Fréttablaðið - 07.09.2006, Page 84
Breska tímaritið GQ hélt kosningu
meðal lesenda sinna um fólk árs-
ins. Þar vann fyrrverandi Bítillinn
Sir Paul McCartney aðalverðlaun-
in en hann var valinn maður árs-
ins. „Paul McCartney er stærsta
lifandi goðsögnin sem við höfum í
dag og hann nýtur einnig mikillar
virðingar í heiminum,“ segir
Dylan Jones, ritstjóri GQ.
McCartney var val-
inn vegna nýutkom-
innar plötu hans og
velheppnaðs hljóm-
leikaferðalags
hans um Banda-
ríkin. Goðsögnin
sá sér þó ekki
fært að mæta
og taka á móti
verðlaunun-
um en kom
skilaboðum þess
efnis áleiðis að
hann væri mjög
þakklátur fyrir að
fá þessi verðlaun
og ánægður með að
fólki fyndist hann hafa gert góða hluti á þessu ári
þrátt fyrir alla erfiðleika sem
dunið hafa á honum undanfar-
ið. Eins og kunnugt er skildi
McCartney við eiginkonu sína
Heather Mills og hefur verið
mikið í fjölmiðlun vegna þess.
Aðrir sem unnu til verðalauna
voru Justin Timberlake sem var
valinn alþjóðlegi maður ársins
enda hefur nýja breiðskífa hans
setið á toppnum í Bretlandi síðan
hún kom út. Hljómsveitin Keane
var valinn hljómsveit ársins og
breska söngkonan Billie Piper var
eina konan sem hlaut verðlaun og
var það kona ársins.
Fólk ársins að mati GQ
MAÐUR ÁRSINS Fyrrverandi bítillinn Sir Paul McCartney hlaut stærstu verðlaun
kvöldsins og þakkaði vel fyrir sig en sá sér þó ekki fært að mæta á verðlauna-
afhendinguna. FRÉTTABLAÐIÐ/WIREIMAGES
ALÞJÓÐLEGI TÓNLISTARMAÐUR ÁRSINS
Söngvarinn Justin Timberlake hlaut þessi
verðlaun vegan mikilla vinsælda nýjustu
breiðskífu sinnar í Bretlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
HLJÓMSVEIT ÁRSINS Keane fékk þessi virtu verðlaun en hún kom einmitt svo eftir-
minnilega fram á Airwaves í fyrra.
KONA ÁRSINS Breska
söngkonan Billie Piper
var valin kona ársins
en hún nýtur mikilla
vinsælda í Bretlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Leikarinn og hjartaknúsarinn
George Clooney er nú kominn
með nýja dömu upp árminn. Sú
heppna mun vera leikkonan Ellen
Barkin en hún lék ásamt Clooney
í myndinni „Ocean’s Thirteen“.
Það sem er fréttnæmt við þetta er
að Barkin er 52 ára og þar af leið-
andi eldri en Clooney en hann er
þekktur fyrir að falla ávallt fyrir
yngri konum. Clooney hefur mar-
goft verið valinn kynþokkafyllsti
maður heims en hann hefur ekki
verið mikill sambandsmaður og
segist sjálfur vera lítið fyrir
kærustuparaleik eins og hann
kallar það.
Clooney kominn með nýja
HJARTAKNÚSARI George Clooney er
kominn með nýja dömu upp á arminn
sem er Ellen Barkin leikkona.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Loksins, loksins, loksins rekst
maður á plötu sem slær mann
almennilega utanundir. Ég er
meira að segja á því að þessi plata
hafi hreinlega bjargað lífi mínu.
Ég rakst á eintak í San Francisco,
þaðan sem þessi sveit er, og var
með hana í spilaranum á fullum
styrk á meðan ég barðist við svefn-
inn, keyrandi um nótt á 170 kíló-
metra hraða á hraðbrautinni yfir
til Los Angeles. Svo beitt er þessi
tónlist, að mér leið eins og ég væri
með hnífsodd að barkakýlinu alla
leiðina. Maður sofnar varla
þannig.
