar ásamt heitmey sinni, Hrafnhildi. Var veislan hin veglegasta en þó ekki eins til- komumikil og fimm- tugsafmæli kóngsins fyrr í sumar en þá var öll Laugardals- höllin lögð undir afmælið. Athafnamennirnir Þorsteinn Jónsson, kenndur við Coke, og Magnús Ármann eru lík- lega loðnari um lófana en gengur og gerist. Segir sagan að þeir félagar hafi nýverið tekið á móti tveimur glænýjum Porche 911 bifreiðum sem flogið var með einkaþotu beint frá þýsku verksmiðjunum á Reykjavíkurflugvöll. Haft er eftir sjálfum Benna í Bílabúð Benna að þessi týpa sé sport- bíll aldarinnar en fá má bílana á breiðu verðbili eftir búnaði og tegund, allt frá um tíu milljónum upp í Guð má vita hvað. Jón Egill Bergþórsson heitir einn eftirsóttasti sjónvarpsframleiðandi landsins. Hann stjórnaði gerð Meistarans fyrir Stöð 2 og Loga Bergmann. Þótti fréttnæmt því áður hafði Jón Egill verið einn innsti koppur í búri hjá RÚV og framleiddi ýmsa þætti þar svo sem „Af fingrum fram“. Nú, þegar gam- all draumur Jóns Ólafssonar um að stjórna spjallþætti í Ríkissjón- varpinu á laugardagskvöldi rætist, og feta þannig í fótspor sjálfs Hemma Gunn, söðlar Jón Egill enn um og gengur til liðs við spéfugl- inn og tónlistar- manninn, nafna sinn Ólafsson. - fgg Björgvin Jóhann Hreiðarsson kokkanemi á Hótel Geysi var upphaflegi söngvarinn í hljóm- sveitinni Á móti sól. Þegar Björgvin hætti tók Magni Ásgeirsson við en hann hefur slegið í gegn með hljómsveit- inni sem og í sjónvarpsþættin- um Rockstar: Supernova. „Ég var með í Á móti sól frá byrjun. Mig minnir að sveitin hafi verið stofnuð í kringum 1996-7 en ég hætti í september árið 1999. Ég átti orðið tvö börn og taldi tíma mínum betur helgað í að sinna fjölskyldunni,“ segir Björgvin Jóhann. „Vinir mínir hafa sagt að ég sé langtum betri söngvari en Magni. Ég held hins vegar að fólk sé að reyna að hlífa mér því hann er helmingi betri en ég var. Ég kemst ekki með tærnar þar sem hann hefur hælana.“ Söngvarinn fyrr- verandi fylgist grannt með gömlu félögunum í Á móti sól. „Ég er mjög ánægður með það sem þeir hafa verið að gera og mér finnst sveitin stefna í góða átt,“ segir Björgvin og bætir við: „Ég hef aldrei verið hrifinn af því þegar íslenskar sveitir eru að covera gömul íslensk lög. Í þeirra tilviki gerðu þeir það hins vegar mjög vel og það er kannski ekki síst söngnum hans Magna að þakka.“ Björgvin hefur fylgst með arftaka sínum í Á móti sól í sjón- varpsþættinum Rockstar: Supernova. „Ég er að vísu í þannig vinnu að það er erfitt að vera yfir sjónvarpinu. En ég hef fylgst með allri umræð- unni um hann og mér hefur þótt hann standa sig vel,“ segir Björgvin. „Ég skil ekki alveg hvað er að ger- ast þegar hann hefur lent í þremur neðstu sætunum. Þetta er eitthvað Kanasyndrom í gangi sem gerir það að verk- um. Magni er náttúrlega Evrópubúi og þættirnir eru fyrst og fremst hugsaðir fyrir Kanann.“ -kh Forverinn segir Magna helmingi betri Fimm stór evrópsk sölufyrirtæki berjast þessa dagana um dreifingar- réttinn á kvikmyndunum Börn og Fullorðnir eftir Ragnar Bragason, þar sem leikarar úr Vesturporti eru í aðalhlutverkum. Börn verður frumsýnd hér á landi þann níunda september en hún verður heimsfrumsýnd á San Sebastian-kvikmyndahátíðinni á Spáni í lok mánaðarins. Eftir það verður myndin sýnd á stærstu kvikmyndahátíð Asíu, Pusan, um miðjan október. „Þeir sem sjá um þessa alþjóð- legu dreifingu virðast hafa mikla trú á að myndirnar eigi erindi á alþjóðamarkað. Það er dálítið merkilegt því hún var fyrst og fremst gerð fyrir Íslendinga á íslensku,“ segir Ragnar Bragason. „Þessar myndir voru aldrei hugsaðar neitt meira en það. Það er gaman að sjá að þetta virðist vera að skila sér líka til útlend- inga.