Fréttablaðið - 07.09.2006, Síða 76
7. september 2006 FIMMTUDAGUR40
Kortasalan er hafin. Áskriftarkort og opin kort!
Miðasala á netinu: www.leikhusid.is.
Afgreiðsla er opin kl. 12:30-18:00 mán. - þri. Aðra daga kl. 12:30-20:00.
Miðasölusími: 551-1200. Símapantanir frá kl. 10:00 virka daga.
��������������������������������� ���������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ��������������������������
����������� �� �������������������� �� �� �����
�������������������������������
�������������� �� ���������������������������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
������������ �������������� �� �����������
��������������������������������������������������������������������
������������ ����������������������������������������
����������������������������������� �������������������������������
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
6
5
7
„EKKI HUGSA.
DANSAÐU!“
Miðasala 568 8000 www.id.is
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
Stórtíðindi berast úr herbúð-
um útgáfuhreyfingarinnar
Nýhils, sem blæs til upp-
lestrarkvölds í Þjóðleikhús-
kjallaranum í kvöld. Þór
Steinarsson, forvígismaður
kynningarmála félagsins,
segir þar von á stórkostlegri
upplifun sem enginn megi
missa af.
Höfundar þeirra sjö titla sem
komið hafa út hjá forlaginu það
sem af er ári munu lesa úr verkum
sínum, auk þess sem haust- og
vetrarverkefni hópsins verða
kynnt. „Í kvöld lesa skáldin sem
eiga bækur í seinni seríu Nor-
rænna bókmennta en það eru
Ófeigur Sigurðsson, Kristín Eiríks-
dóttir, Þórdís Björnsdóttir, Valur
Brynjar Antonsson og Steinar
Bragi,“ segir Þór og bætir við að
Þórdís lesi einnig ásamt skáldinu
Jesse Ball úr nýútkominni bók
þeirra, Veru & Linus. Rithöfundur-
inn Þorsteinn Guðmundsson mun
síðan einnig mæta á svæðið og lesa
úr nýútkominni ljóðabók sinni
Barkakýli úr tré en milli orðhagra
skáldanna mun söngkonan Lay
Low létta lund gesta.
Þór útskýrir að Nýhil-hreyf-
ingin sé síst að leggjast í haust-
dvala eða kröm. „Nýhil er bara
vaxandi - í hugum okkar og hjört-
um þjóðarinnar,“ segir hann, „og
það eru stórtíðindi á leiðinni.“
Hann útskýrir að nú sé von á
tveimur skáldsögum frá forlaginu
- frumburði skáldsins Bjarna
Klemens sem hefur komið fram á
mörgum ljóðakvölda hópsins og
annars vel þekkst Nýhilskálds,
Hauks Más Helgasonar. „Það
hefur alltaf verið stefna okkar að
gefa út vandaðan skáldskap. Þótt
við höfum einblínt á ljóðið hefur
aldrei verið útilokað að gefa út
skáldsögur líka. Reyndar er þetta
ekki alveg nýtt fyrir okkur því á
síðasta ári gáfum við út skáld-
sögu Örvars Þóreyjarsonar
Smárasonar, úfin, strokin,“ árétt-
ar Þór.
Fleira kann líka að vera í pípun-
um hjá Nýhil enda útskýrir Þór að
forlagið haldi sínum dyrum gal-
opnum. „Ef við fáum eitthvað í
hendurnar er það sannarlega tekið
til skoðunar en það er þó langt því
frá að það leynist stórkostleg hand-
rit að bókum á hverju strái, allra
síst þegar kröfurnar eru miklar,“
segir hann.
Í vetur verður enn fremur stefnt
að líflegu og marghátta menning-
arstarfi á vegum Nýhils og er þetta
því vart einasta upplestrarkvöld
vetrarins. Forlagið á nú einnig inn-
anbúðarmenn í nýjum húsakynn-
um Smekkleysu við Klapparstíg
þar sem það rekur ljóðabókabúð
sem að sögn Þórs dafnar vel.
„Ljóðasamfélagið rúmast samt
ekki innan fjögurra veggja,“ segir
Þór að lokum, „það á heima í huga
og hjarta okkar allra“.
Upplestrarkvöldið hefst kl.
20.30 í kvöld en húsið verður opnað
hálftíma fyrr. - khh
Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin
FORLAGIÐ NÝHIL FÆRIR ENN ÚT KVÍARNAR Útgáfuhreyfingin hefur að mestu einbeitt sér að ljóðum en nú er von á tveimur skáld-
sögum. Fyrsta upplestrarkvöld vetrins verður haldið í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Myndlistarmönnum hefur fækk-
að í Reykjanesbæ eftir Ljósanótt
um síðustu helgi en talið er að allt
að hundrað myndlistarmenn hafi
komið að sýningum í bænum um
þá helgi, sem hlýtur að vera met
miðað við höfðatölu.
Nú stendur yfir sýning á
vegum Listasafns Reykjanesbæj-
ar í Duushúsum en þar sýnir
Steinunn Marteinsdóttir í Lista-
salnum. Verk Steinunnar eru
unnin á árunum 1961-2006 og ber
sýningin það heiti. Hún er opin
virka daga milli 13 og17.30 og
stendur til 15. október. Steinunn
opnar aðra sýningu síðar í mán-
uðinum í Listasafni Mosfells-
bæjar, Þverholti 2.
Í Duushúsi er einnig að finna
sýningu á vegum Handverks og
hönnunar en í Bíósalnum gefur að
líta fjölbreytta úrval verka eftir
íslenskt myndlistar- og hand-
verksfólk.
Sýningin Project Patterson,
sem er samstarfsverkefni Lista-
safnsins og gallerísins Suðsuð-
vesturs, verður opin næstu tvær
helgar, milli 13 og 18. Sú sýning
er í Sundhöllinni við Framnesveg
og á Hafnargötu 22 en safnið
bendir sérstaklega á að sýningin í
Sundhöllin hæfi ekki viðkvæmum
gestum. - khh
STEINUNN MARTEINSDÓTTIR Sýnir á vegum Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum.
Margbrotin myndlist í Reykjanesbæ
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI