Fréttablaðið - 07.09.2006, Side 28
28 7. september 2006 FIMMTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn
Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Björgvin Guðmundsson AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFANG: ritstjorn@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
Ég gleymi því aldrei. Þeir þustu út á gangana allir í einu með
háreysti. Ég hafði aldrei fyrr séð
svona marga prófessora á einu
bretti. Þetta var 10. október 1973,
ég var þá nýkominn til náms í
Princeton, og Spiro Agnew,
varaforseti Bandaríkjanna, hafði
tilkynnt langþráða afsögn sína,
enda hafði hann verið fundinn
sekur fyrir rétti um mútuþægni
og skattsvik. Málsvörn hans var
þessi: Ég gerði það ekki, og ég skal
aldrei gera það aftur. Nixon
forseti hafði notað Agnew til að
siga honum á andstæðinga sína
eftir þar til gerðum óvinalista,
enda var Agnew meðal vígaglöð-
ustu manna – og hreykinn af því.
Handlangarar Nixons gættu
ímyndar forsetans eins og
sjáaldurs augna sinna: þeir komu
því inn hjá kjósendum, að vilji
forsetans væri svo sterkur og
sjálfsaginn svo alger, að hann
hefði aldrei borðað sig saddan.
Sannleikurinn er þó sá, að Nixon
sat iðulega á skrifstofu sinni á
kvöldin með aðra höndina
skjálfandi á kjarnorkuknappinum
og hina á viskíflöskunni og gaf
drafandi skipanir í símann. Eitt
kvöldið fyrirskipaði hann innrás
Bandaríkjahers í Sýrland, en hann
gleymdi að spyrja morguninn
eftir, hvernig innrásarliðinu hefði
reitt af.
Svo fór, að Nixon neyddist til að
segja af sér 9. ágúst 1974, enda
hafði hann orðið uppvís að
alvarlegum glæpum, ekki sízt
fyrir ítrekaðar uppljóstranir
Washington Post. Nixon hafði lagt
á ráðin um innbrot röskum tveim
árum áður, meðal annars á
skrifstofur demókrata í Water-
gate-byggingunni í Washington,
hann hafði gersigrað andstæðing
sinn í forsetakjöri skömmu síðar,
haustið 1972, og hindrað framgang
réttvísinnar við rannsókn málsins.
Ýmsir félagar hans í Repúblíkana-
flokknum snerust gegn honum,
þegar þeir gerðu sér grein fyrir
alvöru málsins. Nixon átti þá ekki
annarra kosta völ en að segja af
sér, fyrstur Bandaríkjaforseta.
Eftirmaður hans, Gerald Ford,
náðaði hann og skaut honum
undan fangavist. Nokkrir sam-
verkamenn Nixons í Hvíta húsinu
voru dæmdir í fangelsi og sátu
inni. Þannig eru Bandaríkin:
fjölmiðlarnir standa sína plikt,
dómskerfið virkar.
Sumir félagar Nixons í
Repúblíkanaflokknum fyrirgáfu
hvorki andstæðingum sínum í
Demókrataflokknum né flokks-
bræðrum sínum fyrir að hafa
borið vitni gegn Nixon og knúið
hann til afsagnar. Þeir sveifla
biblíunni á fundum, en fyrirgefn-
ing er ekki þeirra sterkasta hlið.
Aukin harka færðist af þessum
sökum í bandarísk stjórnmál og
hefur ágerzt með tímanum. Einn
þeirra, sem báru vitni gegn Nixon,
var John Dean, lögfræðingur
Hvíta hússins 1970-73 (hann fékk
fjögurra mánaða dóm). Nokkrir
flokksbræður beggja reyndu síðar
að launa honum lambið gráa með
því að bera það út á bók, að Dean
hefði verið potturinn og pannan í
Watergate-hneykslinu og kona
Deans hefði í þokkabót verið
viðriðin – yes! – vændishring á
vegum demókrata. Bókin fékk
dræmar viðtökur. John Dean
ákvað að segja lífsreynslusögu
sína af fyrrverandi samherjum í
Repúblíkanaflokknum.
Í bók sinni Worse than Water-
gate (2004) lýsir Dean þeirri
skoðun, að forsetatíð Nixons hafi
nánast verið sakleysið sjálft í
samanburði við Bush forseta og
menn hans. Dean lýsir sök á
hendur Bush og Cheney varafor-
seta, leynimakki og lygum; þetta
var áður en hulunni var svipt af
umfangsmiklum símahlerunum og
pyndingum. Dómsmálin hafa
hrannazt upp. Skrifstofustjóri
Cheneys bíður dóms fyrir
meinsæri við opinbera rannsókn á
meintum ofsóknum á hendur
andstæðingi stjórnarinnar.
Fyrrum aðstoðarutanríkisráð-
herra á lögsókn yfir höfði sér
vegna sama máls, og Cheney
hefur einnig verið birt stefna.
Leiðtogi repúblíkana í öldunga-
deildinni, meindýraeyðirinn mikli,
Tom DeLay, neyddist til að segja
af sér þingmennsku vegna
spillingar. Í nýrri bók, Conservat-
ives without Conscience (2006),
kafar Dean dýpra í hugskot þeirra
illskeyttu öfgamanna, sem hann
telur, að hafi nú undirtökin í
Repúblíkanaflokknum. Hann
vitnar í rannsóknir sálfræðinga á
drottnunargjörnum manngerðum;
slíkir menn þrá sterka foringja og
eru árásargjarnir, ósveigjanlegir
og íhaldssamir, þeir eru lýðskrum-
arar, ganga um með guðs orð á
vörum og mega þó helzt ekkert
aumt sjá án þess að þurfa að
traðka á því og skirrast ekki
heldur við að vanvirða mannrétt-
indi og stjórnarskrár; þeir efast
aldrei. Þessir menn ganga fyrir
heift og hefndum, segir Dean.
Lýsing hans virðist ríma vel við
greinargerð Morgunblaðsins 25.
júní sl. um „vont andrúmsloft
heiftar og hefndar“ á vissum
stöðum hér heima.
ÞORVALDUR GYLFASON
Í DAG | Bandarísk stjórnmál
Samvizkulaust íhald
Umræðan
Konur á framboðslistum
Samkvæmt fréttum eru allir stjórn-málaflokkar teknir að huga að upp-
stillingum á framboðslista vegna alþing-
iskosninga á komandi vori. Lítil fjölgun
kvenna á Alþingi Íslendinga á liðnum
árum hefur verið áfall fyrir jafnréttis-
baráttuna hér á landi. Konur eru tæpur
þriðjungur þingmanna og sveitarstjórn-
armanna og þriðjungur ráðherra.
Hlutur kvenna í stjórnmálum er
ennþá óeðlilega rýr og endurspeglar
ekki samfélagið. Það er nauðsynlegt að bæði kynin
taki þátt í að móta samfélagið.
Það liggur ljóst fyrir að stjórnmálaflokkarnir
sjálfir bera þyngsta ábyrgð á þessari þróun.
Fléttulistar, þar sem konur og karlar raðast til
skiptis á framboðslista, hafa skilað verulegum
árangri, því það hefur iðulega skort á að konur eigi
kost á að skipa svokölluð ,,örugg sæti“, þ.e. sæti
sem eru líkleg til að tryggja þeim kosningu. Fléttu-
listar sýna raunverulegan vilja stjórnmálaflokka
til að jafna hlut kynjanna.
Meðalaldur á Alþingi hefur lækkað
undanfarin ár en það eru fyrst og
fremst ungir karlar sem hafa lækkað
meðalaldurinn. Ungir karlar virðast
því eiga auðveldara uppdráttar í
stjórnmálum en ungar konur eða konur
yfirleitt. Af umræðum að dæma virðist
talið eðlilegt að aldur megi vega þungt
við val á frambjóðendum, en kynferði
síður.
Það er brýnt að veita stjórnmála-
flokkunum ákveðið aðhald, nú þegar
þeir hefjast handa við skipan á
framboðslista. Hver verður hlutur
kvenna? Nú er tækifæri til að horfa til
reynslu þeirra kvenna sem koma til greina í
framboð, meta hana að verðleikum og hvetja þær
til þátttöku.
Því ber að fagna að félagsmálaráðherra hefur
þegar skipað starfshóp með fulltrúum allra
þingflokka, sem ætlað er að skipuleggja þverpólit-
ískar aðgerðir til að jafna hlut kynjanna við næstu
alþingiskosningar og mun starfshópurinn væntan-
lega vekja frekari athygli á þessu þarfa baráttumáli.
Höfundur er framkvæmdastjóri Frjálslynda
flokksins.
Konur og kosningar að vori
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR
H
eimilið er griðastaður, öruggt skjól þeirra sem þar
búa. Að minnsta kosti er því þannig farið hjá flestum.
En hitt er því miður líka til að heimilið sé vettvangur
ofbeldis og þar með því alls ekki sá griðastaður fjöl-
skyldu sem til er ætlast og hlýtur að teljast til frumm-
annréttinda hvers og eins. Þess vegna er heimilisofbeldi óþolandi
og ólíðandi, meinsemd sem verður að vinna hörðum höndum að því
að uppræta.
Fréttir hér í blaðinu fyrr í vikunni um að ákært væri í innan
við einu prósenti heimilisofbeldismála endurspegla það ófremdar-
ástand sem ríkir þegar ofbeldi á heimilum er annars vegar, ofbeldi
sem á sér stað í samskiptum hjóna eða sambýlisfólks þar sem full-
komið traust ætti að ríkja.
Konur eru alla jafna þolendur í heimilisofbeldi en karlar ger-
endur. Ljóst er að þolendum heimilisofbeldis er ekki veittur sá
stuðningur sem þeim er nauðsynlegur til að brjóta á bak aftur það
ofbeldi sem þeir verða fyrir. Sá stuðningur þarf að vera ákveðinn og
skilvirkur, ekki síst vegna hinna sérstöku aðstæðna sem eru fyrir
hendi þegar ofbeldi á sér stað inni á heimilum, milli hjóna eða pars
sem lifir saman vegna þess að það hefur tekið þá ákvörðun að deila
saman lífi sínu.
Eitt af því sem gerir meðferð heimilisofbeldismála erfiða er að
hér er nálgunarbann geranda við þolanda í heimilisofbeldismálum
þungt í vöfum. Um þetta eru viðmælendur blaðsins í fréttum um
heimilisofbeldi sammála. Sömuleiðis benda þeir á austurrísku leið-
ina, sem svo er kölluð, um nálgunarbann. Austurríska leiðin gengur
út á að hægt sé að vísa þeim sem beitir ofbeldi á heimili skilyrðis-
laust af heimilinu og meina honum að koma þangað í ákveðinn tíma.
Þessi aðferð gefur meira svigrúm til að vinna í máli þolandans en
þegar gerandinn getur nánast umsvifalaust snúið til baka til baka
inn á heimilið til þolandans.
Nálgunarbann geranda við þolanda heimilisofbeldis frá þeirri
stundu sem ofbeldið á sér stað eykur svigrúm beggja til að átta sig
á stöðu mála. Konan fær það skjól á heimilinu sem mannréttindi
hennar gera ráð fyrir og ytri aðstæður karlsins gefa honum þá ekki
kost á öðru en að horfast í augu við vanda sinn og vinna í honum. Lög-
festing austurrísku leiðarinnar ætti því að vera einföld en áhrifarík
leið til þess að koma heimilisofbeldismálum upp úr hjólförunum og
í farveg sem leiðir til úrbóta bæði fyrir þolanda og geranda.