“ Vonast Ragnar til að samn- ingar náist áður en myndin verður sýnd í Asíu. Börn var sýnd á markaðshátíð- inni í Haugasundi á dögunum og fékk þar svo mikla athygli að sím- inn er búinn að vera rauðglóandi hjá Ragnari síðan. Hann segir áhugann á myndun- um samt ekki koma sér ýkja mikið á óvart. „Það er sú regla með alla hluti að ef þú gerir eitthvað gott kemur eitthvað gott á móti. Við erum með tvær frábærar myndir í höndunum og það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart að þær eigi eftir að eiga gott líf,“ segir hann. Að sögn Ragnars verður síðari myndin, Fullorðnir, líklega tilbúin í lok september en ekki hefur verið ákveðið hvenær hún verður frum- sýnd. Barist um Börn og Fullorðna BÖRN Nína Dögg fer með aðalhlutverkið í Börnum ásamt Gísla Erni Darrasyni og Ólafi Darra Ólafssyni. Í vetur hefst ný íslensk raunveru- leikaþáttaröð á Skjá einum sem fengin er að láni frá Ástralíu en sú bar nafnið Celebrity Overhall og sló í gegn hjá andfætlingum. Þætt- irnir sýna fræga og fína fólkið koma sér í form á mettíma og var sjálfur Fabio leynigestur í þáttun- um. Í íslensku þáttaröðinni urðu engir aukvissar fyrir valinu því Idolstjarnan Ragnheiður Sara, leikarinn Ari Matthíasson og athafnamaðurinn Árni Johnsen eru meðal þeirra sex sem taka þátt og jafnvel mun Gaui litli bætast í hópinn, en þegar Fréttablaðið hafði tali af honum reyndist hann hafa meiðst lítillega og Gaui ekki alveg viss um hvort hann kæmist. Hinir sex útvöldu eyða sex vikum í stífri þjálfun hjá Boot- camp sem heldur betur hefur slegið í gegn hjá Íslendingum, en þar er ekkert gefið eftir í að keyra þátt- takendur áfram í átt að markmiði sínu. Þykir þjálfunin minna eilítið á það sem hermenn eru látnir ganga í gegnum en þjálfararnir hvetja fólkið áfram með öllum til- tækum ráðum. Ekki er um eigin- lega megrun að ræða heldur er takmarkið að koma þátttakendum í sem best form. Auk hinna sex sem þegar hafa gefið samþykki fyrir að taka þátt í þættinum verð- ur sélegur leynigestur sem þátt- takendurnir vita ekki af og hvílir mikil leynd yfir því hver það er. Árni Johnsen var nýkominn á fastalandið þegar Fréttablaðið náði tali af honum en athafnamað- urinn sagðist ekki hafa tekið sér langan umhugsunarfrest þegar komið var að máli við hann. „Mér finnst þetta bara jákvætt því við þurfum öll að hugsa um líkamann og hvað við látum ofan í okkur,“ sagði Árni léttur. „Ég er svo sem í ágætis formi en það má alltaf bæta það,“ bætti hann við og sagðist ekki kvíða fyrir neinu enda væri hann þannig gerður. „Þetta verður bara skemmtilegt,“ sagði Árni. Tökur á þættinum hefjast um helg- ina og standa yfir í sex vikur en Basecamp framleiðir þættina fyrir Skjá einn. freyrgigja@frettabladid.is NÝ RAUNVERULEIKAÞÁTTARÖÐ: ÁRNI JOHNSEN MEÐAL ÞÁTTTAKENDA Frægir í form á mettíma ARI MATTHÍASSON Sló í gegn í Flugleiða - auglýsingunni og ætlar sér að komast í betra form með hjálp Bootcamp. ÁRNI JOHNSEN Þingmaðurinn fyrrverandi ætlar að koma sér í enn betra form í raun- veruleikaþætti sem Skjár einn sýnir í vetur. ... nýútskrifaða menntaskóla- mærin Aníta Hirlekar fyrir að setja markið hátt og hafa fengið inngöngu í hinn fræga hönnunarskóla, Central Saint Martins. HRÓSIÐ FÆR … BJÖRGVIN JÓHANN „Það er dálítið hallærislegt að fara úr hljómsveit til að vera með fjölskyldunni og velja sér svo starf sem kokkur því þá er ég að vinna þegar aðrir eru í fríi.“ MAGNI Vinir Björgvins segja hann betri söngvara en Magna en sjálfur er hann því ósam- mála. 1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.