Þetta er ruddalegt rokk, undir
sterkum áhrifum frá The Birthday
Party. Ofan á það er svo bætt
pönkuðum surf-gítarlínum, John
Zorn-legum saxófón, smekklegum
moog-hljómborðslínum og rokk-
söngkonu sem lætur Karen O úr
Yeah Yeah Yeahs líta út eins og
skátastelpu. Önnur lög hljóma
eins og Risaeðlan og Dog Faced
Hermans hafi runnið í eina sveit.
Það eina sem ég get sett út á
þessa plötu er nafn sveitarinnar,
Veronica Lipgloss and the Evil
Eyes, sem mér finnst hörmulegt.
Sérstaklega í ljósi þess að það er
engin Veronica í hljómsveitinni,
heldur heitir söngkonan Rhani Lee
Remedes. Hún lítur út eins og illur
tvíburi Fergie úr Black Eyed Peas
og með augnaráð Charles Manson.
Hún segist líka vera norn og klæð-
ir sig eftir því. Bassaleikur henn-
ar er þannig að það er engu líkara
en að draugur Tracy Pew úr The
Birthday Party sé að spila í gegn-
um hana. Hún hefði bókað verið
brennd á báli hefði hún fæðst 400
árum fyrr. Hún gefur sig alltaf
100% í hvert lag.
Aðallinn hér er þó undirspilið.
Trommurnar, bassinn og gítarinn
eru oftar framar í mixinu en söng-
urinn, eins og maður getur ímynd-
að sér að þessi sveit myndi hljóma
á tónleikum. Sum lögin eru byggð
á blúsuðum bassalínum á meðan
önnur eru byggð utan um frum-
legan drumbuslátt og bílflautuleg-
an saxófónleik.
Þetta er eitthvað sem við
gætum heyrt í næstu kvikmynd
David Lynch. Án efa besta rokk-
plata sem ég hef heyrt á þessu
ári. Birgir Örn Steinarsson
Nornir frá San
Francisco-flóa
VERONICA LIPGLOSS AND THE EVIL
EYES: THE WITCH´S DAGGER
NIÐURSTAÐA:
Frumraun Veronica Lipgloss and The Evil Eyes
er plata fyrir þá sem vilja að rokktónlist hljómi
eins og eitthvað óbeislað og hættulegt.
Bandaríska rokkabillýhljómsveit-
in Kings of Hell treður upp á Bar
11 á laugardagskvöld. Sveitin spil-
aði á Gauknum og Bar 11 í janúar
við mjög góðar undirtektir og má
því búast við hörkustuði á laugar-
dagskvöld.
Húsið verður opnað klukkan
20.00. Hljómsveitin Weapons hitar
upp og rokkabillýmeistarinn
Curver tekur síðan við af Kings of
Hell og heldur uppi stuðinu til
klukkan 6.
Kings of Hell var stofnuð árið
2003 af tveimur vinum. Þegar
meiri alvara komst í spilið bættust
þrír í hljómsveitina til viðbótar og
núna heldur hún yfir sextíu tón-
leika á hverju ári.
Sveitin hefur gefið út tvo fimm-
laga demódiska, þar af lauk hún
við annan þeirra í síðasta mánuði.
Kóngarnir mættir til landsins
KINGS OF HELL Hljómsveitin Kings of
Hell spilar á Bar 11 á laugardagskvöld.
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
LITTLE MAN kl. 4, 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 4 og 6
GRETTIR 2 ENSKT TAL kl. 4, 6, og 8
TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 5.50 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 8 og 10.10
MIAMI VICE kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
THE SENTINEL kl. 10.15 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4
TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
THE WIND THAT SHAKES THE BARLEY kl. 5.40
THREE BURIALS
OF MELQUIADES ESTRADA kl. 5.50
LEONARD COHEN: Í M YOUR MAN kl. 6
VOLVER kl. 8
STRANDVASKEREN kl. 8
ANGEL A kl. 8
WINTER PASSING kl. 10
FACTOTUM kl. 10
THE BOOK OF REVELATIONS kl. 10.10
LITTLE MAN B.I. 12 ÁRA kl. 8 og 10
YOU, ME & DUPREE kl. 8 og 10.10
GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 6
GRETTIR 2 ENSKT TAL kl. 6
TAKK FYRIR AÐ REYKJA
THANK YOU FOR SMOKING