Þingmenn Vinstri grænna hafa í þrígang lagt fram frumvarp til
laga um að austurríska leiðin verði lögleidd hér og Ágúst Ólafur
Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram þingmál
um að setja sérstakt lagaákvæði um heimilisofbeldi. Þessi mál hafa
ekki náð fram að ganga og það eina sem breyst hefur í löggjöfinni
undanfarin ár er að á síðasta þingi kom inn refsiþynging vegna
heimilisofbeldis.
Hér á landi er ekki heldur til nein aðgerðaáætlun gegn kyn-
bundnu ofbeldi en samkvæmt úttekt Evrópuráðsins er Ísland í hópi
10 Evrópuríkja sem ekki hafa slíka áætlun á móti 21 sem hana hafa.
Hér er því verk fyrir höndum. Það er á valdi stjórnvalda að laga
löggjöfina og ekki eftir neinu að bíða.
Heimilisofbeldi verður að uppræta.
Virkt nálgunarbann
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR
Töflufundur
Stórfyrirtæki landsins ryksuguðu upp
aðgangsmiða á landsleik Íslands og
Danmerkur, sem fram fór í gær. Um
helmingur allra miða fór til helstu
styrktaraðila, fjármálafyrirtækja og
sérstakra gesta KSÍ, ásamt því að Dan-
irnir fengu sinn skerf. Er þá venjan að
fyrirtækin haldi kokkteila til
að hita upp fyrir leikinn.
BYKO var til dæmis
með svokallaðan töflu-
fund með Guðna Bergs
fótboltakappa á Hótel
Nordica, þar sem hann
fór yfir væntanlegan leik
á léttum nótum.
Róðurinn hjá
íslenska lið-
inu var held-
ur léttari á
töflunni hjá Guðna heldur en síðan
reyndist raunin. Enda engin hefð fyrir
sigri á Dönum í knattspyrnu.
Herra Ameríka
Hann var heldur þétt setinn bekk-
urinn í sjónvarpssal Skjás eins á
Magnavökunni svokölluðu í fyrri-
nótt. Ýmsir voru kallaðir til og gáfu
álit sitt á öllum látunum í kringum
Rock Star-þáttinn. Meðal gesta voru
stjórnmálamennirnir Steingrímur J.
Sigfússon og Dagur B. Eggertsson.
Steingrímur hefur verið þekktur fyrir
annað en aðdáun sína á banda-
rískum gildum. En hvað gera
menn ekki vitandi það að
allir helstu kjósendur
kjördæmis síns séu
límdir fyrir framan
skjáinn?
Hvað um Reykjavíkur-
flugvöll?
Flugfélag Íslands kannar nú mögu-
leika á auknu fraktflugi innanlands og
meðal þess sem er til skoðunar er að
flytja fisk utan af landi og til Keflavíkur,
sem þaðan yrði flogið með þotum út
í heim. Nú velta menn fyrir sér, svona
í ljósi sögunnar, hvort landsbyggðar-
þingmenn muni ekki leggjast alfarið
gegn slíkum hugmyndum og
krefjast þess að notast verði
við Reykjavíkurflugvöll við
þessa flutninga.
bjorgvin@frettabladid.is
bjorn@frettabladid.is
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina við Alicante á hreint ótrúlegum
kjörum. Allra síðustu sætin á frábæru tilboði. Þú kaupir tvö fl ugsæti en
greiðir aðeins fyrir eitt. Gisting á Benidorm í boði ef óskað er.
kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, m.v.
2 fyrir 1 tilboð 14. September í 2 vikur.
Netverð á mann.
Allra síðustu sætin
Sannleikurinn er þó sá, að Nix-
on sat iðulega á skrifstofu sinni
á kvöldin með aðra höndina
skjálfandi á kjarnorkuknappin-
um og hina á viskíflöskunni og
gaf drafandi skipanir í símann.