Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 6
6 1. september 2006 FÖSTUDAGUR ÖRORKA Allar símalínur hafa logað hjá Öryrkjabandalagi Íslands vegna ákvörðunar fjórtán lífeyris- sjóða um að skerða eða fella niður lífeyrisgreiðslur til á þriðja þúsund öryrkja. Öryrkjarnir hringja til að spyrjast fyrir og veita ÖBÍ umboð til að fara með sín mál. Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur tekið fyrir bréf frá Öryrkjabandalaginu og vísað því til lífeyrisnefndar ASÍ. Gylfi Arn- björnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir að málið verði kannað nánar. Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalagsins, segir að ÖBÍ líti á launþegahreyfinguna sem mikilsverðan bandamann í bættum kjörum þeirra sem höllustum fæti standa í íslensku samfélagi og treysti því að ASÍ veiti öryrkjum stuðning. Fjórtán lífeyrissjóðir sendu nýlega á þriðja þúsund öryrkjum bréf um skerðingu eða niðurfell- ingu lífeyrisgreiðslna. Algengt er að kjaraskerðingin nemi fjórðungi heildartekna og allt upp í þriðjung heildartekna. Þetta getur numið tíu til þrjátíu þúsund krónum á mán- uði. Reglur lífeyrissjóðanna segja að greiðslur til öryrkja skuli aldrei verða hærri en þær tekjur sem öryrkinn hafði áður en hann varð öryrki, annars beri að lækka eða fella niður greiðslurnar. Sjóðirnir bera því árlega saman tekjur öryrkja fyrir örorkuna við greiðsl- ur og bætur sem þeir fá í dag. „Við höfum gert þetta í mörg ár en reglur og framkvæmd er mark- vissari og stífari en áður. Fjölmarg- ir hafa haft samband og gert athugasemdir og mörg mál eru í skoðun. Þau verða hugsanlega leið- rétt,“ segir Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis lífeyris- sjóðs. „Við drögum þessa útreikninga mjög í efa, bæði forsendur þeirra og aðferð. Þar fyrir utan er frestur- inn til 1. nóvember óviðunandi. Við krefjumst þess að þetta verði dreg- ið til baka eða aðgerðum frestað meðan farið verður yfir þetta með sómasamlegum hætti,“ segir hann. Sigursteinn segir að lífeyris- sjóðirnir séu að „reiða hátt til höggs gagnvart sjóðfélögum sem lægstar tekjurnar hafa. Þeir sem einkum lenda í þessu eru fiskvinnslufólk, sjómenn, verkamenn og bygginga- menn.“ „Ég geng út frá því sem vísu að það verði hætt við þetta. Ég trúi því ekki að þetta gangi eftir,“ segir hann. ghs@frettabladid.is SIGURSTEINN MÁSSON ÁRNI GUÐMUNDSSON Símalínur logandi vegna skerðingar Símalínur hafa logað hjá Öryrkjabandalaginu vegna ákvörðunar lífeyrissjóða um að skerða lífeyrisgreiðslur. Lífeyrissjóðirnir „reiða hátt til höggs,“ segir for- maður Öryrkjabandalagsins. Ósk ÖBÍ um stuðning ASÍ er hjá lífeyrisnefnd. + = 20% afsláttur Með kaupum á tveimur Kellogg’s Corn Flakes pökkum færðu 20% afslátt af miðaverði á barnaleiksýninguna Hafið bláa. Hafið bláa fékk áhorfendaverðlaun Grímunnar árið 2006 og var tilnefnt sem barnasýning ársins og fyrir búninga. Geymdu kassakvittunina og framvísaðu henni í miðasölu Austurbæjar þegar þú kaupir miða. Kauptu Corn Flakes og fáðu afslátt á Hafið bláa! Þú sparar allt að640 kr.á miða! BÍLSLYS Söfnun fyrir ekkju Jóhanns Fannars Ingibjörnsson- ar, sem lést í bílslysi á Garð- skagavegi 16. ágúst, gengur vel að sögn Olgu Guðgeirsdóttur, í Vogum frumkvöðuls söfnunar- innar. Ekkja Jóhanns Fannars á þrjú börn. Olga missti sjálf eiginmann sinn fyrir þremur árum með sviplegum hætti. Þá var fé safnað fyrir hana. „Hana munar um allt,“ segir Olga. „Hún er í barnseignarfríi og veit ekki hvað við tekur að því loknu.“ Þeir sem vilja leggja ekkju Jóhanns Fannars lið er bent á reikninginn 1109-05-411333 á kennitölunni 201079-3149. - æþe Banaslysið á Garðskagavegi: Fjársöfnun gengur vel DÓMSMÁL Stúlka sem reyndi að smygla inn tveimur kílóum af kókaíni í ágúst, hefur verið látin laus. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði úrskurðað hana í áframhald- andi gæsluvarðhald. Hún kærði úrskurðinn til Hæstaréttar, sem hnekkti honum. Upphaf málsins er að par var handtekið 9. ágúst á Keflavíkur- flugvelli, en það var að koma frá Spáni, með viðkomu á Bretlandi, þar sem það hafði fengið efnin. Í farangri stúlkunnar fundust tæp- lega tvö kíló af kókaíni. Karlmað- urinn fór í gegnum hlið tollgæsl- unnar en var handtekinn skömmu síðar í flugstöðinni. Skömmu síðar var þrennt til viðbótar handtekið, ein kona og tveir karlar. Síðar- nefnda konan er grunuð um að hafa átt hlutdeild í skipulagningu fíkni- efnasmyglsins. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins er stúlkan sem sleppt var fædd 1988, en hin fjögur eru öll rúmlega tvítug. Þau sitja öll í gæsluvarðhaldi. Einn úr hópnum hefur áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamisferlis. - jss KÓKAÍN Margar tilraunir hafa verið gerðar til að smygla kókaíni til landsins að undanförnu. Hæstiréttur hnekkir úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur: Kókaínburðardýr látið laust ÍRAN, AP Írönsk stjórnvöld hafa haldið áfram að auðga úran þrátt fyrir að í gær hafi runnið út fresturinn, sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna gaf stjórnvöldum til þess að hætta við kjarnorkuáform sín. Eftirlitsmenn frá Alþjóðlegu kjarnorkumálastofn- uninni hafa verið í Íran að fylgjast með kjarnorku- vinnslu. Þeir skiluðu í gær skýrslu til Öryggisráðsins, þar sem staðfest er að Íranar hafa ekki hætt að auðga úran, en það er ferli sem gerir að verkum að hægt er að nota það í kjarnorkuvopn. Í skýrslunni segir jafnframt að eftirlitsmönnum stofnunarinnar hafi á þremur árum ekki tekist að fá staðfestingar á því að Íranar ætli sér eingöngu að nota kjarnorku í friðsam- legum tilgangi. John Bolton, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í gær að nú verði Öryggisráðið að fara að ákveða til hvaða refsiaðgerða eigi að grípa, þar sem fresturinn sem Írönum var gefinn til þess að hætta auðgun úrans er nú liðinn. Hann sagðist ekki líta svo á að einróma samþykki þurfi í Öryggisráðinu áður en gripið verði til aðgerða gegn Íran. Javier Solana, utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins, ætlar á næstu dögum að hitta Ali Larijani, aðalsamningamann Íransstjórnar í kjarn- orkumálum. - gb Íranar auðga úran fram á síðasta dag: Láta sér fátt finnast um hótanir ���������������������������������������������������������������������� ������������ ������������� ������������ ����������������������������� ����������������������������������������������������������������� ���� ����� ����� �� MAHMOUD AHMADINEJAD Íransforseti virðist ekki ætla að fara að kröfum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Finnst þér að Árni Johnsen eigi að bjóða sig fram til þings á ný? Já 16% Nei 84% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlarðu að sjá eitthvað á kom- andi kvikmyndahátíðum? Segðu þína skoðun á visir.is FISKVINNSLUFÓLK Að mati Sigursteins Mássonar verður fiskvinnslufólk, sjómenn, verkamenn og byggingamenn einkum fyrir barðinu á ákvörðun lífeyrissjóðanna um að skerða lífeyrisgreiðslur. KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.